Segir frá ástarfíkn
Eva Rún hefur lagt mikið upp úr því að upp­hefja eldri konur í þessu jóla­bóka­flóði. Mynd: Golli

Segir frá ástarfíkn

Eva Rún Snorra­dóttir er ekki viss um að hún hefði þorað að skrifa bók sína fyrir tíu árum. Í skáld­sögu sem er svo vel skrifuð að ýmsir ætla hana sjálfsævi­sögu­lega fangar hún flóknar til­finn­ingar á meit­l­aðan hátt og lýsir upp konu sem er ást­ar­fík­ill – með tengsla­rof. Hún þráir um leið og hún getur ekki.

„Mér finnst svo ótrú­lega spenn­andi að skoða fíkn, rýna í hana,“ segir Eva Rún. „Við erum öll alltaf að spyrja okkur: Hvað ger­ist þegar mann­eskja fer frá litlum börnum til þess að fara á ógeðs­legan bar og láta ein­hvern vökva ofan í sig? En þetta ger­ist. Og við erum von­andi aðeins að fara frá dómnum og átta okkur á því að þetta er ekki ákvörðun,“ heldur hún áfram ögn brosmild og spyr síðan: „Hvað er ákvörðun?“ 

 Þegar hvorug okkar svarar því segir hún: „Við erum svo marg­slungin og þetta er ýkt dæmi. En atferlið er samt reglu­legt stef í fíkn. En mér finnst spenn­andi að skoða birt­ing­ar­myndir fíknar í alls konar myndum, stórum jafnt sem smáum.“ 

Aðal­per­sóna bók­ar­innar er haldin ást­ar­fíkn sem birt­ist í þrá­hyggju gagn­vart eldri konum. Hún er fíkin í eitruð tengsl við eldri konur. Er það …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár