Forstjóri SKELJAR fékk 193 milljónir króna í laun og bónus í fyrra

For­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins SKEL yfir­gaf Arion banka á árinu 2022. Fyrir það fékk hann greiðslu upp á annað hund­rað millj­ónir króna vegna „keyptra starfs­rétt­inda“ ofan á hefð­bundin laun og kaup­rétt­ar­samn­ing sem met­inn var á einn millj­arð króna. Í fyrra fékk hann 8,6 millj­ónir króna á mán­uði í laun og 90 millj­óna króna ein­skipt­is­greiðslu.

Forstjóri SKELJAR fékk 193 milljónir króna í laun og bónus í fyrra

Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfason, for­stjóri SKELJAR, fékk 103,4 millj­ónir króna í laun, hlunn­indi og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð á árinu 2023, eða 8,6 millj­ónir króna á mán­uði. Til við­bótar við þetta fékk hann ein­skipt­is­greiðslu upp á 90 millj­ónir króna og heild­ar­greiðslur til for­stjór­ans, sem er bróðir Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, námu því 193,4 millj­ónum króna á síð­asta ári. Ef þeirri upp­hæð er deilt niður á mán­uði árs­ins þá voru tekjur Ásgeirs 16,1 millj­ónir króna í hverjum mán­uði í fyrra, eða um 537 þús­und krónur á dag í með­al­mán­uði sem telur 30 daga. Í ofaná­lag átti for­stjór­inn kaup­rétti á 64 millj­ónum hluta í SKEL um síð­ustu ára­mót. 

Frá þessu er greint í árs­reikn­ingi SKELJAR sem birtur var í lok lið­innar viku. 

Ásgeir var ráð­inn í starfið í apríl í 2022, en hann var áður aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka. Hann hóf störf 9. júlí sama ár. Í árs­reikn­ingi SKELJAR vegna árs­ins 2022 kom fram að hann hafi fengið 45 millj­ónir króna vegna svo­kall­aðra „keyptra starfs­rétt­inda“ á því ári auk þess sem SKEL greiddi 55 millj­ónir króna í launa­tengd gjöld. SKEL var í raun að greiða honum háa upp­hæð fyrir að skipta um vinnu. Í fyrra gjald­færði SKEL svo 60 millj­ónir króna vegna þessa og á árinu 2025 mun félagið gjald­færa 15 millj­ónir króna. SKEL mun einnig standa skil á launa­tengdum gjöldum sam­hliða bæði þessi ár.

Heild­ar­fjár­hæðin var hins vegar greidd til Ásgeirs á árinu 2022 og í efna­hags­reikn­ingi SKEL voru færðar alls 165 millj­ónir króna á meðal veltu­fjár­muna vegna þessa. Hann greiddi tekju­skatt af allri upp­hæð­inni á árinu 2022. Sú ein­skipt­is­greiðsla sem hann fékk frá SKEL í fyrra umfram laun, alls upp á 90 millj­ónir króna, er því ótengd þessum „keyptu starfs­rétt­indum“.

„Úr takti við það sem eðlilegt getur talist“

Magnús Ingi Ein­­ar­s­­son, áður fram­­kvæmda­­stjóri banka­sviðs Kviku banka, var ráð­inn fjár­­­mála­­stjóri SKELJAR á svip­uðum tíma og Ásgeir tók við sem for­stjóri. Ásgeir og Magnús Ingi fengu kaup­rétti um hluti í félag­inu þegar þeir voru ráðnir í sam­ræmi við kaup­rétta­á­ætlun þess sem sam­­þykkt var á aðal­fundi 2022. Sam­­kvæmt þeirri áætl­­un, sem tók gildi þann 10. mars 2021, var SKEL heim­ilt að úthluta kaup­rétti til lyk­il­­stjórn­­enda félags­­ins af fimm pró­­sentum af útgefnu heild­­ar­hlutafé þess. Mark­aðs­verð þess­­ara kaup­rétta var á þeim tíma um 1,6 millj­­arðar króna.

Þessi kaup­rétt­­ar­heim­ild, sem gildir til árs­ins 2027, var full­nýtt í samn­ingum við Ásgeir og Magnús Inga. Sam­­kvæmt til­­kynn­ingu sem SKEL sendi frá sér í vorið 2022 nam virði kaup­réttar Ásgeirs 1,02 millj­­örðum króna, á meðan virði kaup­réttar Magn­úsar Inga nam 572 millj­­ónum króna. Laun Magnúsar Inga eru ekki sér­stak­lega til­tekin í árs­reikn­ingi SKELJAR. 

Árni Guð­munds­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri Gildis líf­eyr­is­sjóðs, gagn­rýndi þá launa­þróun sem væri til staðar á meðal for­stjóra skráðra íslenskra félaga í grein sem hann skrif­aði í mars í fyrra, en félögin eru öll að nokkrum eða stórum hluta í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Árni sagði að launin væru „úr takti við það sem eðli­legt getur talist í íslensku sam­fé­lagi.“ Þar nefndi hann sér­stak­lega launa­greiðslur til Ásgeirs Helga og laun Orra Hauks­sonar, for­stjóra Símans, sem Heim­ildin hafði greint frá að hefði verið með 9,7 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði á árinu 2022. 

Árni til­tók að Gildi hefði beitt sér gegn þeirri launa­þróun sem hafi verið að raun­ger­ast. „Reynslan hefur hins vegar sýnt að sífellt er verið að bæta við kaupaukum í ýmsu formi til stjórn­enda án þess að það komi niður á háum föstum launum.“

Hagnaðist um 5,4 milljarða í fyrra

SKEL fjár­fest­inga­fé­lag hét áður Skelj­ungur í 93 ár. Nafni og til­gangi félags­ins var breytt í byrjun árs 2022 sam­hliða því að til­kynnt var um 6,9 millj­arða króna hagnað á árinu 2021. Sá hagn­aður var nær allur til­­kom­inn vegna sölu á fær­eyska dótt­­ur­­fé­lag­inu P/F Magn á árinu 2021, en bók­­færð áhrif þeirrar sölu á tekjur Skelj­ungs í fyrra voru 6,7 millj­­arðar króna. Árið 2022 var hagn­að­ur­inn enn meiri, 17,5 millj­arðar króna. Sá hagn­aður kom nær allur til vegna þess að gang­virði fjár­eigna og fjár­fest­inga­eigna var fært upp um 18,9 millj­arða króna. Það er til­komið vegna þess að þegar SKEL var breytt í fjár­fest­inga­fé­lag voru eignir þess færðar á gang­virði í gegnum rekstur. 

Í fyrra var hagn­að­ur­inn mun hóf­legri, eða 5,4 millj­arðar króna, en arð­semi eigin fjár var 16 pró­sent. Heild­ar­eignir félags­ins voru metnar á 50 millj­arða króna í lok síð­asta árs og eigið fé þess var 38 millj­arðar króna

Streng­­ur, eign­­ar­halds­­­fé­lag sem stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son fer fyr­ir, á 50,1 pró­­sent hlut í SKEL og hefur því tögl og hagldir innan þess. Arð­greiðslur vegna árs­ins 2023 og end­ur­kaup eigin bréfa frá aðal­fundi síð­asta árs námu um 1,5 millj­örðum króna. Áform eru um að greiða 750 millj­ónir króna út í arð í ár. 

Komnir með stóran hlut í fjárfestingabanka

Fjár­fest­inga­fé­lagið á hlut í tveimur skráðum félögum: 15,37 pró­sent hlut í fast­eigna­fé­lag­inu Kalda­lóni og 8,2 pró­sent hlut í trygg­inga­fé­lag­inu VÍS, sem sam­ein­að­ist fjár­fest­inga­bank­anum Fossum í fyrra. SKEL er næst stærsti eig­and­inn í VÍS og með kaupum VÍS á Fossum varð fjár­fest­inga­fé­lag sem stýrt er af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni stærsti einka­fjár­festir­inn í fjár­fest­inga­banka á Íslandi. Jón Ásgeir var síð­ast í slíkri stöðu innan Glitnis fyrir banka­hrun, þegar félög sem hann leiddi stýrðu þeim banka síð­ustu metrana áður en hann féll í októ­ber 2008. Næst stærsti einka­fjár­festir­inn í sam­ein­uðu félagi VÍS og Fossa er félagið Sjáv­ar­sýn, í eigu Bjarna Ármanns­sonar, sem eitt sinn var banka­stjóri Glitnis banka. 

Þá hefur SKEL 100 pró­sent hlut í dótt­ur­fé­lög­unum Orkunni, Skelj­ungi, Gallon, Löðri, Lyfjaval og ráð­andi hlut í Kletti. Auk þess á SKEL helm­ings­hlut í Reir Þróun og 81 pró­sent í smá­sölu­fyr­ir­tæk­inu Heimkaup. Sum dótt­ur­fé­lag­anna eru undir öðrum dótt­ur­fé­lögum sam­stæð­unnar.

Í fyrra tók SKEL þátt í að stofna Styrkás með Horni IV slhf., fram­taks­sjóðs í stýr­ingu Lands­bréfa.  Það á að verða leið­andi þjón­ustu­fyr­ir­tæki á fyr­ir­tækja­mark­aði sem hefur styrk til að þjón­usta inn­viða- og atvinnu­vega­fjár­fest­ingu. Markmið hlut­hafa er að skrá alla hluti í félag­inu á skipu­legan markað í Kauphöll Íslands fyrir árs­lok 2027. Skelj­ungur og Klettur voru sett inn í Styrkás og Ásmundur Tryggva­son var ráð­inn for­stjóri félags­ins í októ­ber. Ásmundi var áður fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­festa hjá Íslands­banka en var gert að hætta störfum þar í fyrra­sumar. Hann var einn þeirra starfs­manna bank­ans sem keypti hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði í mars 2022. Bankinn hefur við­ur­kennt að hafa framið marg­háttuð lög­brot í hlut­verki sínu sem sölu­ráð­gjafi við þá sölu og sam­þykkti að greiða met­sekt, alls um 1,2 millj­arða króna, vegna þessa. Ásmundur gerði starfs­loka­samn­ing við Íslands­banka, í 42,5 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins, sem gerði ráð fyrir tólf mán­aða greiddum upp­sagn­ar­fresti sem ekki var gerð krafa um að yrði unnin. Íslands­banki gjald­færði  63,4 millj­ónir króna í laun og launa­tengd gjöld í tengslum við sam­komu­lagið á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2023. Þremur mán­uðum eftir að Ásmundur hætti hjá Íslands­banka var hann kom­inn með starf hjá Styrkás. 

Eru að búa til smásölurisa

Þann 19. jan­úar síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að SKEL og Samkaup hefðu und­ir­ritað yfir­lýs­ingu um að hefja könn­un­ar­við­ræður vegna mögu­legs sam­runa Samkaupa, sem reka 64 mat­vöru­versl­anir víðs­vegar um landið undir merkjum Samkaupa,  Nettó, Kjör­búð­ar­innar og Iceland, við dótt­ur­fé­lög SKELJAR. Um er að ræða ann­ars vegar Orkuna sem starf­rækir 72 orku­stöðvar, 14 þvotta­stöðvar undir merkjum Löðurs, sex hrað­hleðslu­stöðvar, tvær vetn­is­stöðvar og eina met­an­stöð. Þá á félagið 32 fast­eignir og lóðir víðs vegar um landið, auk ann­arra eigna. Hins vegar er um að ræða Heimkaup, sem reka sjö apó­tek undir merkjum Lyfja­vals og níu þæg­inda­versl­anir undir merkjum 10-11, Extra og Orkunnar, auk ann­arra eigna.

Sameinað félag yrði eitt öfl­ug­asta fyr­ir­tæki lands­ins á mat­vöru­mark­aði, lyf­sölu og elds­neyti. Áætlaðar tekjur þess á ári eru 72 millj­arðar króna, sem er um 60 pró­sent af tekjum smá­söluris­ans Festi, sem rekur 26 Krónu­versl­anir ásamt N1, Bakkanum og Elko, og um 44 pró­sent af tekjum Haga, sem reka 33 Bón­usversl­anir, sjö Hag­kaups­búðir, 22 Olís­stöðvar, 44 ÓB stöðvar og stundar stór­felldan inn­flutn­ing á vörum ásamt því að reka vöru­hús. Í fjár­festa­kynn­ingu SKELJAR vegna síð­astar árs­upp­gjörs segir að áætl­aður rekstr­ar­hagn­aður sam­ein­aðs félags fyrir afskriftir, fjár­magns­gjöld og skatta sé 6,2 millj­arðar króna. 

Gangi kaupin eftir verður fjár­fest­inga­fé­lag undir stjórn Jóns Ásgeir því aftur orðið stór leik­andi á íslenskum smá­sölu­mark­aði, en hann stofn­aði Bónus snemma á tíunda ára­tugnum með föður sínum og stýrði Baugi Group, fjár­fest­inga­fé­lagi sem átti og rak mat­væla­versl­anir og stund­aði verð­bréfa­við­skipti með hluta­bréf í öðrum fyr­ir­tækjum inn­an­lands og erlendis fyrir banka­hrun. Baugur Group var lýstur gjald­þrota í mars 2009 og þegar skiptum á sam­stæð­unni lauk sum­arið 2019 kom í ljóst að 2,7 pró­sent hafði feng­ist upp í 424 millj­arða króna lýstar kröf­ur. 

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Friðrik Friðriksson skrifaði
    Er þetta fólkið sem fer fram á að almenningur sýni ábyrgð í launakröfum? Hvar er þeirra ábyrgð ? og hvað með verðbólgu og stýrivaxtahækkanir vegna þeirra ofurlaunahækkana?..Býr þetta fólk í allt öðru þjóðfélagi en almennir launþegar?.
    3
  • Friðrik Friðriksson skrifaði
    Af hverju var Ásgeir keyptur út úr Arionbanka, komst hann að einhverjum viðskiptum sem mátti ekki sjá dagsins ljós?..Óeðlileg viðskipti við stór fyrirtæki?.
    2
  • Hver eða hverjir eru eigendur Skeljar?
    1
    • Einar Björnsson skrifaði
      Það stendur allt í fréttinni og líka hægt að fletta upp hjá rsk.is !

      "Streng­­ur, eign­­ar­halds­­­fé­lag sem stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur­inn Jón Ásgeir Jóhannesson fer fyr­ir, á 50,1 pró­­sent hlut í SKEL og hefur því tögl og hagldir innan þess. "
      3
  • Hver eða hverjir eru eigendur Skeljar?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár