E3 Sýn­ing­ar­pláss fram­leið­enda buðu oft upp á próf­anir á næst­kom­andi leikjum. Mynd: AFP

Endalok uppskeruhátíðar tölvuleikjaheimsins

Tuttugu og sjö ára sögu E3-ráð­stefn­unnar er mögu­lega lokið. Fram­leið­endur hafa í auknum mæli sagt skilið við stórar ráð­stefnur og kjósa frekar streym­is­við­burði á eigin vegum. Skilj­an­legt en leið­in­legt að sögn fyrr­ver­andi tölvu­leikja­blaða­manns.

Tölvu­leikja­á­huga­fólk gat alltaf látið sig hlakka til júní­mán­aðar þegar ráð­stefnan og sýn­ingin E3 (Electronic Enterta­in­ment Expo) fór í gang. Nokkrir af stærstu leikjum í manna minnum voru upp­haf­lega kynntir á sýn­ing­unni með pompi og prakt.

Helstu fram­leið­endur voru með bás eða pláss á stóru sýn­ing­ar­gólfi og með kynn­ingar á stóra svið­inu sem heim­ur­inn fylgd­ist með fréttum af.

Nú hefur ESA (Enterta­in­ment Software Association) aflýst hátíð­inni, mögu­lega fyrir fullt og allt. Nokkur af stærstu tölvu­leikja­fram­leið­endum heims voru búin að til­kynna brott­hvarf sitt frá hátíð­inni í ár. E3 fór illa út úr COVID, eins og svo margt annað, en hátíðin var búin að tapa mik­il­vægi sínu í tölvu­leikja­heimum áður en heims­far­ald­ur­inn skall á.

Uppskeruhátíð tölvuleikjaheimsins

E3 hefur síð­ustu tvo ára­tugi verið stærsta kynn­ing­ar­há­tíð tölvu­leikja­heims­ins. Á tíma­bili var alltaf hægt að hlakka til spenn­andi kynn­inga ár hvert, enda margir eft­ir­minni­legir …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár