Bruninn í Vatna­görðum Sú hlið hús­næð­is­ins í Vatna­görðum sem varð verst úti í brun­anum þann 17. febr­úar síð­ast­lið­inn er mjög illa far­inn ef marka má myndir úr hús­inu. Mynd: Aðsent

Lést sama dag og fundað var um lokun

Íbúi Betra lífs í Vatna­görðum lést sama dag og slökkvi­liðið fund­aði um fyr­ir­hug­aða lokun á hús­næð­inu vegna alvar­legra brota á lögum um bruna­varnir og bygg­ing­ar­reglu­gerðir. Nokkrum dögum síðar kvikn­aði í hús­inu. Rannsókn á brun­anum er nú á borði lög­reglu.

Sama dag og slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fund­aði um fyr­ir­hug­aða lokun á áfanga­heim­il­inu Betra líf í Vatna­görðum, eða þann 14. febr­úar síð­ast­lið­inn, var lög­reglan kölluð út vegna and­láts í hús­inu. Hinn látni hafði verið lát­inn í her­bergi sínu í rúman sól­ar­hring. Þremur dögum síðar kom upp eldur í hús­inu. „Ég vakn­aði við bruna­bjöllu. Svo heyrði ég læti og öskur en ég hélt fyrst að það væru slags­mál frammi. Þegar ég fór fram sá ég svo reyk og eld­tungur standa út úr rým­inu þar sem eld­ur­inn kvikn­aði. Ég byrj­aði að öskra og kalla á alla í kring um að koma sér út,“ segir íbúi Vatna­garða, sem vill ekki láta nafns síns getið.

Þá segir hann að allir íbúar í þeim hluta húss­ins sem hann bjó hafi verið sof­andi þegar eld­ur­inn braust út. „Þeir sem bjuggu í her­bergjum nálægt eld­inum hlupu bara út án þess að láta vita. Það hafði eng­inn vit …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár