Skatttekjur metnar 69 milljörðum lægri í fyrra vegna breytinga í tíð núverandi stjórnar

Í svari sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur sett fram á vef Alþingis er rakið hvaða skatt­kerf­is­breyt­ingar rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur ráð­ist í og hvernig þær hafa haft áhrif á tekju­öflun rík­is­sjóðs. Tekju­skatts­lækk­unin sem sam­þykkt var 2019 er helsti lið­ur­inn í þeim breyt­ingum sem núver­andi rík­is­stjórn hefur inn­leitt, en heild­ar­á­hrifin voru metin á 69,4 millj­arða til lækk­unar á tekjum rík­is­sjóðs á síð­asta ári.

Skatttekjur metnar 69 milljörðum lægri í fyrra vegna breytinga í tíð núverandi stjórnar
Skatta­mál Helstu breyt­ing­arnar sem rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur gert á skattaum­hverf­inu á Íslandi frá því að þessi mynd var tekin árið 2017 hafa haft þau áhrif, sam­kvæmt mati fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, að skatt­tekjur rík­is­sjóðs voru rúm­lega 69 millj­örðum lægri árið 2022 en ella hefði orðið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Heild­ar­á­hrif helstu skatt­kerf­is­breyt­inga sem stjórn­völd hafa ráð­ist frá því að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum haustið 2017 voru metin á rúma 69 millj­arða króna til lækk­unar á tekjum rík­is­sjóðs á síð­asta ári. 

Ef sér­stakar aðgerðir stjórn­valda í skatta­málum sem gripið var til vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins eru frá­taldar námu áhrif breyt­inga sem gerðar hafa verið á skatta­lögum frá 2017 54,1 millj­arði, til lækk­unar á þeim tekjum rík­is­sjóðs sem ætla má að hefðu inn­heimtst í fyrra ef ekki væri fyrir þær breyt­ingar sem gerðar hafa verið á lögum. 

SpurðiDagbjört Hákon­ar­dóttir vara­þing­maður Sam­fylk­ingar lagði fram fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um skatt­breyt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar í upp­hafi árs.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari frá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn sem Dagbjört Hákon­ar­dóttir vara­þing­maður Sam­fylk­ingar lagði fram á þingi. Í svar­inu frá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra er þess getið að taflan, þar sem metin áhrif af hverri og einni skatta­breyt­ingu er sett fram, sýni ein­ungis …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár