Þegar Ástralíumenn lærðu ekki að yrkja jörðina

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, 23. mars, tók stjórn Ástralíu þá ákvörðun að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort vísa skuli sér­stak­lega til frum­byggja lands­ins og reynslu þeirra í stórn­ar­skrá. Ekki vonum seinna, segja margir. Ástralía hefur breyst meira þá ára­tugi sem mað­ur­inn hefur búið þar en lengst af hefur verið talið. Þótt fólki blöskri hve útbreiddar eyði­merkur eru þar og landið hrjóstrugt, þá mun eyjan stóra nú vera nán­ast eins og frjó­samur blóma­garður miðað við ástandið þegar menn komu þangað fyrst.

Þegar Ástralíumenn lærðu ekki að yrkja jörðina
Þessi mynd er ein þeirra fyrstu sem teknar voru af frum­byggjum Ástralíu. Það var um 1858, ljós­mynd­arar voru Antoine Fauchery og Richard Daintree. Sá karl sem hér var ljós­mynd­aður í hátíð­ar­skrúða var að sönnu búsettur á því svæði sem nú er kallað Victoria og því víðs­fjarri York-skaga í Queensland þar sem Dyufken kom að landi 1606. Frum­byggjarnir þar og þessi ónefndi karl í Victoriu hafa verið af sitt­hvoru þjóð­ern­inu.

Það eru 417 ár síðan. Lágur höfði skag­aði út í sjó, hvít sand­strönd bæði norður og suður út frá höfð­anum svo langt sem augað eygði. Upp af strönd­inni þéttur skógur sam­felldur. Skammt út af höfð­anum hefur varpað akk­erum svo­lítið tví­ma­stra skip, það heitir Duyfken, renni­leg jagt sem nú myndi flokk­ast 80 tonn eða þar um bil. Í áhöfn eru um 20 manns og það er létta­bátur með nokkrum mönnum á leið upp í fjör­una. Sumir báts­verja eru hol­lenskir, aðrir upp­runnir á Jakarta á eyj­unni Jövu þar sem Hol­lend­ingar voru þá að koma sér fyrir.

Frá Jakarta hafði Duyfken lagt upp í nóv­em­ber 1605 undir stjórn Willem Janzsoon skip­stjóra, og stefnt fyrst til Banda­eyja, eina stað­ar­ins í ver­öld­inni þar sem múskat-tréð óx, og svo lengra í austur, upp að ströndum Nýju-Gíneu, risa­vax­innar lítt kann­aðrar eyjar þar sem Hol­lend­ingar von­uð­ust til að finna eitt­hvað til að versla með.

Gríðarlegur hávaði

…
Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Halldór Svansson skrifaði
    Ég er að hugsa um að hætta að styrkja ykkur því flestar fréttir og greinar eru mér duldar þó ég greiði áskrift reglulega.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár