„Af hverju þarf ég að borga húsið mitt mörgum sinnum?“

Þing­maður Við­reisnar bendir á að verð­bólga hafi mikil og nei­kvæð áhrif á stöðu heim­il­anna í land­inu sem sjái lánin sín stökk­breyt­ast með ófyr­ir­séðum afleið­ingum. Verð­bólga sé einnig slæm fyrir rík­is­sjóð sem eyði hátt í 100 millj­örðum í vexti.

„Af hverju þarf ég að borga húsið mitt mörgum sinnum?“
Þing­maður Við­reisnar Guð­brandur spyr hvort hag­vöxtur hér á landi sé sjálf­bær. Mynd: Bára Huld Beck

„Af hverju þarf ég að borga húsið mitt mörgum sinnum? Af hverju er ég að greiða þrefalt hærri vexti en vinur minn í Svíþjóð? Af hverju er svona dýrt að lifa á Íslandi?“

Þannig hóf þing­mað­ur­inn Guð­brandur Ein­ars­son ræðu sína undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. 

Hann sagði að þessa dag­ana væri verið að reyna að blekkja Íslend­inga með því að segja að þeir séu í svo góðri stöðu af því að hér á landi sé svo mik­ill hag­vöxtur. „En er þessi hag­vöxtur sjálf­bær? Hag­vöxtur sem drif­inn er áfram af við­skipta­halla er sjaldn­ast af hinu góða. Við erum þessa dag­ana að upp­lifa mikla verð­bólgu, þá mestu á öld­inni, og ein af ástæðum verð­bólg­unnar er þessi við­skipta­halli. Það hefur þau áhrif að krónan gefur eftir. Þá verða inn­fluttar vörur dýr­ari sem bætir við þá verð­bólgu sem fyrir er.“ 

Ísland á toppnum þegar horft er til vaxtakostnaðar

Benti þing­mað­ur­inn á að sú verð­bólga sem Íslend­ingar glíma nú við hefði að mestu leyti orðið til vegna til­bú­innar spennu hér innan lands, til dæmis á hús­næð­is­mark­aði. Það kynni þó að breyt­ast með fallandi gengi krón­unnar. 

„Þessi verð­bólga hefur mikil og nei­kvæð áhrif á stöðu heim­il­anna í land­inu sem sjá lánin sín stökk­breyt­ast með ófyr­ir­séðum afleið­ingum en verð­bólga er líka vond fyrir rík­is­sjóð sem eyðir hátt í 100 millj­örðum í vexti. Ísland er á toppnum þegar horft er til vaxta­kostn­aðar sem hlut­falls af lands­fram­leiðslu. Við greiðum til dæmis hærri vexti en Grikk­land. Það er sá kostn­aður sem við þurfum að greiða fyrir það eitt að vera með sjálf­stæðan gjald­miðil. Verð­bólga í öðrum evru­löndum er nú komin í 8,5 pró­sent, eftir að hún fór hæst í 10,6 pró­sent, en hér er verð­bólga enn að aukast, er nú aftur komin í 9,9 pró­sent og ekki útlit fyrir að hún sé að lækka,“ sagði hann. 

„Hversu lengi ætlum við að vera Bjartur í Sum­ar­húsum?“ spurði Guð­brandur að lokum. 

Segir eitt stéttarfélag við það að lama íslenskt samfélag

Guðrún Haf­steins­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins ræddi einnig efna­hags­mál í ræðu sinni undir sama lið. Hún fjall­aði um opinn fund efna­hags- og við­skipta­nefndar með seðla­banka­stjóra og aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra sem hald­inn var í gær. 

„Þar sem rædd voru áhrif verð­bólgu og vaxta á heim­ili og fyr­ir­tæki í land­inu. Þar kom meðal ann­ars fram að þrátt fyrir alvar­lega stöðu þá hafa skuldir heim­ila og fyr­ir­tækja ekki auk­ist. Ekki eru nein merki um að van­skil séu að aukast. Mikil spenna er í hag­kerf­inu og til að slá á þá þenslu hefur Seðla­bank­inn fá önnur úrræði en að hækka vexti,“ sagði hún. 

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­insGuðrún segir að staðan sem nú er uppi í kjara­deilum sé mikil von­brigði.

Telur Guðrún að brýn­asta verk­efni allra í dag sé að ná niður verð­bólg­unni, „þeim forna fjanda“. „Til að það megi takast er brýnt að ljúka kjara­samn­ingum á vinnu­mark­aði. Nú er svo komið að búið er að ljúka samn­ingum við um 80 pró­sent almenna mark­að­ar­ins. Þeir samn­ingar sem gerðir voru í des­em­ber voru allir sam­þykktir með miklum meiri hluta. Það tókst að ljúka samn­ingum við sjó­menn, stétt sem hafði verið samn­ings­laus í nokkur ár. Því er það þyngra en tárum taki að hér sé eitt stétt­ar­fé­lag við það að lama íslenskt sam­fé­lag og valda ómældum efna­hags­skaða,“ sagði hún. 

„Við höfum séð þessa atburða­rás áður og það á síð­ustu öld, því 1990 var að hringja.“

„Talað er um að um helg­ina geti skap­ast hér almanna­varna­á­stand, þar sem hund­ruð ferða­manna munu verða á göt­unni. Búið er að virkja neyð­ar­númer fyrir ferða­menn. Álit á Íslandi sem áfanga­stað ferða­manna mun bíða hnekki. Ég er ekki viss um að fólk sem hafði pantað sér ferð til að eyða hér jafn­vel hveiti­brauðs­dögum sínum hafi séð fyrir að það þyrfti hugs­an­lega að gista í fjölda­hjálp­ar­stöð.

Staðan sem nú er uppi er mikil von­brigði. Við höfum séð þessa atburða­rás áður og það á síð­ustu öld, því 1990 var að hringja. Þá var staðan þannig að við vorum föst í spíral ósjálf­bærra launa­hækk­ana sem brunnu upp með geng­is­fell­ingum og verð­bólgu,“ sagði hún. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eru arðgreiðslumenn að ganga af göflunum. Hafa þeir alveg gleymt uppruna sínum, tapað þræðinum frá pabba, afa eða langafa? Veðja á að flestir eigi rætur að rekja til verkamanna, sjómanna eða bænda, sem sagt til hinna vinnandi stétta. Nú standa þeir og berja á því fólki sem þeim bæri að vernda, þeir komust ekki í álnir af sjálfu sér.
    2
  • HHH
    Hólmgeir Helgi Hákonarson skrifaði
    Það verða væntanlega S.A. vinir íserfingjans sem lama samfélagið ef fram fer sem horfir
    2
  • Brynja Óskarsdóttir skrifaði
    Ógurlegt að þingmaður segi eitt stéttarfélag ábyrgt fyrir því að lama íslenskt samfélag. Reyndar þingmaður úrelts hugsunarháttar og gildismats Sjálfstæðisflokks varðandi lífsafkomu hins almenna borgara, en þingmaður samt, kosin til að verja lýðræði og lífsafkomu landans. Hún vill ekki sjá að ofurríkidæmi hinna fáu kúgar og heldur niðri, stjórnar því hvort hér verði neyðst til að veita mótspyrnu og fara í verkföll. Verkbannið hótaða myndi hafa talsvert meira eyðileggjandi samfélagsleg áhrif heldur en verkföll. Þetta hefur komið fram með óyggjandi hætti og Sjálfstæðismenn í verkalýðsstétt ættu að sjá þetta þótt þingmaðurinn geri það ekki. Eymingjans þingmaðurinn.
    2
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Það er orðið of seint að gera eitthvað, það er búið að eyðileggja þetta þjóðfélag.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár