Þessi grein birtist fyrir rúmlega 9 mánuðum.

Vilja fá að sækja tugi gæludýra til Grindavíkur

Tug­ir katta. Páfa­gauk­ar, fisk­ar, hamstr­ar, kan­ín­ur, dúf­ur og hross. „Okk­ur ber skylda til að hjálpa dýr­un­um sem urðu eft­ir í Grinda­vík,“ seg­ir Sandra Ósk Jó­hanns­dótt­ir, sjálf­boða­liði hjá Dýrfinnu. Við­brögð­in við færslu sam­tak­anna um gælu­dýr sem fólk varð að skilja eft­ir eru átak­an­leg.

Vilja fá að sækja tugi gæludýra til Grindavíkur
Kisurnar sem urðu eftir Tugir katta urðu eftir í Grindavík er fólki var gert skylt að rýma bæinn í gærkvöldi og nótt. Þar eru þau nú ein, því engir menn mega fara inn í bæinn í augnablikinu. Mynd: Samsett

Ein kisa. Er úti, mannblendin og gæf. Hún er ólarlaus.

Kisan Max. Örmerktur en búinn að týna ólinni sinni.

Kisan Ronja. Það er opinn gluggi og hún var farin út þegar húsráðandi fór.

Guðbrandur. Hann er þrífættur.

Irmilín slapp frá mér og varð því miður eftir.

Tveir páfagaukar.

Fjórar hænur í bakgarðinum.

Tvær kisur sem hlupu út.

Sófus og Svala. Þengill og Þula. Bati og Birta. Skvísa og Simbi. Og Yasmin, Tony, Kyndill og allar hinar kisurnar. Í tugatali urðu þær eftir í Grindavík er rýma þurfti bæinn í skyndi í gærkvöldi og nótt. „Margir reyndu að taka kettina en gátu það ekki,“ segir Sandra Ósk Jóhannsdóttir, sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu, um gríðarleg viðbrögð við færslu sem samtökin, í samvinnu við fjölmörg önnur dýraverndarsamtök, birtu á Facebook síðdegis í dag. „Margir voru að leita úti að köttunum sínum í nótt áður en þeir urðu að fara. En á endanum fundu þeir þá ekki og þurftu að rýma. Þetta er mjög erfitt fyrir eigendur gæludýra í Grindavík,“ segir hún. „Neyðin er mikil og okkur ber skylda til að hjálpa dýrunum og fólkinu sem á þau.“

Fleiri dýr en kettir eru nú í Grindavík, ein og yfirgefin og án umönnunar þar sem öllum mönnum er bannað að fara inn á svæðið vegna hættu sem stafar af jarðskjálftum og mögulegu eldgosi.

„Það er mjög átakanlegt að sjá hvað það eru mörg dýr sem eru föst þarna í Grindavík og sum lokuð inni.“

Samtökin sem hafa tekið sig saman og búið til skráningu gæludýra sem urðu eftir í Grindavík, m.a. Dýrfinna, Kattholt og Villikettir, eru tilbúin með hóp fólks sem hefur mikla þekkingu og reynslu af því að fanga dýr. „Við erum að reyna að fá leyfi, um leið og það er gerlegt, til að senda þennan reynda leitarhóp inn á svæðið,“ segir Sandra við Heimildina. Hópurinn er tilbúinn, hvenær sem er sólarhringsins, að ganga í verkið – að bjarga dýrum bæjarins.

„Við yrðum þakklát ef hún yrði sótt,“ skrifar kona á Facebook-síðuna Gæludýr í Grindavík, þar sem hún segir kisuna sína hafa orðið eftir. Ef ekki verði hægt að sækja hana þurfi að gefa henni mat.

Sögur sem þessar flæða um Facebook-síðuna. Fólk tilkynnir um hesta, bréfdúfur og fiska. Dýr sem flest hafa mat og drykk í augnablikinu en verður að sinna um leið og færi gefst. Helst sækja.

„Úff, við eiginlega bjuggumst ekki við svona miklum viðbrögðum,“ segir Sandra Ósk. „Það er mjög átakanlegt að sjá hvað það eru mörg dýr sem eru föst þarna í Grindavík og sum lokuð inni.“

Sandra segir samtökin hafa verið í sambandi við björgunarsveitina, Neyðarlínuna og Rauða krossinn og látið vita að þau séu tilbúin með reyndan leitarhóp. „Það er vilji hjá þessum aðilum til að hjálpa en við vitum að það er núna fyrst og fremst verið að huga að öryggi fólks. Við skiljum það. En við viljum samt sem áður að það sé alveg skýrt að við erum klár til að fara inn á svæðið og hjálpa.“

Þurfum að standa saman

Hún ítrekar mikilvægi þess að fólk sem hefur reynslu af því að fanga dýr verði fengið í þetta verkefni. Fólk sem hefur búnað til þess og kann til verka. Það skipti máli hvernig ókunnugir nálgast dýr, t.d. ketti. Sé það ekki gert með réttum aðferðum geti það gert illt verra.

„Við þurfum að standa saman í þessu verkefni,“ segir Sandra. „Við verðum að aðstoða gæludýraeigendur að fá dýrin sín. Það er bara þannig.“

Í nýju mati vísindamanna og almannavarna kemur fram að kvika hafi verið á aðeins 800 metra dýpi í morgun, að hún færist nær yfirborðinu og að eldgos geti hafist án fyrirvara. Því hafa allir viðbragðsaðilar verið kallaðir frá Grindavík.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbú­um leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­regl­an mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­in­um verð­ur íbú­um og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækj­um í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæ­inn og dvelja þar næt­ur­langt. Í ný­legri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesj­um er greint frá þessu. Íbú­ar eru þó var­að­ir við að inn­við­ir bæj­ar­ins séu í lamasessi og sprung­ur víða. Bær­inn sé því ekki ákjós­an­leg­ur stað­ur fyr­ir fjöl­skyld­ur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tíma­bært að verja Reykja­nes­braut

Þor­vald­ur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ing­ur seg­ir að það sé tíma­bært að huga að vörn­um fyr­ir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesj­um. At­burða­rás­in á fimmtu­dag, þeg­ar hraun rann yf­ir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi ver­ið sviðs­mynd sem bú­ið var að teikna upp. Hraun hafi runn­ið eft­ir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þeg­ar mað­ur vel­ur sér það sjálf­ur, hvað þá þeg­ar mað­ur neyð­ist til þess. Og hvernig vel­ur mað­ur hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þeg­ar mað­ur yf­ir­gef­ur stórt ein­býl­is­hús með tvö­föld­um bíl­skúr fyr­ir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyld­an á Blóm­st­ur­völl­um 10 í Grinda­vík stóð frammi fyr­ir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Sér erfiðleika foreldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“
5
Úttekt

Sér erf­ið­leika for­eldra og hugs­ar: „Þetta vil ég ekki“

Ing­unn Lára Kristjáns­dótt­ir er rúm­lega þrí­tug og hef­ur aldrei fund­ið löng­un til barneigna. Hún tel­ur að inn í það spili ónóg­ur stuðn­ing­ur við barna­fjöl­skyld­ur í ís­lensku sam­fé­lagi. Aðjunkt í fé­lags­fræði seg­ir ástæð­urn­ar fyr­ir fallandi fæð­ing­ar­tíðni gríð­ar­lega flókn­ar en að kerf­ið hafi að hluta brugð­ist fjöl­skyld­um, ekki síst mæðr­um.
Verðbólga hækkar meira en væntingar gerðu ráð fyrir
9
FréttirEfnahagsmál

Verð­bólga hækk­ar meira en vænt­ing­ar gerðu ráð fyr­ir

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,46% frá því í júní. Ár­s­verð­bólga mæl­ist nú 6,3 pró­sent en var kom­in nið­ur í 5,8 pró­sent síð­asta mán­uði. Það er meiri hækk­un en spár við­skipta­bank­anna gerðu ráð fyr­ir. Auk­in verð­bólga þýð­ir að minni lík­ur eru á því að stýri­vaxta­hækk­an­ir muni eiga sér stað á þessu ári eins og von­ast var til.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Uppskera íslenskra kartaflna skemmdist á 48 tímum: „Aldrei séð annað eins“
1
FréttirNeytendamál

Upp­skera ís­lenskra kart­aflna skemmd­ist á 48 tím­um: „Aldrei séð ann­að eins“

Heit­ar um­ræð­ur sköp­uð­ust á Face­book í gær eft­ir að Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir greindi frá því að heill poki af nýj­um kart­öfl­um hefði reynst skemmd­ur. Gunn­laug­ur Karls­son, for­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, seg­ist aldrei hafa séð ann­að eins. Upp­sker­an hafi skemmst á tveim­ur sól­ar­hring­um.
Öskraði í sturtu því hún mátti ekki hitta dóttur sína
2
Viðtal

Öskr­aði í sturtu því hún mátti ekki hitta dótt­ur sína

Guð­laug Elísa­bet Ólafs­dótt­ir, kúa­bóndi og leik­kona, er orð­in goði. Nýi goð­inn hef­ur upp­lif­að gleði og sorg­ir og varð líf­ið hel­víti lík­ast þeg­ar hún fékk ekki að um­gang­ast barn­unga dótt­ur sína, sem frændi henn­ar og mað­ur hans höfðu ætt­leitt. Stúlk­an vildi fyr­ir nokkr­um ár­um hitta móð­ur sína og eru sam­skipt­in við feð­urna góð í dag en lær­dóm­ur­inn var mik­ill: „Ég hef trú á að það hjálpi mér við að um­gang­ast fólk í djúpu og miklu sorg­ar­ferli.“
„Enginn sem tekur við af mér“
5
Viðtal

„Eng­inn sem tek­ur við af mér“

Það er barn­ing­ur fyr­ir marga að vera sjálf­stætt for­eldri á ein­um tekj­um. En hver er stað­an ef for­eldr­ið er al­far­ið eitt með barn­ið? Hvað ef barn­ið glím­ir við sér­tæk­ar grein­ing­ar? Alma Hrönn Hrann­ar­dótt­ir og Diljá Ámunda­dótt­ir Zoëga eru báð­ar ein­ar á vakt­inni, alltaf. Mæð­urn­ar hafa glímt við heilsu­brest vegna álags, með­vit­að­ar um að ef eitt­hvað kem­ur fyr­ir þær er eng­inn sem tek­ur við af þeim.

Mest lesið í mánuðinum

Uppskera íslenskra kartaflna skemmdist á 48 tímum: „Aldrei séð annað eins“
1
FréttirNeytendamál

Upp­skera ís­lenskra kart­aflna skemmd­ist á 48 tím­um: „Aldrei séð ann­að eins“

Heit­ar um­ræð­ur sköp­uð­ust á Face­book í gær eft­ir að Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir greindi frá því að heill poki af nýj­um kart­öfl­um hefði reynst skemmd­ur. Gunn­laug­ur Karls­son, for­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, seg­ist aldrei hafa séð ann­að eins. Upp­sker­an hafi skemmst á tveim­ur sól­ar­hring­um.
Þau sem hafa hagnast ævintýralega á Þorpinu
2
FréttirHúsnæðismál

Þau sem hafa hagn­ast æv­in­týra­lega á Þorp­inu

Ár­ið 2021 keypti hóp­ur fjár­festa í gegn­um eign­ar­halds­fé­lag­ið Þorp­ið 6 ehf. lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á Ár­túns­höfða í Reykja­vík fyr­ir 7,4 millj­arða króna. Fyrr á þessu ári voru lóða­rétt­ind­in seld fyr­ir ell­efu millj­arða króna án þess að nokk­uð hafi ver­ið byggt á svæð­inu. Við­skipt­in sýna vel hvernig fjár­fest­ar geta hagn­ast æv­in­týra­lega með því að kaupa og selja lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á til­tölu­lega skömm­um tíma.
Greiddu 17 milljónir fyrir skýrslu um stöðu drengja
4
Fréttir

Greiddu 17 millj­ón­ir fyr­ir skýrslu um stöðu drengja

Skýrsla um stöðu drengja í skóla­kerf­inu sem unn­in var að beiðni mennta- og barna­mála­ráð­herra og há­skóla-, iðn­að­ar- og ný­sköp­un­ar­ráð­herra kostaði sam­an­lagt um 13,7 millj­ón­ir króna auk virð­is­auka­skatts og hljóð­ar heild­ar­upp­hæð­in því upp á rúm­ar 17 millj­ón­ir. Tryggvi Hjalta­son, grein­andi hjá CCP, er eini höf­und­ur skýrsl­unn­ar. Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist hann hafa unn­ið að skýrsl­unni sam­hliða öðr­um störf­um en vinn­an tók um eitt og hálft ár.
Hulduheildsali flytur inn hundruð tonna af kjöti
5
RannsóknSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Huldu­heild­sali flyt­ur inn hundruð tonna af kjöti

Ris­ar á ís­lensk­um kjöt­mark­aði, sem fengu í vor um­deild­ar und­an­þág­ur frá sam­keppn­is­lög­um til þess að verj­ast sam­keppni að ut­an, verða á þessu ári um­fangs­mest­ir í kjöt­inn­flutn­ingi og því keppi­naut­ar sjálfs sín. „Von­brigði,“ seg­ir formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar. Um­fangs­mik­il heild­sala á hundruð­um tonna af inn­fluttu kjöti virð­ist fyrst og síð­ast leiktjald fyr­ir öfl­ug­asta hags­muna­afl­ið gegn inn­flutn­ingi land­bún­að­ar­vara.
Öskraði í sturtu því hún mátti ekki hitta dóttur sína
6
Viðtal

Öskr­aði í sturtu því hún mátti ekki hitta dótt­ur sína

Guð­laug Elísa­bet Ólafs­dótt­ir, kúa­bóndi og leik­kona, er orð­in goði. Nýi goð­inn hef­ur upp­lif­að gleði og sorg­ir og varð líf­ið hel­víti lík­ast þeg­ar hún fékk ekki að um­gang­ast barn­unga dótt­ur sína, sem frændi henn­ar og mað­ur hans höfðu ætt­leitt. Stúlk­an vildi fyr­ir nokkr­um ár­um hitta móð­ur sína og eru sam­skipt­in við feð­urna góð í dag en lær­dóm­ur­inn var mik­ill: „Ég hef trú á að það hjálpi mér við að um­gang­ast fólk í djúpu og miklu sorg­ar­ferli.“
„Ég var bara niðurlægð“
9
Viðtal

„Ég var bara nið­ur­lægð“

Séra Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, bisk­up Ís­lands, vill skila skömm­inni til kirkju­þings þar sem hún upp­lifði nið­ur­læg­ingu eft­ir að óvissa varð uppi um lög­mæti embætt­is­gjörða henn­ar. Hún seg­ir að kirkju­þing hafi átt að greiða úr mál­inu og eyða óvissu um stöðu henn­ar. Agnes tel­ur að karl­kyns bisk­up hefði aldrei þurft að þola slíka fram­komu af hálfu kirkju­þings en hún er fyrsta kon­an sem er kjör­in bisk­up.
Þurftu að kalla fólk niður af fjalli til að færa bílana
10
Fréttir

Þurftu að kalla fólk nið­ur af fjalli til að færa bíl­ana

Daní­el Freyr Jóns­son, svæð­is­sér­fræð­ing­ur í nátt­úru­vernd­art­eymi, seg­ir stans­laus­ar tepp­ur hafa ver­ið á bíla­stæð­um við Land­manna­laug­ar áð­ur en far­ið var að inn­heimta bíla­stæða­gjöld á álags­tím­um í sum­ar. Kalla hafi þurft bíl­stjóra nið­ur af fjöll­um til að færa bíl­ana til að greiða leið fyr­ir rút­um. Nýja fyr­ir­komu­lag­ið hafi hlot­ið góð við­brögð hjá gest­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár