Níu ára stúlka gat aðeins hvíslað eftir að hafa verið gísl Hamas

Fólkið sem Hamas hand­sam­aði í Ísrael segir frá lífs­reynslu sinni. Á sama tíma segj­ast palest­ínskir fangar hafa verið barðir í haldi ísra­elska yfir­valda.

Níu ára stúlka gat aðeins hvíslað eftir að hafa verið gísl Hamas
For­eldrar stúlku sem var rænt Hún hafði farið í gist­ingu hjá vin­konu sinni þegar Hamas kom á heim­ilið og nam þær á brott. Írinn Thomas Hand sést hér faðma móður ungs manns sem var einnig rænt. Mynd: AFP

Stríðið á Gaza er hafið á ný eftir skamm­vinnt vopna­hlé. Á meðan á vopna­hléinu stóð skipt­ust Ísra­els­ríki og Hamas á gíslum, sem lýsa harð­ræði, myrkri og vannær­ingu.

Í árás Hamas á Ísrael þann 7. októ­ber síð­ast­lið­inn, sem var upp­hafið að nýjasta stríð­inu í langri átaka­sögu Ísraels og Palest­ínu, voru teknir 240 gíslar. Nú þegar 105 af þessum gíslum hefur verið sleppt af Hamas, og 240 palest­ínskum föngum sleppt úr ísra­elskum fang­elsum ríkir aftur óvissa um fram­haldið, hvort og hvenær fleiri gíslum verði sleppt.

Flúði skothríð í Gaza-borg á Disney-náttfötum

Laus úr haldiÍrsk-ísra­elska stúlkan Emily Hand hvíslar eftir að hafa verið þögul í haldi Hamas í fimm­tíu daga, sem hún taldi vera heilt ár.

Emily Hand, 9 ára gömul írsk-ísra­elsk stúlka, gisti heima hjá vin­konu sinni þegar þeim tveimur, ásamt móður vin­kon­unnar, var rænt. Henni var sleppt úr haldi 25. nóv­em­ber á öðrum degi vopna­hlés­ins. Faðir hennar, Thomas Hand, sagði tár­votur frá upp­lifun hennar í við­tali við CNN. Emily, ásamt vin­konu hennar, Hilu, og móður Hilu, Raayu, var haldið vikum saman ofanjarðar í Gaza-borg og þær reglu­lega fluttar hús úr húsi, á flótta undan sprengjuregni og götu­bar­dögum sem stig­mögn­uð­ust þegar leið á stríðs­á­tökin. Emily var vannærð, föl og illa á sig komin and­lega þegar henni var sleppt og er enn þögul og í áfalli, að sögn föður hennar. Fyrst um sinn gat hún aðeins talað með svo lágu hvísli að hann þurfti að leggja eyra sitt alveg við munn hennar til að hann heyrði í henni og hvíslar enn svo lágt að illa heyr­ist í henni. Emily á að hafa lært eitt orð í arab­ísku á meðan að gísl­ingu hennar stóð, orð sem þýðir „hafðu hljóð“. Þegar pabbi hennar spurði hana hversu lengi hún hefði verið í haldi fékk hann átak­an­legt svar. Hún hélt að liðið væri heilt ár.

Á þeim fimm­tíu dögum sem liðu þurfti Emily að hlaupa undan kúlna­hríð í gegnum umsetna Gaza-borg á Disney-nátt­fötum. Hún létt­ist um þrjú kíló. „Ég geri hvað sem þarf til að fá Emily aftur eins og hún var. Hún er ekki lengur með mjúkar kinnar en hún er aftur farin að brosa og nú er hún örugg,“ sagði pabbi hennar í fyrsta við­tal­inu eftir að hann end­ur­heimti hana.

Barinn af fólki í Gaza

Tólf ára gömlum dreng, Eitan Yahalomi, var sleppt úr haldi mánu­dag­inn 27. nóv­em­ber. Að sögn ætt­ingja hans var Eitan bar­inn af óbreyttum borg­urum á Gaza þegar að hann var færður þangað af Hamas. Þau segja liðs­menn Hamas hafa neytt hann til að horfa á hrylli­leg mynd­bönd af morðum sem Hamas framdi 7. októ­ber. Börnum hafi iðu­lega verið hótað með vopnum ef þau grétu og einnig hafi Hamas-liðar sagt mörgum þeirra að fjöl­skyldur þeirra hefðu verið myrtar og heim­ilum þeirra tor­tímt og þannig reynt að skelfa þau til hlýðni.

„Mig lang­aði til að trúa því að það yrði farið vel með Eitan. Greini­lega ekki. Þetta fólk er skrímsli,“ sagði móð­ur­systir hans í við­tali við franska fjöl­miðla. Pabbi hans er enn í haldi.

Svaf á plaststólum

Meðlimum Munder fjöl­skyld­unnar, Ruti, 78 ára, dóttir hennar Keren, 54 ára og dótt­ur­sonur Ohad, 9 ára, var sleppt úr haldi 24. nóv­em­ber. Sonur Ruti, Roee, var myrtur á degi árásar Hamas og eig­in­maður hennar, Abraham, sem einnig er 78 ára, er enn haldið í gísl­ingu. Ruti segir frá harka­legri með­ferð, henni hafi verið haldið í súr­efn­islitlu her­bergi og gert að sofa á plast­stólum í þá tæpa tvo mán­uði sem henni var haldið í gísl­ingu. 

Gísl­arnir fengu nóg að borða fyrst um sinn segir frændi Ruti, þó að mat­ar­vistir hafi farið þverr­andi þegar á leið. Fanga­verðir úr röðum Hamas hafi þó snætt sama mat í sama magni með gísl­unum, að hans sögn.

„Sumt er hægt að segja að hafi verið sann­gjarnt,“ sagði frændi hennar á blaða­manna­fundi í London. „Þau borð­uðu með gísla­töku­mönn­unum, sem bjuggu til mat og allir borð­uðu sama mat­inn. Þeir reyndu að gefa þeim eins mik­inn mat og mögu­legt var, en það varð sífellt erf­ið­ara að útvega hann eftir því sem vik­urnar liðu og hveiti varð torfundn­ara. Þeir létu þau fá spila­stokk til að eyða tím­anum, þannig að það var ein­hver mann­gæska þarna.“

Aðrir gíslar bera merki um harka­lega með­ferð. Eldra fólk er vannært og með greini­lega áverka eftir að hafa verið dregið milli staða í hand­járnum. Þá voru mörg þeirra geymd neð­an­jarðar í djúpum göngum Hamas undir Gaza svæð­inu meiri­hluta tím­ans í haldi og þurftu að mestu að dúsa þar í niða­myrkri vikum saman. Einnig voru margir gísl­anna lús­ugir eftir vist sína í göng­unum.

Fang­elsuð Palest­ínu­kona frelsuðManal Dudeen faðmar börnin sín eftir að hafa verið sleppt úr ísra­elsku fang­elsi í vik­unni.

Palestínskir fangar beittir ofbeldi

Ísrael bauð fram frelsun palest­ínskra fanga gegn því að gíslum yrði sleppt. Úr hópi 300 þeirra sem Ísrael bauð upp á að yrðu valin fengu 240 frelsun. Þau bera mörg hver ísra­elskum yfir­völdum slæma sög­una. Mikill fjöldi þeirra eru börn og hátt í 80% þess­ara 300 voru ekki fundin sek um neina glæpi. Fangar í ísra­elskum fang­elsum bera einnig vitni um harð­ræði úr fanga­vist sinni og segj­ast hafa verið barðir hrotta­lega með kylfum og hundum sigað á þá dag­inn eftir árás­ina 7. októ­ber í hefnd­ar­að­gerðum Ísra­els­hers. Þá hafa sam­tök aðgerð­ar­sinna vakið athygli á því að fang­els­is­yf­ir­völd Ísraela neit­uðu föngum um lækn­is­að­stoð í viku hið minnsta eftir árás Hamas, jafn­vel þeim föngum sem urðu fyrir miklum bar­smíðum.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hanna Þorgrímsdóttir skrifaði
    Henni var allavega skilað og á lífi... þó hún hafi hvíslað, hljómar ekki vel veit, en í ljósi þess sem við höfum verið vitni af síðustu 2 mánuði er þetta bara jólin.......
    -1
  • GR
    Guðrún Rósa skrifaði
    hafa palentínsku gíslarnir engin nöfn og hvað léttust þeir um mörg kg eða skiptir það engu máli “þetta eru bara arabar ”?og hvað segja ættingjar þeirra?
    -1
  • Viðar Magnússon skrifaði
    Af hverju talar Heimildin um gísla annarsvegar en fanga hinnvegar þegar vitað er að margir Palestínu menn er haldið í Ísraelskum fangelsum án dóms eru þetta þá ekki gíslar
    0
  • Rakel McMahon skrifaði
    Mér finnst með ólíkindum að Heimildin birti svona hræðileg skrif! Jón Ferdinand ætti að reyna að málefnalegri, þessi skrif eru vandræðaleg fyrir höfundinn og Heimildina sem birtir þetta. Að nefna alla Ísraelska gísla á nafn en Palestínskir gíslar eru nafnlausir. Skipta þeir ekki máli? Eða er búið að drepa svo mörg að það tæki of langan tíma að nefna þau öll á nafn?? Í stóra samhenginu er Ísrael enn að MYRÐA, AFLIMA og SVELTA palestíns börn og fjölskyldur þeirra á GAZA - en höfundi finnst þess verðugara að tala írsk/ísraelsku stúlkuna, að hún sé ekki lengur með mjúkar kinnar, hún hafi misst 3 kg þegar henni var haldið í gíslingu og klæðs DISNEY náttfötum...
    2
  • Ingólfur Gíslason skrifaði
    Það sést á dálksentímetrunum og hver fá að eiga nöfn og sögu hvar samúðin liggur.
    Mætti líka bæta við að Ísraelsher hefur gripið fleiri gísla heldur en þeir hafa látið lausa í þessum gíslaskiptum?
    5
  • Axel Axelsson skrifaði
    og 8 ára palestínu drengurinn getur ekkert gert eftir að IDF skaut hann til bana úti á götu . . .
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár