Þessi grein birtist fyrir rúmlega 12 mánuðum.

Ár óstöðugleika

Póli­tísk­ur óstöð­ug­leiki, efna­hags­leg­ur rúss­íbani, út­ópísk upp­lif­un mennt­skæl­inga af hug­mynd barna- og mennta­mála­ráðu­neyt­is, mót­mæli við hval­veið­um og jafn­rétt­is­bar­átta kvenna og kvára var með­al þess sem bar hæst á góma í ís­lensku sam­fé­lagi ár­ið 2023.

Ár óstöðugleika
Eldgos Árinu 2023 lauk með eldgosi á Reykjanesinu. Þegar horft er til baka yfir síðustu 12 mánuði má segja að lýsingarorðin óstöðugleiki, óróleiki og spenna séu einkennandi fyrir tíðarandann. Mynd: Stefán Ari

Þau orð sem viðmælendur notuðu til að lýsa árinu 2023 benda til þess að það sé ár „óstöðugleika“ enda var það mikill „tilfinningalegur rússíbani.“

Sumir viðmælenda tóku þátt í mótmælum og börðust fyrir réttindum sínum, eða annarra dýrategunda. Hin fylgdust með úr fjarlægð og greindu þróun samfélagsmála. Þeim ber þó saman um að árið hafi einkennst af ólgu og spennu. 

Órói innan ríkisstjórnarinnar

Ólafur Þ. HarðarsonPrófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands lýsir árinu 2023 í einu orði: „óstöðugleiki.“

Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir óstöðugleika í efnahagsmálum, mikla verðbólgu, háa vexti og óróa innan ríkisstjórnarinnar einkennandi fyrir árið 2023 þegar kemur að íslenskum stjórnmálum.

„Þá hefur það kannski helst einkennt þetta ár að órói innan ríkisstjórnarinnar hefur farið mjög vaxandi, sérstaklega milli ráðherra Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins enda hafa þessir flokkar í grundvallaratriðum ólíka hugmyndafræði og sá ágreiningur hefur komið mjög …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár