Er rétti tíminn til að fara yfir í verðtryggt lán?

Ef marka má for­spá Seðla­banka Íslands verða verð­tryggð hús­næð­is­lán mun hag­stæð­ari í heild­ina en óverð­tryggð lán næstu miss­eri. Þar með er þó ekki öll sagan sögð.

Greiðslur af óverð­tryggðum hús­næð­is­lánum eru orðnar svo háar að 40 ára óverð­tryggt lán jafn­gildir jafn­háu 12 ára verð­tryggðu láni í greiðslu­byrði. Ef verð­bólgu­spá Seðla­banka Íslands fer nálægt því að ræt­ast kemur lán­tak­andi mörgum millj­ónum króna betur út úr verð­tryggða lán­inu en því óverð­tryggða á núver­andi föstum vöxtum. Færa má rök fyrir því að þau sem ætla að taka verð­tryggt lán ættu að gera það snemma í ágúst.

Spá minni verðbólgu

Sögulega eru vextir á óverð­tryggðum hús­næð­is­lánum sér­stak­lega háir á Íslandi, eða upp undir 10,5% hjá Íslands­banka. Á sama tíma er hægt að fá vexti á verð­tryggð lán niður í 2,65% hjá Íslands­banka og enn lægri hjá ýmsum líf­eyr­is­sjóðum, fyrir sjóðs­fé­laga. Til þess að verð­tryggða lánið sé óhag­stæð­ara en óverð­tryggða lánið þarf verð­bólgan, sem hækkar höf­uð­stól verð­tryggðra lána, því að vera hátt í 8%. Í dag er verð­bólgan 7,6% á árs­grund­velli. En það segir ekki alla sög­una, því verð­bólga er mæl­ing …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár