Föst í Lónsvík Ferða­menn sem festu bíla­leigu­bíl sinn í Lóns­firði í sumar virt­ust hafa gaman af eigin óförum. Mynd: Heimildin

Enduðu hlæjandi utan vegar

Ferða­menn á Aust­ur­landi, sem festu bíl sinn í sandi í Lóns­firði eftir að hafa ekið út af veg­inum, virt­ust hafa gaman af eigin óförum. Aldrei hafa fleiri bíla­leigu­bílar verið skráðir á Íslandi en eig­andi bíla­leig­unnar sem leigði út bíl­inn segir tjónum fara fækk­andi.

Ferða­menn komust í hann krappan í Lóns­firði í Lónsvík í sumar þegar bíll þeirra fest­ist í sandi. Ökumaður bíls­ins ók út af veg­inum sem fór ekki betur en svo að bíll­inn sat fastur. Ekki liggur fyrir hvað ferða­löng­unum gekk til en þeir ráku upp hlátur þegar ljóst var að bíll­inn var fastur. 

Ferða­menn­irnir voru á nýjum bíla­leigu­bíl sem er í eigu Blue Car Rental ehf. Magnús Sverrir Þor­steins­son, stofn­andi og eig­andi Blue Car Rental, hafði ekki heyrt af vand­ræðum þess­ara til­teknu ferða­manna þegar Heim­ildin hafði sam­band en segir tjónum almennt fara fækk­andi. 

„Við erum með færri tjón heldur en í fyrra en við höfum lent í fleiri stærri tjónum, verri tjónum,“ segir Magnús. Við­skiptin hafa þó verið minni sam­an­borið við síð­asta sumar. „Sumarið er ekki búið að vera eins gott og í fyrra en nokkuð fínt. Það er greini­legt að rút­urnar eru orðnar sterk­ari en í fyrra, það hefur aðeins breyst eftir Covid. En þetta er bara fín­asta sumar og heilt yfir hefur gengið vel,“ segir Magnús. 

Aldrei fleiri bílaleigubílar skráðir en nú 

Ferða­mönnum fer fjölg­andi en alls fóru 275 þús­und erlendir ferða­menn um Kefla­vík­ur­flug­völl í júlí sam­kvæmt tölum frá Ferða­mála­stofu. Tölur fyrir ágúst liggja ekki fyrir. Erlendir ferða­menn hafa aðeins einu sinni verið fleiri í júlí­mán­uði, á met­ferða­manna­ár­inu 2018 þegar þeir voru tæp­lega 279 þús­und. 

30.540
skráðir bíla­leigu­bílar í umferð í júlí

Rétt eins og ferða­mönnum hefur skráðum bíla­leigu­bílum fjölgað jafnt og þétt og voru 30.540 í ágúst, sam­an­borið við 24.484 á sama tíma í fyrra. Áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á í árs­byrjun 2020 voru rúm­lega 20 þús­und bíla­leigu­bílar skráðir hér á landi en þeim fækk­aði ört og voru 12.613 í apríl 2021. Síðan þá hefur þeim farið ört fjölg­andi og hafa aldrei verið jafn margir og nú. 

Ferða­menn­irnir í Lóns­firði óku utan vegar, hvort sem þeir gerðu sér grein fyrir því eða ekki. Magnús segir til­kynn­ingar um utan­vega­akstur ekki algengar. „En þær koma alltaf inni á milli.“ Hann segir atvikin sem bíla­leigur fá fregnir af margar og sumar mun skrýtn­ari en utan­vega­akstur. „Við lendum í ótrú­leg­ustu atvikum, en auð­vitað eru ein­stak­lingar inni á milli sem ætla sér að skemma, við fáum alveg svo­leiðis kúnna til okkar líka, því miður.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár