Hélt að dauðinn væri nálægur
Tón­list­ar­mað­ur­inn Örn Elías er betur þekktur sem Mugison. Hann hefur lengi verið einn af ást­sæl­ustu tón­list­ar­mönnum þjóð­ar­innar. Mynd: Golli

Hélt að dauðinn væri nálægur

Örn Elías Guð­munds­son, öðru nafni Mug­i­son, ólst að hluta til upp á Græn­höfða­eyj­um þar sem hann spil­aði fót­bolta ber­fætt­ur, stund­um með apa á öxl­inni. Hann fékk gít­ar í ferm­ing­ar­gjöf en er les- og skrif­blind­ur svo hann les ekki nót­ur. Í ár kem­ur hann fram í 100 kirkj­um – mús­íkant­inn sem býr í hjört­um svo margra.

Þegar Örn Elías Guð­munds­son, betur þekktur sem lista­mað­ur­inn Mugison, flutti til Reykja­víkur 17 ára gam­all fór hann bein­ustu leið upp á Arnarhól. Hann var nýfar­inn að upp­götva lista­mann­inn í sjálfum sér og bjóst við að hitta á hólnum lista­menn sem hann gæti dottið í það með. En eng­inn kom.

„Ég ákvað seint undir morgun að rölta bara heim,“ rifjar Örn upp.

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar en Örn er í dag einn ást­sæl­asti tón­list­ar­maður þjóð­ar­innar. Á þessu ári spilar hann í 100 kirkjum víða um land. 

„Þær eru svo fal­legar þessar kirkjur og ein­hvern tím­ann hugs­aði ég með mér að það væri gaman að taka alvöru kirkjurúnt,“ segir Örn sem hefur í um tvo ára­tugi ferð­ast um landið til þess að koma fram. Hann segir að í hitti­fyrra hafi hann fengið kvörtun um að hann væri að …

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár