„Ef við ætlum að halda þessu tungumáli lifandi verðum við að skrifa á því“
Sala á prent­uðum bókum hefur dreg­ist mikið saman „ ... án end­ur­greiðsl­unnar hefði útgáfa íslenskra bóka senni­lega hrunið,“ segir Sig­þrúður Gunn­ars­dóttir, marg­reyndur rit­stjóri sem fyrir rúmu ári síðan varð fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins. Hún bendir jafn­framt á nauð­syn þess að skrifa á íslensku ef ætl­unin er að halda henni lif­andi. Og mik­il­vægi þess að lesa þýð­ingar – sem eiga nú erfitt upp­dráttar. Mynd: Golli

„Ef við ætlum að halda þessu tungumáli lifandi verðum við að skrifa á því“

Sig­þrúður Gunn­ars­dóttir hefur starfað við bækur síðan hún var barn og sem rit­stjóri hjá Máli og menn­ingu síðan útgáfan var á Lauga­vegi 18. Fyrir rúmu ári síðan tók hún við sem fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins. Hún gjör­þekkir heim bóka­út­gáfu sem nú tekst á við flóknar áskor­anir. Hún ræðir áskor­anir sem bóka­út­gáfa og tungu­málið standa frammi fyrir – nú þegar Dagur bók­ar­innar er handan við hornið.

Í and­dyri For­lags­ins, versl­un­inni, er ilmur af bókum. Þegar gengið er inn í sjálft for­lagið, lífæð skáld­skapar og fræða, blasir skrif­stofa Sig­þrúðar við. Hún situr ekki lengur þar sem rit­stjór­arnir vinna sitt starf, þar sem mátti finna hana árum saman með hand­ritastafla allt í kringum sig.

Hún byrj­aði sem rit­stjóri barna­bóka en bætti síðan við sig ann­ars konar bókum, fyrst hjá Máli og menn­ingu, þá Eddu útgáfu og loks For­lag­inu, sem varð til við sam­ein­ingu við JPV útgáfu og for­laga sem höfðu verið undir hatti Eddu.

Síðan á barns­aldri hefur Sig­þrúður starfað við að selja bækur, stússa með þær á lager og rit­stýra þeim. Og loks: að stýra gang­verki langstærsta for­lags lands­ins sem fram­kvæmda­stjóri. En því starfi tók hún við fyrir rúmu ári síðan af Agli Jóhanns­syni, sem hafði gegnt því frá stofnun For­lags­ins.

Margir ófyrirsjáanlegir þættir spila inn í reksturinn

Sig­þrúður situr við skrif­borð sitt, …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár