Ráðuneyti segir ríkisforstjóra hafa þegið milljónir í laun án heimildar

Fram­kvæmda­stjóri Úrvinnslu­sjóðs hefur í 7 ár fengið greidd laun fyrir starf sem lagt var niður árið 2015. Fjár­mála­ráðu­neytið segir fram­kvæmda­stjór­ann ekki hafa gert þetta í góðri trú og hvetur stjórn til að krefja hann um end­ur­greiðslu, en allt að helm­ingur upp­hæð­ar­innar er þegar fyrndur.

Ráðuneyti segir ríkisforstjóra hafa þegið milljónir í laun án heimildar

Úrvinnslu­sjóður hefur ofgreitt fram­kvæmda­stjóra sjóðs­ins, Ólafi Kjart­ans­syni, yfir 10 millj­ónir króna í laun und­an­farin sjö ár. Fjár­mála­ráðu­neytið hefur til­kynnt stjórn Úrvinnslu­sjóðs að það telji Ólaf ekki hafa verið „í góðri trú“ þegar hann lét Sjóðinn halda áfram að greiða sér fyrir störf sem hann sinnti ekki lengur.

Ráðu­neytið telur að stjórn Úrvinnslu­sjóðs eigi að krefja fram­kvæmda­stjór­ann um end­ur­greiðslu, en fyrn­ing kemur í veg fyrir að hægt verði að krefja hann um end­ur­greiðslu á nema rúmum helm­ingi upp­hæð­ar­innar. 

Úrvinnslu­sjóður varð til árið 2003 sem und­ir­stofnun Umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. Sjóð­ur­inn var í raun stofn­aður utan um umsýslu svo­kall­aðs úrvinnslu­gjalds, sem lagt er á stærstan hluta inn­fluttra og fram­leiddra vara. Gjaldinu er ætlað að standa straum af förgun og end­ur­vinnslu umbúða eða úrgangs, sem fellur til vegna vör­unnar.

End­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki fá þannig greitt úr sjóðnum fyrir söfnun, flokkun og end­ur­vinnslu úrgangs­ins. Háar fjár­hæðir fara því árlega í gegnum Sjóðinn, sem árið 2020 …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Skrýtið að lesa að þegar starfsmenn framkvæmdarvaldsins stunda fjárdrátt með því að oftaka sér fé eða ávinning þá fá þeir að endurgreiða og málið dautt en ef almenningur tekur sér slíkt bessaleyfi eða nytjastuld þá er það lögreglan, kæra og dómur... ásamt upptöku ávinnings og sektar.

    Svo eruð þið hissa landið er spillt ?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár