Telur Bankasýsluna ekki hafa gert nein mistök

Þegar for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins er spurður hvort stofn­unin hafi gert ein­hver mis­tök við útboðið á Íslands­banka er svarið ein­falt. „Nei.“

„Frá okkar sjón­ar­hóli þá leiddi fram­kvæmdin til frá­bærrar fjár­hags­legrar nið­ur­stöðu rík­is­sjóðs og far­sæls útboðs,“ segir Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins. 

Hann er enn á þeirri skoðun að útboð Íslands­banka á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum hafi verið far­sælasta útboð Íslands­sög­unnar, þrátt fyrir að skýrsla Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) um útboðið hafi leitt í ljós alvar­leg lög­brot af hálfu Íslands­banka.

Telur þú að þið hafið gert ein­hver mis­tök?

„Nei,“ segir Jón Gunnar. 

Banka­sýslan ann­að­ist útboðið ásamt Íslands­banka en í skýrslu FME kemur fram að bank­inn hafi veitt Banka­sýsl­unni vill­andi upp­lýs­ingar og blekkt stofn­un­ina.

Rík­is­stjórnin sagð­ist í kjöl­far útboðs­ins ætla að leggja Banka­sýsl­una niður. Það hefur þó ekki raun­gerst og seg­ist Jón Gunnar ekki vita hvort það muni ger­ast. 

Er enn þörf á ykkur?

„Ég ætla ekki að leggja mat á það en við erum kall­aðir fyrir þing­nefnd svo það hlýtur að vera eitt­hvað vit í þvi sem við erum að leggja fram,“ segir Jón Gunnar og vísar til fundar efna­hags- og við­skipta­nefndar sem hann sat fyrir svörum á í dag. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Stikkfrí sagði hann .....og sannar hversu vitfyrrt viðhorfi eru.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár