Atvinnuþátttaka flóttamanna frá Venesúela er meiri en Íslendinga

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur sagt að flótta­menn frá Venes­ú­ela komi meðal ann­ars til Íslands til að setj­ast upp á vel­ferð­ar­kerfið. Þing­mað­ur­inn Birgir Þór­ar­ins­son hefur einnig sagt þetta. Gögn frá félags­mála­ráðu­neyt­inu sýna hins vegar að atvinnu­þátt­taka flótta­manna frá Venes­ú­ela er 86,5 pró­sent.

Atvinnuþátttaka flóttamanna frá Venesúela er meiri en Íslendinga
Hærri atvinnu­þátt­taka en hjá Íslend­ingum Í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að atvinnu­þát­taka Venes­ú­ela­búa sem fengið hafa alþjóð­lega vernd á Íslandi sé 86,5 pró­sent en þetta er hærra hlut­fall en atvinnu­þát­taka Íslend­inga á aldr­inum 18 til 67 ára. Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur sagt að fólk frá Venes­ú­ela komi til Íslands og setj­ist á vel­ferð­ar­kerfið. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­þátt­taka flótta­manna frá Venes­ú­ela sem komu til Íslands á árunum 2018 til 2022 er hærri en atvinnu­þátt­taka Íslend­inga. Samkvæmt félags- og vinnu­mark­aðsáðu­neyt­inu voru 86,5 pró­sent þeirra 647 Venes­ú­ela­búa sem fengu alþjóð­lega vernd hér á landi á tíma­bil­inu í vinnu. Um er að ræða fólk á aldr­inum 18 til 67 ára. Sam­bæri­leg tala fyrir íslenska rík­is­borg­ara er 80 til 81,5 pró­sent, sam­kvæmt svari ráðu­neyt­is­ins. Þetta þýðir að flótta­menn frá Vensúela sem hingað komu á þessum árum eru lík­legri til að vera í vinnu en íslenskir rík­is­borg­arar á sama aldri. 

„Gögnin sýndu að þremur árum eftir vernd­ar­veit­ingu var atvinnu­þátt­taka rík­is­borg­ara frá Venes­ú­ela 86,5%“
Úr svari félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins

Gögn byggja á tæplega 650 flóttamönnum

Þessar upp­lýs­ingar byggja á gögnum um 647 ein­stak­linga frá Venes­ú­ela sem fengu alþjóð­lega vernd á Íslandi frá 1. jan­úar árið 2018 til 1. júlí árið 2021. Upp­lýs­ing­arnar koma fram í vinnu­skjali sem ráðu­neytið tók saman síð­ast­liðið haust.

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SO
    Sigurður Oddgeirsson skrifaði
    Kristín Guðnadóttir.
    Ég geri því skóna, að þú vitir, að ég á við hæstvirtan forsætisráðherra, frú Katrínu Jakobsdóttur.
    Á mynd sem birtist af ráðamönnum í Evrópu fyrir nokkru, fannst mer íslenzki forsætisráðherrann líkjast fermingarbarni, sem með bros á vör, beið eftir fermingargjöfunum.
    1
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta Folk er harðduglegt til vinnu þar sem eg kem i kronuni i Hafnafirði og hja Netto i Mjodd er folk fra Venesuela og viðar td Iran. Islendingar vilja ekki þessa vinnu a kvöldin og Næturvaktir. Þessi Nasizta Blus hja x-D er ansi kvimleður. Rikistjornin er Ruin trausti Landsmanna og ætti að Snauta fra Völdum
    0
  • SO
    Sigurður Oddgeirsson skrifaði
    „Útlendingastofnun hætti hins vegar að veita Venesúelabúum sjálfkrafa vernd og hóf endurskoðun á matinu á ástandinu í landinu sem leitt hefur til þess að fólk frá landinu fær ekki sjálfkrafa stöðu flóttamanna hér eins og í fyrra. ‟
    Hvernig í ósköpunu geta þessir heimalingar í Útlendingastofu lagt mat á pólitískt ástand í Venezuela? Hvers vegna gefa þeir ekki upp, hvaða skýrslur erlendra starfshópa, þeir hafa lesið í „rannsókninni“? „Sáuði hvernig ég tók hann!“, sagði Jón sterki forðum. Sama hvar litið er á alþingismenn (Dómsmálaráðherra gott dæmi) eða embættismenn i 3ju og 4ju goggunarröð, þá blasir vð hæfnisskortur eða áþreifanlegt vanhæfi. Hvernig á annað að vera, þegar „þjóðin“ treystir á „fermingarstelpu“ til að leiða ríkisstjórn og embættismannaþvöguna?
    1
    • Kristín Guðnadóttir skrifaði
      Hvaða „fermingarstelpu”, þ.e. hvað áttu við?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár