„Auðvitað viljum við byltingu“

Leik­hús­fræð­ing­ur­inn Jakob S. Jónsson hitti tvær leikkonur úr alþjóð­lega leik­hópnum Spindrift og ræddi verk hóps­ins, Them, sem vakið hefur athygli.

„Auðvitað viljum við byltingu“
Karla­veldið Verkið fjallar líka um konur sem verða að takast á við karllæg við­horf. Mynd: Anna Maggy

Sýningin hefur verið sex ár í vinnslu. Upphaf þeirrar vinnu hófst eftir að sumar okkar höfðu verið við nám í Rose Bruford College of Theatre and Performance, og gerðu eftir það sýn­ingu sem byggði á sögu Lewis Carroll um Lísu í Undra­landi,“ segir Bergdís Júlía Jóhanns­dóttir og Tinna Þorvalds Önnu­dóttir jánkar því, en þær eru íslenski hluti leik­hóps­ins sem telur alls sjö leikkonur frá Íslandi, Finn­landi og Noregi. „Them“ var í stöðugri þróun í mörg ár. „Við vorum með vinnslu­sýn­ingar víða, m.a. á Höfn í Horna­firði, Helsinki, Kaup­manna­höfn, Reykja­vík og London og alls staðar þró­að­ist verkið og varð hnit­mið­aðra og beitt­ara.“

Und­ir­rit­aður hitti þær Bergdísi og Tinnu einn sól­bjartan laug­ar­dags­morgun um síð­ast­liðin mán­aða­mót. Þær voru á kafi við und­ir­bún­ing þátt­töku Spindrift í Edin­borg­ar­há­tíð­inni sem hefj­ast skyldi innan skamms. Það má telj­ast til tíð­inda að finnsk-íslenskur leik­hópur sýni rúm­lega tutt­ugu sýn­ingar á jafn mik­il­vægri hátíð og hér um …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár