Njósnarinn á Hotel Klomser: Mesti njósnari 20. aldar?

Á útmán­uðum birt­ust hér nokkrar flækju­sögur um upp­haf fyrri heims­styrj­aldar sum­arið 1914. En við þá sögu komu ýmsir óvæntir aðilar og á óvæntan hátt.

Njósnarinn á Hotel Klomser: Mesti njósnari 20. aldar?
Alfred Redl Fæddur: 18. mars 1864 í Lviv, þá í aust­ur­rísk-ung­verska keis­ara­dæm­inu, nú í Úkraínu. Dáinn: 25. maí 1913 í Vín­ar­borg, 49 ára gam­all.

Leyni­þjón­ustu­menn­irnir tveir voru ógn­ar­spenntir. Þeir sátu í and­dyr­inu á Hotel Klomser við Her­rengasse 19 í mið­borg Vínar og vissu að innan skamms myndu þeir standa and­spænis stór­hættu­legum njó­sn­ara í þjón­ustu hins óvin­veitta rúss­neska keis­ara­dæmis, njó­sn­ara sem ef til vill hafði valdið aust­ur­rísk-ung­verska keis­ara­dæm­inu, sem þeir þjón­uðu, ómældum skaða.

En nú væru dagar hans áreið­an­lega taldir. Og leyni­þjón­ustu­mönn­unum tveim hló hugur í brjósti. Þeim yrði þakkað afrekið, þeir fengju hrós í hnappa­gatið, eflaust stöðu­hækkun og kannski jafn­vel orðu sem sjálfur keis­ar­inn myndi festa í jakka­boð­ung þeirra.

Ábending frá Þjóðverjum

Þetta var síð­degis 24. maí 1913. Keis­ar­inn var Franz Jósef sem setið hafði á valda­stóli í 65 ár. Ýmislegt hafði drifið á hans daga en leyni­þjón­ustu­menn­ina tvo grun­aði að gamli keis­ar­inn hefði aldrei staðið frammi fyrir álíka svikum og nú yrði vænt­an­lega ljóstrað upp um.

Þar sem þeir sátu og biðu í íburð­ar­miklu and­dyri Klomser, hug­leiddu þeir hve …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár