Vonandi heitt vatn í Reykjanesbæ á morgun

Kristinn Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri fram­leiðslu­sviðs HS Orku, segir unnið að fram­hjá­teng­ingum inn á nýja hjá­veitu­lögn til að bæta upp fyrir gömlu Njarð­vík­ur­æð­ina. Hún hafði séð Reykja­nesbæ fyrir heitu vatni þangað til hún fór undir hraun fyrr í dag.

Vonandi heitt vatn í Reykjanesbæ á morgun
Hraun­rennsli Hraun rann yfir stofn­lögn­ina sem sér stórum hluta Reykja­ness fyrir heitu vatni fyrr í dag. HS Orka vinnur nú að því að koma heitu vatni aftur til íbúa. Mynd: Heimildin / Golli

Kristinn Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri HS Orku, segir að hraun­flæði­líkön hafi spáð því að hraun rynni einmitt þar sem það rann. „Við vorum að vinna að því í morgun að klára tvær suður á þess­ari hjá­veitu­að­gerð sem við erum búnir að vera að vinna í kappi við tím­ann und­an­farnar vikur. Við náðum að klára það áður en hraunið kom.“

Kristinn segir að búið sé að sanda hjá­veitu­lögn­ina og fergja yfir hana. Hún sé því heil undir hrauni. Gamla Njarð­vík­ur­æðin sé hins vegar farin – sú sem hefur flutt heitt vatn til Reykja­nes­bæjar. „Hún fór undir hraun áðan og rofn­aði. Þannig að það er búið að slökkva á henni núna.“

Vonandi heitt vatn til Reykjanesbæjar á morgun

Hann segir að nú sé unnið að því að smíða fram­hjá­teng­ingar inn í nýju hjá­veitu­lögn­ina. „Það verður unnið við það í allan dag. Á morgun munum við von­andi ná að tengja gömlu lögn­ina inn á hjá­veitu­lögn­ina – og koma þá heitu vatni aftur til Reykja­nes­bæjar.“

Kristinn segir hjá­veitu­lögn­ina vera sterka og góða. Hún geti því flutt svipað vatns­magn og sú fyrri. 

Hann segir það að slökkva á útrennsli vatns óvænt svona lengi ekki hafa áhrif á virkj­un­ina sjálfa. „Virkj­unin er mjög vel varin á bak við varn­ar­garða og starf­semi hennar er, eins og staðan er, örugg.“

Loftlínur þola að hafa hraun undir sér

Hann segir þó að þarna séu fleiri lagnir í jörðu þar sem hraunið fór yfir. Til dæmis þrjár kalda­vatns­lagnir sem liggja neð­an­jarðar. „Við erum að halda fullu rennsli á þeim bara til að halda þeim köldum undir hrauni. Það eru líka þarna háspennu­strengir sem við förum núna að afvirkja því það verður hita­geislun þarna niður og þeir munu skemm­ast á næstu dögum, mjög lík­lega.“

Kristinn segir að loft­lín­urnar sem liggi yfir hraun­inu séu virkar og flytji raf­orku frá orku­ver­inu. „Það var búið að hækka möstur á þeim línum. Þær þola það að það renni hraun undir og það var búið að fergja vel að undi­stöðum þeirra mastra. Þannig að raf­orkan frá orku­ver­inu hún streymir um þær línur,“ segir hann.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár