Leitar skjóls í rafmagns-, hita- og vatnslausum kofa: „Þetta fær mann til að upplifa tímann“

„Því minna sem maður hefur af tíma því dýr­mæt­ari er hann,“ segir mynd­list­ar­mað­ur­inn Sigurður Atli Sig­urðs­son, sem dvelur löngum stundum í kofa uppi í sveit ásamt fjöl­skyldu sinni. Þar er ekki hiti, raf­magn og vatn en tím­inn verður öðru­vísi – í eins konar hæg­veru­lifn­aði.

Leitar skjóls í rafmagns-, hita- og vatnslausum kofa: „Þetta fær mann til að upplifa tímann“
Hæg­veru­lifn­aður Sigurður Atli í kofa án hita, raf­magns og vatns þar sem tím­inn verður öðru­vísi. Mynd: Golli

Mynd­list­ar­mað­ur­inn Sigurður Atli Sig­urðs­son sýndi eitt sinn verk sem kall­ast Sæta­skipan og var rann­sókn á fólki í rými. Verk þessi eru í senn tær en sterk. En hann dvelur löngum stundum í kofa sem spannar fimmtán fer­metra í nágranna­sveit Reykja­víkur; úti í nátt­úr­unni, ásamt eig­in­konu sinni, dans­höf­und­inum og rit­stjór­anum Sóleyju Frosta­dóttur, og börnum þeirra. Aðspurður segir hann að hvorki mynd­list sín né verkin fjalli um það. Aftur á móti hjálpi veran þar til við að skynja umhverfið.

Kofinn er eins og gam­al­dags sum­ar­bú­staður, án hita, raf­magns og vatns – og ann­ars sem flokka mætti undir svokölluð nútíma­þæg­indi. Þegar und­ir­rituð hringir í hann er ætl­unin í og með að rann­saka hann í sínu rými. Fyrsta spurn­ingin er á þá leið hvort tengja megi kof­ann og þau við „slow liv­ing“, þar sem lífs­stíll­inn skapar tíma og rými fyrir það sem mik­il­vægt er í líf­inu. Sé reynt að þýða það mætti kannski …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KM
    Kristjana Magnusdottir skrifaði
    TÍMINN HEFUR ALDREI VERIÐ Í HÆGAGANGI HJÁ MER ÞVÍ AÐ ÞAÐ HEFUR ALLTAF VERIÐ ÞANNIG AÐ EFTIR ÞVÍ SEM EG VERÐ ELDRI ÞVÍ FLJÓTARI RENNUR HANN HJÁ ÚT Í EILÍFÐINA SEM ER ÓENDANLEG JAFN VEL ÞÓTT EKKERT SE EFTIR NEMA TÓMIÐ EITT
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár