„Kerfið fer stundum að verja sig“

Lög­mað­ur­inn Sigurður Örn Hilm­ars­son hefur kennt mál Ívars Arnars Ívars­sonar – mál þar sem frels­is­sviptur maður varð fyrir alvar­legu lík­ams­tjóni, eins og Sigurður Örn orðar það. Málið vekur upp áleitnar spurn­ingar hjá nem­endum en aðspurður telur hann að brotið hafi verið á mann­rétt­indum Ívars.

„Kerfið fer stundum að verja sig“
Sigurður Örn Sigurður Örn á skrif­stofu sinni á lög­manns­stof­unni Rétti, en hann er einn eig­enda hennar. Mynd: Golli

For­síðu­við­tal Heim­ild­ar­innar í þess­ari viku er við Ívar Örn Ívarsson sem fékk hjarta­stopp við hand­töku, 22 ára gam­all, eftir sitt fyrsta og eina geð­rof, í kjöl­far þess að hafa tekið inn fæðu­bót­ar­efni. Þegar hann komst aftur til vit­undar hafði hann orðið fyrir heilaskaða og var lög­blindur á báðum augum, lamaður og um tíma var talið að hann myndi ekki geta neytt matar framar.

Í máli Ívars var ríkið sýknað en við að lesa dóm Hæsta­réttar stingur í augu að sér­stök rann­sókn á hand­tök­unni fór aldrei fram, lýs­ingar á bæði atburða­rásinni og ástandi Ívars, jafnt sem lýs­ingar á hand­tök­unni, eru furðu óná­kvæmar. Vitn­is­burður lög­reglu­mann­anna eru ólíkir, óná­kvæmir og mót­sagna­kenndir – og stang­ast á við vitn­is­burð íbú­ans á heim­il­inu þar sem hand­takan fór fram. Eins virð­ist lög­maður rík­is­ins fara óvar­lega með stað­reyndir og ekki hafa …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Þetta er rosalegt mál. Manni finnst eftir lesturinn að ekki bara lögreglan hafi brugðist. Það hafi dómskerfið gert sömuleiðis. Betur að málið hefði farið fyrir Mannréttindadómstólinn.
    2
  • skrifaði
    Ríkið ræðst á þann veika og smáa. Ekki í mínu nafni samt. Hver skyldi vera ábyrgur í þessu ljóta máli?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár