Formaður Ofanflóðanefndar segir snjóflóðavarnir spurningu um „heppni og óheppni“

Elías Pét­urs­son, nýskip­aður for­maður Ofan­flóða­nefndar, segir snjó­flóða­varnir hljóta að vera spurn­ing um „heppni og óheppni“ en nefndin sem hann er í for­svari fyrir sem for­maður sér um að taka afstöðu til til­lagna sveit­ar­stjórna um snjó­flóða­varnir og ráð­staða fé úr ofan­flóða­sjóði til að byggja þær.

Formaður Ofanflóðanefndar
Formaður Ofan­flóða­nefndar Elías Pét­urs­son segir ekki nóg gert til þess að verja íbúð­ar­byggð á Íslandi fyrir snjó­flóðum. Hann segir nefnd­ina ekki lengur hafa aðgengi að sínum eigin fjár­málum að nú sé Alþingi með ákvörð­un­ar­vald um heild­ar­fjár­út­hlutun eftir að lögum var breytt 2015. Mynd: Úr einkasafni

Nýskip­aður for­maður Ofan­flóða­nefndar, Elías Pét­urs­son, segir alla sem koma að snjó­flóða­vörnum á Íslandi séu „af vilja gerðir til að gera sitt besta og láta hluti ekki fara illa.“

Ofan­flóða­nefnd, sem Elías fer fyrir, á sam­kvæmt lögum að fjalla um og taka afstöðu til til­lagna sveit­ar­stjórna að varn­ar­virkjum fyrir hættu­svæði. Sveita­stjórnin á svo að ann­ast fram­kvæmdir við varn­ar­virki í sam­ræmi við ákvörðun Ofan­flóða­nefndar sem svo sér um að útdeila pen­ingum til þeirra verk­efna.

Allir Íslend­ingar borga í Ofan­flóða­sjóð með sér­stöku gjaldi, sem er inn­heimt af öllum bruna­tryggðum hús­eignum á land­inu. Það gjald nemur 0,3 pró­sentum af vátrygg­ing­ar­verð­mæti þeirra eigna og nefn­ist ofan­flóða­gjald.  Nefndin var sett á eftir mann­skæð flóð í Súðavík í jan­úar árið 1995 þar sem fjórtán manns fór­ust, þar af átta börn, og annað snjó­flóð sem féll á Flateyri í októ­ber sama ár þar sem tutt­ugu manns fór­ust.

Í leið­ara Morg­un­blaðs­ins sem birt­ist 18. jan­úar 1995, tveimur dögum eftir  flóðið í Súðavík, segir: „Við höfum byggt upp almanna­varnir, sem eru til fyr­ir­myndar um margt, en eigum trú­lega ýmis­legt ólært þegar kemur að hættu­mati og snjó­flóða­vörnum“ og að mik­il­vægt sé að „sam­hæfa vel starf þess­ara aðila“. Var þar átt við félags­mála­ráðu­neyti, umhverf­is­ráðu­neyti, Almanna­varnir, Veð­ur­stofu og sveita­stjórnir.

Fjár­hæðin sem almenn­ingur greiðir sér­stak­lega í Ofan­flóða­sjóð, burt­séð frá öðrum sköttum, fer ekki beint inn í sjóð­inn. Fjár­hæðin fer beint inn í rík­is­sjóð og því er Ofan­flóða­nefnd upp á fjár­veit­ing­ar­vald Alþingis, á fjár­lögum hvers árs, komin. Aðspurður að því hvaða skoðun for­maður nefnd­ar­innar hefur á því fyr­ir­komu­lagi segir Elías: „Ég er ekki búinn að vera nógu lengi til þess að hafa neina rosa skoðun.“ Elías er nýtek­inn við sem for­maður Ofan­flóða­nefndar um nýliðin mán­að­ar­mót.

„Það þarf að gera betur í vörnum“
Elías Pét­urs­son
for­maður stjórnar Ofan­flóða­nefndar

Elías segir ekki nóg vera gert til þess að verja íbúða­byggð á Íslandi fyrir snjó­flóðum, það sé „alltaf hægt að gera betur,“ og aðspurður að því hvað þyrfti að gera betur svarar hann: „Það þarf að gera betur í vörnum.“ Elías tekur jafn­framt fram að frá því að Ofan­flóða­nefnd tók til starfa hafi verið fram­kvæmt fyrir 34 millj­arða króna og áætlað sé að eftir sé að fram­kvæma fyrir aðra eins upp­hæð. 

Gjöld sjóðsins lægri en tekjur

Í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar, þáver­andi þing­manns Mið­flokks­ins, um Ofan­flóða­sjóð árið 2021, segir að rétt sé að taka fram að útgjöld Ofan­flóða­sjóðs „sam­an­standa af fleiru en ein­ungis fram­lögum til fram­kvæmda. Má þar nefna upp­kaup á mann­virkjum á hættu­svæðum, afskriftir lána til sveit­ar­fé­laga, gerð hættu­mats og fleira“. Í svar­inu segir einnig að á árunum 2009 til 2019 hafi tveir þriðju hlutar útgjalda sjóðs­ins verið styrkir til fram­kvæmda við varn­ar­mann­virki.

Í sama svari kemur fram að árið 2018 hafi tekjur af ofan­flóða­gjaldi, bæði inn­heimtar tekjur og vaxta­tekjur, verið 2,6 millj­arðar. Í svar­inu kemur fram að útgjöld sjóðs­ins eru í raun mun lægri en ofan­flóða­gjaldið er.

Í skýrslu Ofan­flóða­nefndar fyrir árið 2018 til 2021 kemur fram að rík­is­fram­lag til sjóðs­ins hafi verið rúm­lega 1,1 millj­arður. Ári síðar var nettó­staða sjóðs­ins, það sem sjóð­ur­inn átti, rétt tæpir 14 millj­arðar. Elías segir að það verði að horfa til þess að það hafi verið tekin ákvörðun um að setja sjóð­inn inn í rík­is­sjóð og þannig sé ekki hægt að tala um „nettó­stöðu“ neins sjóðs.   

Hætta legið fyrir í 20 ár

Í lok mars­mán­aðar féll snjó­flóða­hrina á Nes­kaup­stað. Eitt flóð­anna féll úr Nesgili, það stærsta sem hefur fallið úr því gili, en stór flóð hafa raunar fallið þar áður. Þannig féllu mann­skæð flóð í Nes­kaup­stað árið 1974 þar sem tvö flóð féllu úr Nes-og Bakka­giljum, tveimur sam­liggj­andi giljum í fjall­inu fyrir ofan byggð­ina. Þar lét­ust tólf manns. 

Svæðið undir Nes-og Bakka­gili er algjör­lega óvarið fyrir snjó­flóðum þrátt fyrir að svæðið hafi verið metið og skil­greint sem eitt af hættu­leg­ustu svæð­unum í Nes­kaup­stað þegar hættu­mat var gert þar árið 2001.

Í hættu­mat­inu er bænum skipt í þrjú svæði eftir hættu, A, B og C svæði, og C- svæðið metið hættu­leg­ast og mestar líkur á að mann­tjón verði þar. Önnur svæði í bænum eru metin þannig að ekk­ert þurfi að aðhaf­ast. Á þessu svæði, C-svæði, eru sam­kvæmt hættu­mat­skorti Nes­kaup­staðar 10 hús eða 26 íbúðir. Á svæði B undir Nes- og Bakka­giljum eru 30 hús og 39 íbúðir ásamt Fjórð­ungs­sjúkra­hús­inu. Mikið tjón varð á fjöl­býl­is­húsi við Starmýri 17 þegar flóð féll á það 27. mars síð­ast­lið­inn. Ekki varð mann­tjón en fólk varð hins vegar fyrir meiðslum. 

„Ég segi bara raun­veru­lega, ég veit ekki hvort þetta sé hættu­leg­asta svæðið á svæð­inu. Veist þú það?“
Elías Pét­urs­son
for­maður stjórnar Ofan­flóða­nefndar.

Elías segir að það taki tíma að reisa varn­ar­garða þegar hann er spurður að því hvers vegna væri ekki búið að reisa varn­ar­garð ofan við svæði B, þegar aug­ljóst var að hætta var á svæð­inu. „Ég veit ekki betur en að það sé í skipu­lags­ferli núna hjá sveit­ar­fé­lag­inu,“ segir Elías og bætir við: „Þetta er miklu stærra heldur en að það sé hægt að spyrja núna af hverju er ekki búið með þetta. Því það er búið að vera vinna umtals­verða vinnu.“

En það er sann­gjörn spurn­ing vegna þess að það hefur legið fyrir í meira en 20 ár að þetta svæði undir Nes-og Bakka­gili í Nes­kaup­stað sé hættu­leg­asta svæðið.

„Nú ert þú að segja mér eitt­hvað sem ég veit ekki. Ég segi bara raun­veru­lega, ég veit ekki hvort þetta sé hættu­leg­asta svæðið á svæð­inu. Veist þú það?“ 

Í svari frá Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Heim­ild­inni um hví ekki hafi verið búið að byggja varn­ar­mann­virki ofan við byggð­ina í Nes­kaup­stað þar sem flóðið féll,  segir hann að búið sé að reisa varn­ar­virki á þremur stöðum í bænum „sem sam­kvæmt hættu­mati verið talin algeng­ustu snjó­flóða­far­vegir í hlíð­inni“. Í svar­inu segir enn­fremur að verk­efnum væri for­gangs­raðað eftir því hættu­mati.

Í hættu­mat­inu frá 2001 er tekið fram að „í ljósi sög­unnar“ stafi íbúða­byggð neðan við Trölla­gil og Dranga­gil mest hætta af snjó­flóðum og því hafi verið ákveðið að hefj­ast handa við varnir í þeim bæj­ar­hluta. Síðan hafa liðið meira en 20 ár og í milli­tíð­inni hefur verið byggður varn­ar­garður neðan við Urð­ar­botn en Nes-og Bakkagil skilin eftir.

Elías vísar í sömu for­gangs­röðun og sama hættu­mat. „Það er sama svar og ég myndi gefa þér því ég veit ekk­ert annað. Þá segi ég bara aftur, tal­aðu við Veð­ur­stof­una.“

En þið eruð með yfir­um­sjón með þessu, þessi nefnd, og þessi sjóður var settur á til að verja íbúa lands­ins fyrir snjó­flóðum

„Ég er ekki sér­fræð­ingur. Forverar mínir hafa treyst á mat ann­arra. Ég veit að það er búið að vinna gríð­ar­lega vinnu á síð­ustu árum við að kort­leggja þetta betur og um er að ræða mjög háar fjár­hæðir.“

Við getum alltaf sagt að við hefðum getað gert eitthvað fyrr

Samkvæmt svari frá umhverf­is­ráð­herra kemur fram að áætlað sé að hefja fram­kvæmdir við varn­ar­garða undir Nes-og Bakka­giljum á árunum 2025-26 sem hefðu getað komið í veg fyrir það tjón sem varð nú í lok mars­mán­aðar þegar flóðin féllu í Nes­kaup­stað. „Við getum alltaf sagt að við hefðum getað verið búin að gera eitt­hvað fyrr,“ segir Elías og bendir að á varn­ar­mann­virki séu í skipu­lags­ferli hjá sveit­ar­fé­lag­inu. 

En er þá ekki ykkar að fara yfir hættu­matið, fara yfir öll gögn og taka afstöðu til þess að það sé ekki verið að gera þetta nógu hratt?

„Nei. Við höfum ekki aðgengi að fjár­mál­unum þannig, við erum ekki með ákvörð­un­ar­valdið um heild­ar­fjár­út­hlutun. Ábyrgðin á heildar fjár­veit­ingu er hjá Alþingi. Þetta er í rík­is­sjóði og eng­inn okkar í stjórn, ekk­ert okkar, er sér­fræð­ingur í ofan­flóðum.“ 

Hver er til­gangur ykkar þá?

„Til­gangur okkar er að taka ákvarð­anir sem eru byggðar á ráð­gjöf sér­fræð­inga. Þetta er bara eins og er í öllu. Okkar til­gangur er að taka afstöðu en hún á að vera byggð á sér­fræði­þekk­ingu ann­arra.“ 

„Það er ein­fald­lega þannig að ef eitt­hvað ger­ist er alltaf hægt að segja að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir það. Eða oft­ast.“
Elías Pét­urs­son
for­maður stjórnar Ofan­flóða­nefndar

En nú hefur sér­fræði­þekk­ing sýnt að þetta svæði sé hættu­legt og það fór flóð inn á þetta svæði í mars, það hefði verið hægt að koma í veg fyrir það, með alla þessa fjár­muni og allan þennan tíma sem hefur liðið frá því að ljóst væri að þetta væri hættu­legt svæði, það hlýtur að hafa verið hægt að koma í veg fyrir þetta?

„Algjör­lega, alveg eins og menn hefðu verið búnir að reisa garða ann­ar­staðar þar sem fallið hefur flóð. Það er ein­fald­lega þannig að ef eitt­hvað ger­ist er alltaf hægt að segja að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir það. Eða oft­ast.“

En hefði raun­veru­lega ekki verið hægt að koma í veg fyrir þetta?

„Jú, gefur það ekki auga leið. Ef það verið búið að reisa garða þá hefði flóðið ekki náð í byggð.“ 

Veit ekki hver ber ábyrgð

Spurður hvort það sé ekki á ábyrgð Ofan­flóða­nefndar að ekki hafi verið búið að reisa snjó­flóða­varn­ar­mann­virki ofan við svæðið á Nes­kaup­stað þar sem flóðin féllu í síð­asta mán­uði svarar Elías:„Ég ætla ekki að svara því þannig“.

Hver ber þá ábyrgð á því?

„Nú langar þig að hengja ein­hvern.“ 

Mig langar ekki að hengja neinn mig langar að skilja raun­veru­lega…

„Raun­veru­leik­inn er bara að það er ákveðið sam­hengi á milli pen­inga, þekk­ingar, það er sam­hengi milli þess hvað er mikið til af verk­tökum til að vinna. Það er alls­konar hlutir, skipu­lags­lög sem spila inn í. Allir sem koma að þessu eru klár­lega af vilja gerðir til að gera sitt besta og láta hluti ekki fara illa. Allir sem koma að þessu. Þetta get ég sagt þér haf­andi verið hinum megin við borðið sem bæj­ar­stjóri í Siglu­firði. Það eru allir að gera sitt besta.“ 

Hann bætir við að eitt sem verði að vera tekið með inn í mynd­ina sé að „nátt­úran breyt­ist“ og það verði að taka nátt­úruvá með inn í umræð­una. „Allt hefur þetta áhrif á hvað ger­ist. Við erum að lifa breytta tíma.“ 

Þessar upp­lýs­ingar hafa samt legið fyrir í meira en 20 ár. 

„Já og ég get ekki svarað fyrir það.“

Hver á að svara fyrir það?

„Þú ert í leit að ein­hverri ábyrgð.“

Það hlýtur ein­hver að bera ábyrgð?

„Jájá.“ 

Er það sveit­ar­fé­lagið, eru það sér­fræð­ing­arnir?

„Ég veit ekki. Ég veit ekki hvern þú getur dregið til ábyrgðar, fjár­veit­ing­ar­valdið? Ekki nógu margir verk­takar, við ekki nógu stór þjóð.“ 

Ekki nógu stór þjóð, hvernig kemur það inn í þetta?

„Það er bara ákveðið magn til af pen­ingum í land­inu og það eru allir að kalla eftir þeim.“ 

Ef ég ætla að kom­ast að því af hverju það er ekki búið að byggja varn­ar­garð undir Nes- og Bakka­giljum, er þá þitt svar að sveit­ar­fé­lagið þyrfti að svara því?

„Nei. Ég get ekki sagt það. Ég get bara sagt þér hvað er í gangi núna. Þú ert að spyrja af hverju það var ekki gert fyrir 5 árum eða eitt­hvað álíka. Ég get ekki svarað því.“

Hver gæti svarað því? Er það for­veri þinn?

„Veistu það ég ætla að við­ur­kenna ég veit það ekki því þarna er ein­hver for­gangs­röðun að baki (…) Það voru fram­kvæmdir þarna, voru þær ekki að klár­ast, garður fyrir ekk­ert svo löngum tíma síðan? Ég skildi það þannig að það er ekki langt síðan síð­ustu fram­kvæmdir voru kláraðar. Ef flóðið hefði komið þar niður núna værir þú að eiga sam­tal við mig á hvaða for­sendum? Ef menn hefðu ákveðið að fara hinum megin. Þetta hlýtur alltaf að vera spurn­ing um eig­in­lega heppni og óheppni.“ 

Er þetta spurn­ing um heppni og óheppni ef það liggur fyrir mat á hættu í 20 ár?

„Veistu það að ég get ekki svarað því.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Íslenska stjórnsýsluþvælan. Heimildin fær kannski bjartsýnisverðlaun fyrir að reyna að fá skiljanleg svör.það eru bara allt of margir á allt of háum launum sem hafa allt of mikla hagsmuni af því að þvæla allt nógu mikið hjá hinu opinbera. Allur tíminn hjá flestum fer í að réttlæta tilverurétt sinn. Held reyndar að allir viti þetta það á bara ekkert að gera í því.
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Þessi grein er áhugaverð. Hún lýsir ótrúlegum barnaskap. Það er eins og maðurinn hafi ekki hugmynd um hvað hann á að gera. Ofanflóðanefnd á væntanlega að taka saman allar upplýingar um þá hættu sem kann að vera fyrir hendi og henni ber væntanlega að koma þessum upplýsingum til þeirra sem ráða fjármaginu. Ábyrgðin er þá hjá þeim sem ræður fjármagninu. Hver það er skiptir ekki máli ef hann standur undir ábyrgðinni.
    Ofanflóðanefndin þarf að geta sannað að hún hafi varað við hættunni samkvæmt þekktum staðreyndum og losnar þá við ábyrgðina. Þetta hefur ekkert með heppni eða óheppni að gera. Auðvitað geta alltaf orðið slys en menn verða að geta sagt að þeir hafi gert allt sem mögulegt var til að koma í veg fyrir þau.
    1
  • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
    Magnað viðtal sem dregur -ískallt- fram þá nöturlegu staðreynd að enginn vill bera ábyrgð þegar kemur að náttúruvá.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár