Sonur Bláhosu 2: Biskupsefni stýrir bardaga, hrekst til Grænlands

Jón Arason var mestur valda­maður kirkjunnar á Norður­landi eftir að Gottskálk Nikulásson, biskup á Hólum, andaðist 1520. En það varð þrautin þyngri fyrir hann að tryggja sér biskups­embættið.

Ekki hefur enn fundist mynd af Jóni Arasyni en við látum sem þetta sé mynd af honum.
Ekki hefur enn fund­ist mynd af Jóni Arasyni en við látum sem þetta sé mynd af honum. Í raun er þetta mynd frá 1546 af Jacopo Sansovino, málar­inn er Tin­tor­etto.

Í byrjun desember 1520 dó biskupinn á Hólum, maður um fimmtugt, Gottskálk hét hann Nikulásson. Hann var norskur að ætt og kunnur fjárafla- og atkvæða­maður. Gottskálk hafði aukið mjög við eignir Hólastóls þann aldar­fjórðung sem hann hafði setið í embætti og þótti ekki ævinlega vandur að meðulum þegar hann glímdi við íslenska höfðingja og stórbokka um jarð­eignir og önnur verðmæti.

En þeir voru heldur engin lömb að leika sér við.

Eins og flestir klerkar í þá daga átti Gottskálk fylgikonu, hvað sem leið opinberu banni kaþólsku kirkjunnar við hjúskap presta, og hafði eignast með henni þrjú börn. Leggið á minnið nöfnin Oddur og Guðrún. Þau koma við sögu síðar.

Réði á Hólum

Síðustu 10–12 árin af biskupstíð Gott­skálks hafði séra Jón Arason orðið honum æ mikil­vægari lautinant í hinni verald­legu baráttu við höfðingjana. Jón var nú 37 ára og hafði komið vel undir sig fótunum á …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár