„Vonandi falla aldrei nein snjóflóð“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og loft­lags­ráð­herra segir að á þeim stöðum sem á eftir að byggja ofan­flóða­varnir falli von­andi aldrei nein snjó­flóð. Í mars­mán­uði féllu snjó­flóð í Nes­kaup­stað á svæði sem ekki var búið að verja. Íbúar kalla eftir því að rík­is­stjórnin setji varn­ar­garð­inn í for­gang og að hann verði boð­inn út næsta haust. Guð­laugur segir til skoð­unar hvort af því verði.

Hljóta að vera forgangsmál
Hljóta að vera for­gangs­mál Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-orku- og lofts­lags­ráð­herra, er sá ráð­herra sem ber ábyrgð á ofan­flóða­vörnum. Hann segir þær „hljóta að vera for­gangs­mál“. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, seg­ist skilja það að það fari fyrir brjóstið á fólki að sér­stakt gjald sem inn­heimt er til ofan­flóða­varna, hafi ekki skilað sér þangað. „Það var nú sem betur fer veru­lega bætt í þetta og er ennþá verið að því. En það er mjög mikið eftir,“ segir hann. Árið 2017 voru gerðar breyt­ingar á lögum um opin­ber fjár­mál sem urðu til þess að inn­heimta ofan­flóða­gjalds rennur beint í rík­is­kass­ann og svo útdeilt á fjár­lögum hvers árs. Guð­laugur segir það hafa verið liður í því að styrkja „fjár­stjórn­ar­vald Alþingis.“

Sjóð­ur­inn var stofn­aður til að fjár­magna ofan­flóða­varnir um land allt eftir mann­skæð snjó­flóð urðu í Súðavík og Flateyri árið 1995 þar sem byggð var ekki varin. Í sam­tali við Heim­ild­ina var ráð­herra tíð­rætt um að frá …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár