Bráðnun jökla skilað sér í framleiðslu meðalstórrar virkjunar

Bráðnun jökla á Íslandi hefur á um ára­tug aukið inn­rennsli í virkj­anir Lands­virkj­unar sem sam­svarar um einni með­al­stórri virkjun. Og rennslið mun halda áfram að aukast því vís­inda­nefnd spáir því að jökl­arnir muni minnka um að minnsta kosti helm­ing til næstu alda­móta.

Bráðnun jökla skilað sér í framleiðslu meðalstórrar virkjunar
Jökullón Lón við jökla munu breyt­ast, stækka og ný verða til með áfram­hald­andi bráðnun jöklanna. Mynd: AFP

Jöklar á Íslandi hafa minnkað um 19 pró­sent að flat­ar­máli frá þeim tíma sem þeir náðu mestri útbreiðslu í lok 19. aldar. Nokkrir hafa alveg horfið. Rýrnun þeirra sem eftir eru mun halda áfram vegna lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum og í lok ald­ar­innar mun hún nema að minnsta kosti 40–50 pró­sentum, jafn­vel þótt mark­mið Par­ís­ar­samn­ings­ins um að halda hækkun hita­stigs á jörð­inni undir 2 gráðum náist. Ef ekki tekst að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verður rýrnun jöklanna enn meiri. „Framtíð jökla lands­ins er mjög háð þróun lofts­lags og sjáv­ar­hita umhverfis landið“, segir í nýút­kominni mats­skýrslu vís­inda­nefndar um áhrif lofts­lags­breyt­inga á Íslandi.

„Rýrnun jökla vegna lofts­lags­breyt­inga hefur mikil áhrif á vatns­afls­fram­leiðslu á Íslandi“, segir svo í skýrsl­unni og er bent á að sú aukn­ing, sem þegar er farin að eiga sér stað, hafi verið nýtt í núver­andi kerfi vatns­afls­virkj­ana og miðl­ana þeirra, m.a. með stækkun Búr­fells­virkj­unar. „Þróun áfram­hald­andi aukn­ingar er óviss en nýt­ing hennar er háð upp­bygg­ingu í sam­ræmi við þróun auð­lind­ar­innar.“

Gunnar Guðni Tómasson, fram­kvæmda­stjóri vatns­afls hjá Lands­virkjun, fjall­aði um einmitt þetta á haust­fundi fyr­ir­tæk­is­ins nýverið. Á síð­ustu 10–15 árum hafi fyr­ir­tækið aukið getu til orku­vinnslu um rúm­lega 2 tera­vatt­stundir. Þrjár nýjar virkj­anir voru byggðar á þessu tíma­bili: Búð­ar­háls­virkjun, Þeista­reykir og Búrfell II „en það sem er enn þá athygl­is­verð­ara er að fjórð­ungur af þess­ari aukn­ingu hefur komið vegna þess að við erum sífellt að end­ur­meta inn­rennsli til okkar afl­stöðva,“ sagði Gunnar Guðni.

„Við vitum öll að við búum við hlýn­andi lofts­lag,“ hélt hann áfram. „Jökl­arnir okkar eru að bráðna hraðar þannig að við erum að fá aukið inn­rennsli til okkar afl­stöðva. Þannig að við höfum aukið getu okkar til orku­vinnslu á þessum tíma um tæp­lega 600 gíga­vatt­stundir með því að end­ur­meta inn­rennsli til afl­stöðv­anna okkar. Þetta er næstum því ein með­al­virkjun að stærð. Þetta höfum við náð að nýta í okkar kerfi og þannig nýta okkar fjár­fest­ingar og auð­lind enn betur en áður sem er auð­vitað frá­bært.“

Meðalrennslið aukist um 11 prósent

Vegna hlýn­unar og auk­ins rennslis sam­fara bráðnun jökla hefur með­al­rennsli í raf­orku­kerf­inu auk­ist um um bil 11 pró­sent frá átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Þar af hefur reynst unnt að nýta um 9,3% til auk­innar vinnslu raf­orku í núver­andi virkj­unum Lands­virkj­unar.

„Þannig að við höfum aukið getu okkar til orku­vinnslu á þessum tíma um tæp­lega 600 gíga­vatt­stundir með því að end­ur­meta inn­rennsli til afl­stöðv­anna okkar. Þetta er næstum því ein með­al­virkjun að stærð.“
Gunnar Guðni Tómasson,
fram­kvæmda­stjóri vatns­afls hjá Lands­virkjun.
Á köldum klaka Selir athafna sig í jök­ulsár­lóni við rætur Breiða­merk­urs­jök­uls í suð­ur­hluta Vatna­jök­uls­þjóð­garðs.

Lands­virkjun hefur á teikni­borð­inu stækkun þriggja virkj­ana, Sig­öldu­virkj­unar, Hraun­eyja­virkj­unar og Vatns­fells­virkj­unar, m.a. í þeim til­gangi að nýta aukið rennsli vegna bráðn­unar jöklanna ofan þeirra til auk­innar orku­fram­leiðslu. Samkvæmt upp­lýs­ingum fyr­ir­tæk­is­ins mun aflaukn­ing í virkj­un­unum þremur auka sveigj­an­leika í orku­af­hend­ingu, m.a. vegna álagstoppa í kerf­inu.

„Ef horft er til næstu 15 ára er búist við því að rennsli til raf­orku­kerf­is­ins haldi áfram að aukast um tæp 5% en ein­ungis er unnt að nýta um þriðj­ung af þeirri rennsl­is­aukn­ingu í núver­andi kerfi þar sem afl er orðið tak­markað,“ stendur í nýrri umhverf­is­mats­skýrslu Lands­virkj­unar vegna áforma um stækk­unar Sig­öldu­stöðvar.

Óvissa sé í spám lengra fram í tím­ann og eru þær háðar því hvernig ganga mun að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu. „Lík­leg­asta atburða­rásin er þó sú að ef horft er lengra fram í tím­ann en næstu 15 ár þá mun rennsli hald­ast nokkuð stöðugt í næstu ára­tugi þar á eftir þangað til jöklar hafa minnkað það mikið að rennsli tekur að minnka.“

Eftirspurn minnkar á einu sviði en eykst á öðru

Vís­inda­nefndin bendir í skýrslu sinni á að þurrkar, breyt­ingar á úrkomu­dreif­ingu og hlut­falli rign­ingar og snævar í úrkomu innan árs­ins muni hafa áhrif á rekstur miðl­ana og vatns­afls­fram­leiðslu í fram­tíð­inni. Breyt­ingar á hvass­viðra­tíðni geti sömu­leiðis haft áhrif á rekstr­ar­ör­yggi vind­orku­vera, ef til þess kemur að þau verði reist á Íslandi.

Sum­ar­hlýnun geti hins vegar aukið mögu­leika á ræktun plantna sem nýta megi til orku­fram­leiðslu, bendir nefndin jafn­framt á.

Skafta­fells­jök­ull og Svína­fells­jök­ull. Efri mynd tekin 1920–1925 (ljós­mynd: Ólafur Magn­ús­son) og sú neðri árið 2012 (ljós­mynd: Aron Reyn­is­son). Jökl­arnir slitn­uðu hvor frá öðrum í kringum 1940. Við hörfun jökla hafa árfar­vegir tekið miklum breyt­ingum.

Hlýnun hér á landi gæti í fram­tíð­inni dregið úr eft­ir­spurn eftir orku til hús­hit­unar að mati vís­inda­nefnd­ar­innar en þrátt fyrir minnkun í með­al­notkun gætu sveiflur í veð­ur­fari aukið tíma­bundna álagstoppa. Þá gætu lofts­lags­breyt­ingar aukið eft­ir­spurn eftir raf­orku til kæli­m­iðla.

Þá telur nefndin að lofts­lags­breyt­ingar muni hafa áhrif á eft­ir­spurn eftir raf­orku. „Ólíkar for­sendur um umfang orku­skipta gera það að verkum að mis­mun­andi sviðs­myndir um orku­þörf vegna orku­skipta ná frá engri þörf á við­bótar raf­orku til ríf­lega tvö­föld­unar á raf­orku­fram­leiðslu, segir í skýrslu nefnd­ar­innar. „Mik­il­vægt er að umskipti í orku­fram­leiðslu byggi á vand­aðri ákvarð­ana­töku og miði að því að ná víð­tækri sam­fé­lags­sátt.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár