Á ferð­inni Um borð í leið 1 frá Firði í átt að mið­borg Reykja­víkur rétt fyrir klukkan átta að morgni. Leið 1 gengur á tíu mín­útna fresti á háanna­tíma. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stappað í Strætó

Fyrr­ver­andi vara­borg­ar­stjóri Vín­ar­borgar segir við Heim­ild­ina að í sínum huga sé eng­inn vafi um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá ráða­fólki að ráð­ast í upp­bygg­ingu Borg­ar­línu. Í dag eru sumar strætó­leiðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu svo þétt setnar á háanna­tímum á morgn­ana að það kemur fyrir að ekki sé hægt að taka far­þega um borð.

Rétt eins og götur höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er Strætó víða fullur á anna­tímum þessa dag­ana. Jóhannes Svavar Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó bs., segir í sam­tali við Heim­ild­ina að vagn­stjórar og far­þegar hafi látið vita af því að á vissum leiðum í mestu morg­un­ösinni séu vagnar það fullir að ekki sé hægt að taka fleiri far­þega um borð. Fólk þarf því að húka í strætó­skýlum og bíða eftir næsta vagni.

Jóhannes segir að svona sé ástandið oft­ast við skóla­byrjun á haustin. Síðan ein­hvern veg­inn leys­ist úr málum þegar líði á haustið, fólk flýti sínum ferðum eða seinki þeim eða mögu­lega finni sér annan ferða­máta en Strætó. Aðspurður segir hann að Strætó hafi ekki verið með sér­stakt starfs­fólk á helstu álags­leiðum til þess að benda fólki á að þjappa betur í vagn­inn. Að benda fólki á að þjappa sé í höndum vagn­stjór­anna.

Borgarlína 100 prósent rétt ákvörðun

Rétt eins og í Strætó …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár