Þekking Skapar betra sam­fé­lag sam­kvæmt rektor Háskóla Íslands. Mynd: Heimildin/Shutterstock

Þekking eflir samfélagið

Sam­fé­lags­um­ræða um hvert hlut­verk sér­fræð­inga sé þegar kemur að því að miðla þekk­ingu fór af stað eftir að jarð­hrær­ingar við Grinda­vík urðu öfl­ugri. Eiríkur Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, segir það hlut­verk sér­fræð­inga að taka til máls. Rektor Háskóla Íslands segir gagn­rýna hugsun lyk­il­inn að háskóla­starfi og þekk­ing­ar­sköpun.

Eftir að jarð­hrær­ingar í Grinda­vík juk­ust fór af stað umræða í sam­fé­lag­inu um hlut­verk sér­fræð­inga í slíkum aðstæðum, raunar hvort það væri almenn­ingi ávallt fyrir bestu að þeir miðl­uðu þekk­ingu sinni. Á Vísi.is birt­ist grein þar sem Guð­mundur Heiðar Helgason almanna­teng­ill benti á að mis­ræmi í fram­sögu sér­fræð­inga getur valdið upp­lýs­inga­óreiðu.

Þar gagn­rýndi hann Þorvald Þórð­ar­son, starf­andi pró­fessor í eld­fjalla­fræði við Háskóla Íslands, fyrir að hræða fólk. Þor­valdur var þeirrar skoð­unar að rýma ætti Grinda­vík­urbæ áður en að það var form­lega ákveðið af lög­reglu­stjóra Suð­ur­nesja og Almanna­vörnum.

Hlutverk sérfræðinga

Eiríkur Bergmann er pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskól­ann á Bifröst. Aðspurður um hvort sér­fræð­ingar eigi alltaf að fá að miðla þekk­ingu sinni eða hvort það sé orðið hlut­verk almanna­tengla, segir Eiríkur það vera til­gangu sér­fræð­innar að afla þekk­ingar og miðla henni. 

„Það er hlut­verk sér­fræð­inga að þegar það koma þjóð­fé­lags­legir þættir, sem þarf að hafa sér­þekk­ingu á, …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið undanfarið ár