Skósveinn Pútíns

Rúss­neskur vís­inda­maður sem afplánar dóm í dönsku fang­elsi starf­aði náið með starfs­mönnum rúss­neska sendi­ráðs­ins í Danmörku. Hann stal leyni­legum upp­lýs­ingum, m.a frá Danska tækni­há­skól­anum, og kom þeim í hendur Rússa.

Skósveinn Pútíns
Margt á huldu Sú spurn­ing hlýtur að vakna hvernig á því standi að maður eins og Alexey Niki­forov velur að ger­ast sendi­sveinn og upp­lýs­inga­þjófur Rússa. Vel vit­andi að með því hætti hann starfs­frama sínum og jafn­framt mögu­leik­anum á að búa í Danmörku, þar sem hann vildi vera. Mynd: Twitter

Árið 2008 flutti Alexey Niki­forov, 23 ára rúss­neskur efna­verk­fræð­ingur, til Kaup­manna­hafnar. Hann hafði þá fyrir skömmu lokið verk­fræði­námi í  Moskvu, með góðum vitn­is­burði og hafði fengið inn­göngu í dokt­ors­nám við Danska tækni­há­skól­ann, DTU. Alexey sótt­ist námið vel og þegar hann hafði lokið dokt­ors­nám­inu bauðst honum tíma­bundin staða rann­sókna­pró­fess­ors við skól­ann. Hann sagði sam­starfs­fólki sínu við DTU að hann hygð­ist ekki flytja aftur til Rúss­lands, sér lík­aði vel í Danmörku.

Að sögn sam­starfs­fólks Alexey var hann vinnu­samur og tók þátt í skemmt­unum á vegum starfs­manna. Var meðal ann­ars í hljóm­sveit með vinnu­fé­lög­unum. Dags­dag­lega var hann rólyndur og tran­aði sér ekki fram. Alexey lagði sig fram um að ná valdi á dönsk­unni, sem hann tal­aði fljót­lega reiprenn­andi, hann kynnt­ist danskri konu, þau eign­uð­ust barn og bjuggu í nágrenni Kaup­manna­hafnar. 

Árið 2014 lærði hann að spila á domru (stundum kölluð rúss­nesk lúta) og gerð­ist félagi í bala­læku­hljóm­sveit. Hann mætti vel á æfingar og lét sig aldrei vanta þegar sveitin var fengin til að koma fram við marg­vís­leg tæki­færi. Nina Pavlovksi, sem er í hljóm­sveit­inni, fékk það hlut­verk að setja Alexey inn í hlut­ina, eins og hún orð­aði það, þegar hann gekk til liðs við sveit­ina. Hún sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að Alexey hafi verið við­kunn­an­legur, frekar til baka án þess þó beint að vera feim­inn. 

Rólyndur maðurDags­dag­lega var Alexey rólyndur og tran­aði sér ekki fram. Hann lagði sig fram um að ná valdi á dönsk­unni, sem hann tal­aði fljót­lega reiprenn­andi, hann kynnt­ist danskri konu, þau eign­uð­ust barn og bjuggu í nágrenni Kaup­manna­hafnar.

Breyting 

Nina Pavlovski segir að svo hafi skyndi­lega eitt­hvað breyst. Alexey fór að koma of seint á æfingar og hann virt­ist oft­ast illa und­ir­bú­inn. Hann var mjög upp­tek­inn af sím­anum, sem hann skildi aldrei við sig. Hann lét, að sögn Ninu Pavlovksi, sím­ann ætíð standa á nótna­borð­inu og virt­ist þurfa að fylgj­ast vel með ein­hverju sem birt­ist á skjánum, hvað það var vissu aðrir í hljóm­sveit­inni ekki.

Nina Pavlovski sagði í áður­nefndu við­tali að fleiri en hún hefðu tekið eftir þess­ari breyt­ingu en það hefði aldrei sér vit­an­lega verið rætt sér­stak­lega. Alexey hefði aldrei verið sér­lega opin­skár varð­andi sína per­sónu­legu hagi, en það gilti reyndar um marga. 

Nýtt starf

Í maí 2019 fékk Alexey starf hjá fyr­ir­tæk­inu Ser­Energy (sem síðar sam­ein­að­ist Advent Technologies) í Álaborg. Hann bjó þó áfram í nágrenni Kaup­manna­hafnar en hafði her­bergi í Álaborg. Samdi um að skila fimm daga vinnu­viku á fjórum dögum. Hann hélt jafn­framt áfram að stunda rann­sóknir hjá DTU og spila í bala­læku­hljóm­sveit­inni. „Önnum kaf­inn maður,“ sagði hann ein­hverju sinni þegar vinnu­fé­lagi hans í Álaborg ræddi við hann.

Ser­Energy fyr­ir­tækið vinnur að marg­vís­legri þróun og fram­leiðslu á raf­orku úr met­anóli og fleiru sem teng­ist orku­skipt­unum (den grønne omstill­ing). Fyr­ir­tæki víða um heim kepp­ast nú við að þróa nýja tækni varð­andi orku­fram­leiðslu og mikil leynd hvílir gjarnan yfir þeirri starf­semi sem fram fer innan veggja þeirra.

Vinirnir í sendiráðinu

Lengi hefur farið það orð af Rússum, eins og reyndar mörgum öðrum þjóðum, að starfs­fólk í sendi­ráðum sinni ýmsu öðru en því sem kalla megi hefð­bundin sendi­ráðs­störf. Oft eru þessir starfs­menn kall­aðir njósn­arar en hlut­verk þeirra er gjarnan að kom­ast að upp­lýs­ingum sem gagn­ast gætu föð­ur­land­inu með einum eða öðrum hætti.

Ein aðferð er að kom­ast í kynni, og mynda tengsl, við ein­hvern sem kom­ist getur yfir mik­il­vægar upp­lýs­ingar. Peningar koma iðu­lega við sögu sem greiðsla fyrir „greið­ann“ og stundum reyn­ist sú freist­ing öðru yfir­sterk­ari. Mál Alexey Niki­forov er af þessum toga.

Ýmislegt óljóst

Ekki er vitað hvernig það atvik­að­ist að kynni tók­ust með efna­verk­fræð­ingnum Alexey og starfs­manni rúss­neska sendi­ráðs­ins í Kaup­manna­höfn. Danskir fjöl­miðlar geta sér til að hlut­irnir hafi gerst hægt, kannski hafi sendi­ráðs­mað­ur­inn og Alexey tekið tal saman á sam­komu í sendi­ráð­inu, vel hafi farið á með þeim og þeir svo farið að hitt­ast úti í bæ, á veit­inga- og kaffi­húsum. Fyrst í stað hafi ekki verið rætt neitt um hugs­an­lega „efn­is­öflun“. Ljóst sé að Alexey hafi ekki verið val­inn af handa­hófi, hann var virtur vís­inda­maður og upp­lýs­ingar um fram­leiðslu og þró­un­ar­vinnu Ser­Energy gætu gagn­ast Rússum. 

Timur Rasulov kemur til sögunnar

Sendi­ráðs­mað­ur­inn sem upp­haf­lega mynd­aði tengslin við Alexey fór heim til Rúss­lands í árs­lok 2017. Í hans stað kom maður á miðjum aldri, Timur Rasulov. Hann var titl­aður sendi­ráðs­rit­ari en danskir fjöl­miðlar segja að hann hafi verið starfs­maður leyni­þjón­ustu rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, SVR. Hann og Alexey náðu strax vel saman. Ekki er með vissu vitað (eða verið upp­lýst) hvenær samið var um að Alexey myndi útvega upp­lýs­ingar handa Rússum. Sömu­leiðis er ekki ljóst hvort sendi­ráðs­mað­ur­inn þrýsti á Alexey með að fá starf hjá Ser­Energy og láta sig fá upp­lýs­ingar um starf­sem­ina þar, mik­il­vægar upp­lýs­ingar varð­andi tækninýj­ungar tengdar orku­skipt­unum sem víðar ein­blínt á.   

Náðu strax vel samanTimur Rasulov starfs­maður leyni­þjón­ustu rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og Alexey náðu strax vel saman.

Fylgst með Alexey Nikiforov

Í gögnum sem danska útvarpið hefur fengið aðgang að og birt (að hluta) kemur ekki fram hvernig á því stóð að danska leyni­þjón­ustan fór að fylgj­ast með Alexey. Til eru fjöl­margar myndir af honum og sendi­ráðs­mann­inum Timur, á veit­inga­stöðum, bíla­stæðum og víðar. Af upp­tök­unum og gögnum er ljóst að danska leyni­þjón­ustan hefur lagt mikla áherslu á málið og talið það mik­il­vægt. 

Handtaka og húsleit 

Þann 3. júlí 2021, klukkan 19.01, var Alexey Niki­forov hand­tek­inn. Hann var þá staddur á bíla­stæði við skemmti­garð­inn Bakken, skammt frá Kaup­manna­höfn. Samtímis var gerð hús­leit á heim­ili hans og þar fund­ust meðal ann­ars doll­ara­seðlar, sem leyni­þjón­ustan segir komna frá Rússum, minnismiðar þar sem talin eru upp atriði sem Alexey átti að afla upp­lýs­inga um og koma í hendur sendi­ráðs­manns­ins Timur.

Fangelsi og brottvísun

Í nóv­em­ber 2021 stað­festi Vestri-lands­réttur dóm und­ir­réttar sem hafði dæmt Alexey Niki­forov í þriggja ára fang­elsi og lífs­tíð­ar­brott­vísun frá Danmörku að afplánun lok­inni. „Umfangs­miklar og skipu­lagðar njósnir“ sagði í nið­ur­stöðu rétt­ar­ins. Alexey hefur ætíð neitað öllum ásök­unum. Þess má geta að Timur Rasulov fór frá Danmörku árið 2021.

Hvers vegna?

Sú spurn­ing hlýtur að vakna hvernig á því standi að maður eins og Alexey Niki­forov velur að ger­ast sendi­sveinn og upp­lýs­inga­þjófur Rússa. Vel vit­andi að með því hætti hann starfs­frama sínum og jafn­framt mögu­leik­anum á að búa í Danmörku, þar sem hann vildi vera. Voru það pen­ing­arnir sem á hann voru bornir í skiptum fyrir upp­lýs­ingar? Þessum spurn­ingum er ekki auð­velt að svara. Þess eru mörg dæmi að fólk, bæði konur og karlar, hafi flækst í njósn­a­net erlendra ríkja og síðan ekki getað snúið við blað­inu. Sagan um Alexey Niki­forov er ein­ungis eitt dæmi.

Stutt viðbót um leyniþjónustur Rússa 

Í Rúss­landi eru þrjár stórar og fjöl­mennar leyni­þjón­ustur. Stærst er leyni­þjón­usta hers­ins, í dag­legu tali kölluð GRU. Hún heyrir undir varn­ar­mála­ráð­herr­ann og yfir­stjórn hers­ins. GRU ann­ast meðal ann­ars áhættu­söm verk­efni, til dæmis að koma „óvinum“ rík­is­ins fyrir katt­ar­nef. Danska leyni­þjón­ustan, PET, telur víst að starfs­menn GRU hafi starfað í sendi­ráði Rússa í Kaup­manna­höfn.

SVR er leyni­þjón­usta rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og miðlar upp­lýs­ingum til Pútín for­seta. SVR var upp­haf­lega deild innan sov­ésku leyni­þjón­ust­unnar KGB en varð að sjálf­stæðri stofnun eftir fall Sov­ét­ríkj­anna. SVR starfar að mestu utan Rúss­lands, og hefur unnið með leyni­þjón­ustum ann­arra landa, til dæmis vegna hryðju­verka.

FSB var áður deild innan KGB. Starf­semin snýr fyrst og fremst að örygg­is­málum inn­an­lands í Rúss­landi og rann­sóknum á alvar­legum afbrotum.

Í lokin er rétt að geta þess að frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst hefur 15 starfs­mönnum rúss­neska sendi­ráðs­ins í Danmörku verið vísað úr landi. 

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár