Lífshættuleg meðvirkni

Ástvinir fólks með vímu­efna­röskun glíma margir við alvar­legan heilsu­brest. Í rann­sókn á líðan aðstand­enda alkó­hólista kemur fram að margir þeirra séu alvar­lega kvíðnir og þung­lyndir. Algengt sé að aðstand­endur grein­ist með mígreni, vefja­gigt og maga­sár. Heim­il­is­læknir segir með­virkni illa skil­greindan sjúk­dóm en gríð­ar­legt heil­brigð­is­vanda­mál sem kalli á mikla athygli og skiln­ing.

Lífshættuleg meðvirkni
Kerfið verði að grípa þennan hóp Jóna Margrét Ólafs­dóttir, lektor í félags­ráð­gjöf við HÍ segir að um sé að ræða tug­þús­undir fjöl­skyldna sem sé hætt við að veikj­ast and­lega og lík­am­lega. Mynd: HÍ

„Eftir að ég eign­að­ist seinna barnið mitt, eftir að hafa búið með eig­in­manni sem stöðugt jók áfeng­is­neysl­una, eftir að hafa þurft, alein, að halda öllu gang­andi heima fyrir, bug­að­ist ég. Læknir greindi mig með vefja­gigt og maga­sár. Ein­kennin versnuðu þegar mað­ur­inn minn var að drekka, sem var flestar helgar. Þannig að ég fann stöðugt til.“

Svona lýsir einn af þátt­tak­endum í rann­sókn Jónu Mar­grétar Ólafs­dóttur, lekt­ors við félags­ráð­gjafa­deild Háskóla Íslands, ástandi sínu sökum með­virkni. Áður en hún fest­ist í hlut­verki aðstand­anda hafi hún verið heilsu­hraust enda ávallt hugað vel að heilsu sinni. Hægt og rólega hætti hún því og hægt og rólega veikt­ist hún. 

Rann­sóknin Dokt­ors­rann­sóknin sýndi alvar­leg áhrif vímu­efna­vanda á ást­vini. Þeir veikj­ast jafn­vel alvar­lega.

Rann­sóknin var dokt­ors­verk­efni Jónu Mar­grétar og leit dags­ins ljós fyrir tæpum þremur árum. Fáar rann­sóknir hafa verið gerðar á Íslandi á líðan aðstand­enda fólks með …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gudrun Petursdottir skrifaði
    Góð grein og þörf. Ég hef sjálf verið aðstandandi frá því ég var barn, og get staðfest að það hefur mikil áhrif á, bæði andlega og líkamlega heilsu, langt fram eftir aldri. Mikil spenna í líkamanum, magavandamál, þunglyndi og vöðvabólga sem verður krónísk. Jafnvel löngu eftir að sá með vandann sé farinn úr lífi manns.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár