Vinna saman að heilbrigðu heilbrigðiskerfi

„Öryggi starfs­manna er öryggi sjúk­linga,“ segir Ásta Kristín sem stendur að stofnun hags­muna­sam­taka fyrir heil­brigð­is­starfs­menn, sjúk­linga og aðstand­endur þeirra sem lent hafa í alvar­legum atvikum í heil­brigð­is­kerf­inu. „Upp­lifunin er erfið fyrir alla aðila.“

Vinna saman að heilbrigðu heilbrigðiskerfi
Allir í sama liði Ásta Kristín Andr­és­dóttir, einn þriggja stofn­enda Heilsu­hags, hags­muna­sam­taka heil­brigð­is­starfs­manna, sjúk­linga og aðstand­enda þeirra sem orðið hafa fyrir alvar­legu atviki í heil­brigð­is­þjón­ustu, segir mik­il­vægt að styðja jafn vel við báða hópa, starfs­menn og sjúk­linga og aðstand­endur þeirra og sam­tökin muni vinna að því. Mynd: Heiða Helgadóttir

Síðasta sumar komu tveir hjúkr­un­ar­fræð­ingar að máli við Ástu Kristínu Andr­és­dóttur til að athuga hvort hún hefði hug á að stofna með þeim hags­muna­sam­tök. Ásta Kristín er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn hér á landi sem hefur sætt ákæru fyrir mann­dráp af gáleysi í starfi. Hags­muna­sam­tökin hafa það á stefnu­skránni að gæta hags­muna starfs­manna sem hafa lent í óvæntum atvikum í störfum sínum, sem og sjúk­linga og aðstand­endur þeirra sem hafa lent í atvikum. Með óvæntum atvikum er átt við óhappa­til­vik, mis­tök, van­rækslu eða önnur atvik sem valdið hafa sjúk­lingi tjóni eða hefðu getað valdið sjúk­lingi tjóni.

„Fólk skilur kannski ekki hvernig sam­tökin geta verið fyrir bæði heil­brigð­is­starfs­menn og sjúk­linga og aðstand­endur þeirra, því sumir telja kannski að þessir hópar séu upp á móti hvor öðrum og í sitt hvoru lið­inu,“ segir Ásta, „en afleið­ing­arnar geta verið þær sömu fyrir alla aðila, áfallastreita eða áfallastreituröskun. Upp­lifunin er erfið fyrir alla aðila og við viljum styðja þá.“

Öryggi starfs­manna er öryggi sjúk­linga, segir hún. „Þetta er sam­ofið. Ef þú ert öruggur í vinnu minnka lík­urnar á að eitt­hvað ger­ist sem átti ekki að ger­ast.“

Hafa mismunandi reynslu

Stofn­fé­lag­arnir hafa allar reynslu af því að takast á við óvænt atvik inni í heil­brigð­is­kerf­inu, en hafa þó verið í mis­mun­andi hlut­verkum. Gyða og Mál­fríður þekkja það að takast á við þetta sem sjúk­lingur ann­ars vegar og aðstand­andi hins vegur og Ásta sem heil­brigð­is­starfs­maður. Sér hún fyrir sér að geta stutt aðra heil­brigð­is­starfs­menn sem lenda í slíkri stöðu. „Þegar ég var sýknuð þá átti allt að verða í lagi. Það var eng­inn sem sagði mér að eftir þriggja ára áfallastreitu myndi heim­ur­inn minn koll­varp­ast.“

Telur land­lækn­is­emb­ættið ekki nógu hlut­laustGyða Ölv­is­dóttir, einn þriggja stofn­enda Heilsu­hags, segir land­lækn­is­emb­ættið ekki nógu hlut­laust þegar kemur að rann­sókn atvika vegna nálægð þess við kerfið.

Hún sér fyrir sér að vinna með starfs­mönnum í grúbbum, svo þeir hafi tæki­færi til að tjá sig um þessi atvik. Hún vill styðja þá svo þeir „detti ekki fram af brún­inni“ þegar mál­inu er lokið. „Ef mál fara í ákæru­ferli má við­kom­andi ekki tjá sig á opin­berum vett­vangi. En hann getur komið til okkar, tjáð sig þar og við hlustum.“ Sjálf hefði hún grætt mikið á því að slíkt úrræði væri til staðar fyrir hana á sínum tíma.  

Mikilvægt að óttast ekki refsilöggjöfina

Að mati Ástu er mik­il­vægt að fræða heil­brigð­is­geir­ann um lang­tíma­á­hrif þess að lenda í atviki, en um leið efla fræðslu um mik­il­vægi þess að skrá atvik, svo hægt sé að læra af þeim. „Það er mik­il­vægt að vera ekki hræddur við refsi­lög­gjöf­ina, því það er verið að vinna að því að breyta henni,“ segir hún og vísar til þess að nú liggja fyrir í sam­ráðs­gátt stjórn­valda drög að frum­varpi um refsi­á­byrgð vegna alvar­legra atvika í heil­brigð­is­þjón­ustu. 

„Við verðum öll neyt­endur kerf­is­ins á einum tíma­punkti eða öðrum“
Gyða Ölv­is­dóttir

Stærsta breyt­ingin sem frum­varpið felur í sér er að hægt er að gera heil­brigð­is­stofn­anir ábyrgar þegar alvar­leg atvik leiða til dauðs­falls eða stór­fellds lík­ams­tjóns, að því gefnu að atvikið megi rekja til margra sam­verk­andi þátta í starf­semi hlut­að­eig­andi stofn­unar, frekar en ein­staka heil­brigð­is­starfs­fólki. 

Í drög­unum segir að núgild­andi ábyrgð­ar­kerfi í heil­brigð­is­kerf­inu byggi refsi­á­byrgð fyrst og fremst á sök ein­stak­linga, sem geti haft marg­vís­legar nei­kvæðar afleið­ingar fyrir heil­brigð­is­kerfið. Það geti „bein­línis hindrað fram­þróun örygg­is­menn­ingar og dregið úr öryggi sjúk­linga“.  

Alvarleg atvik Fjöldi til­kynn­inga um alvar­leg atvik eftir mán­uði, árin 2021 og 2022.

Samtökin eru ekki stríðsverkfæri

Ásta Kristín skrif­aði umsögn um frum­varpið þar sem hún greindi meðal ann­ars frá því að nýju hags­muna­sam­tökin Heilsu­hagur gætu gagn­ast í fræðslu­starf­semi. „Það er ekki hugsað sem stríðs­verk­færi gegn heil­brigð­is­kerf­inu, heldur meira sem ábend­ing um að báknið, Land­spít­al­inn, ríkið og aðrar heil­brigð­is­stofn­anir taki málin alvar­lega, hugsi um sína hús­bónda­á­byrgð, hlusti á sjúk­linga og aðstand­endur ásamt því að hlúa að sínu starfs­fólki og verja það fyrir til dæmis umfjöll­unum í fjöl­miðlum þar sem fólk er nafn­greint.“

Þar segir jafn­framt að von hennar sé að stofnuð verði óháð nefnd innan heil­brigð­is­kerf­is­ins til að yfir­fara atvik. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að atvik verði rann­sökuð af Land­lækn­is­emb­ætt­inu, jafn­vel þótt lög­regla hafi fyrst fengið til­kynn­ingu um málið. Ef um refsi­verða hátt­semi í heil­brigð­is­þjón­ustu sé að ræða verði það áfram lög­regla sem sinnir rann­sókn­inni. 

„Það var eng­inn sem sagði mér að eftir þriggja ára stans­lausri áfallastreitu myndi heim­ur­inn minn koll­varp­ast“
Ásta Kristín Andr­és­dóttir

Ásta segir mik­il­vægt að heil­brigð­is­starfs­menn og sjúk­lingar hafi trú á því að málin rati í réttan far­veg. „Að þú lendir ekki í þeirri stöðu að vera sak­born­ingur eða sak­felld fyrir kerfi sem styður ekki rétt við þig.“

Undir þessa krefu tekur Gyða Ölv­is­dóttir, önnur þeirra sem kom að máli við Ástu á sínum tíma. Hún segir emb­ætti Land­læknis ekki geta talist hlut­laus stofnun þegar kemur að rann­sókn atvika, vegna nálægðar stofn­un­ar­innar við heil­brigð­is­kerfið. Því óski hún einnig eftir því að sett verði á stofn óháð rann­sókn­ar­nefnd til að rann­saka atvik. Heil­brigð­is­yf­ir­völd ættu einnig að nota þjón­ustukann­anir í upp­bygg­ingu á gæða­starfi og örygg­is­menn­ingu, með reglu­bundnum hætti. Sjálf skrif­aði hún meist­ara­rit­gerð um slíkar kann­anir. 

Úrvinnsla alvar­legra atvikaFjöldi til­kynn­inga um alvar­leg atvik eftir árum og stöðu úrvinnslu.

 Allir verða neytendur heilbrigðiskerfisins

Gyða segir mik­il­vægt að fræða heil­brigð­is­starfs­fólk um hvernig best sé að bregð­ast við sjúk­lingum og aðstand­endum þeirra þegar atvik verða. Lög­bundið er að halda skrá um óvænt atvik í heil­brigð­is­kerf­inu, í þeim til­gangi að finna skýr­ingar á þeim og leita leiða til að tryggja að þau end­ur­taki sig ekki, en heil­brigð­is­starfs­fólk eigi það til að gera lítið úr vanda­mál­inu til að lág­marka hætt­una á að lenda í því sama og Ásta, og enda sem sak­born­ingur í lög­reglu­máli. Þess vegna er mik­il­vægt fyrir Gyðu að í sam­tök­unum sé vett­vangur fyrir bæði heil­brigð­is­starfs­fólk og sjúk­linga og aðstand­endur þeirra, að slík sam­vinna geti leitt af sér „heil­brigt heil­brigð­is­kerfi“ eins og hún orðar það. „Það er mik­il­vægt að skjól­stæð­ingar heil­brigð­is­þjón­ustu fái tæki­færi til þess að byggja upp betri þjón­ustu,“ segir hún og bætir við: „Við verðum öll neyt­endur kerf­is­ins á einum tíma­punkti eða öðrum.“ 

 Hún seg­ist hafa fengið jákvæð við­brögð við stofnun sam­tak­anna, nokkrir hafi sett sig í sam­band við hana og hrósað þeim þremur fyrir fram­takið. Af því að það þýðir að „loks­ins sé eitt­hvað að ger­ast í þessum málum“ hér á landi. Framundan er aðal­fundur sam­tak­anna, sem fer fram þann 2. mars á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár