Spítalar keppast um fólk af veikum mætti

Yfirvöld hafa ákveðið að heil­brigð­is­fyr­ir­tæki á einka­mark­aði geri 700 lið­skipta­að­gerðir á árinu. Stjórn­endur rík­is­rek­inna sjúkra­húsa ótt­ast að sjúkra­húsin veik­ist ef sér­fræð­ingar fari til einka­rek­inna fyr­ir­tækja. For­stjóri Land­spít­al­ans varar við því að farið verði stjórn­laust í átt til einka­væð­ingar.

Spítalar keppast um fólk af veikum mætti

Sjúkra­trygg­ingar Íslands aug­lýstu um miðjan febr­úar eftir til­boðum frá heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum á einka­mark­aði sem fram­kvæma lið­skipta­að­gerðir á mjöðmum og hnjám á skurð­stofum. Sjúkra­trygg­ingar gera ráð fyrir að samn­ingur taki gildi fyrir 1. apríl næst­kom­andi og að þá verði byrjað að fram­kvæma lið­skipta­að­gerðir á einka­spít­ala. Fjögur fyr­ir­tæki tóku þátt í útboð­inu: Cosan slf, Ledplastikcentrum, Stoð­kerfi ehf. og Klíníkin ehf.

Sigurður H. Helgason, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga, sagði í sam­tali við Heim­ild­ina, eftir að greint var frá hvaða fyr­ir­tæki hefðu boðið í aðgerð­irnar, að Land­spít­al­inn hafi ekki getað gert nægi­lega margar lið­skipta­að­gerðir. „Afköst spít­al­ans hafa því ekki staðið undir þörfum. Ég skil málið þannig að áður hafi verið settur sér­stakur pen­ingur inn í Land­spít­al­ann til að fjölga þessum aðgerðum en það hafi ekki stað­ist,“ sagði for­stjóri Sjúkra­trygg­inga. 

Alls voru 2.055 mann­eskjur á biðlista eftir lið­skipta­að­gerð í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Á heima­síðu emb­ætt­is­ins má sjá að biðlistar eftir ýmsum skurð­að­gerðum hafa tútnað út und­an­farin ár. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu