Auðvelt að nálg­ast ópíóða Maðurinn í Illinois sem Stundin ræðir við segir að það hafi verið og sé afar auð­velt að verða sér úti um ópíóða í Banda­ríkj­unum. Myndin er svið­sett. Mynd: Heiða Helgadóttir

Notaði morfínlyf í sex ár: „Ég horfði á mömmu og vildi líða eins og henni“

Banda­ríkja­maður á sex­tugs­aldri, sem er hálfur Íslend­ingur, varð háður mor­fín­skyldum verkja­lyfjum og not­aði þau í fimm ár. Maðurinn er einn af þeim sem náði hins vegar að vera fún­ker­andi þjóð­fé­lags­þegn, stunda vinnu sem yfir­maður í iðn­fyr­ir­tæki og lifa fjöl­skyldu­lífi og sjá um börn sín allan þann tíma sem hann not­aði lyfin. Hann býr í Illinois-fylki þar sem íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis var með lang­mestu mark­aðs­hlut­deild­ina á ópíóða­mark­aðnum á árunum 2006 til 2014.

Banda­ríkja­maður á sex­tugs­aldri, sem er hálfur Íslend­ingur, segir að hann hafi notað ópíóða að stað­aldri í sex ár á árunum 2004 til 2010. Maðurinn, sem ekki vill koma fram undir nafni, er búsettur í Illinois-ríki í Banda­ríkj­unum og á íslenska móður sem flutti frá Íslandi á seinni hluta síð­ustu aldar. 

Hann er einn af millj­ónum Banda­ríkja­manna sem ánetj­ast hafa verkja­lyfjum úr mor­fíni á síð­ast­liðnum ára­tugum. Íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis var stærsti selj­andi ópíóða í Illinois-ríki, þar sem mað­ur­inn býr, á árunum 2004 til 2012. Íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis seldi rúm­lega 1,1 millj­arð ópíóða­taflna í Illinois á þessum árum, ríf­lega helm­ingi meira magn en næst­stærsti selj­and­inn í rík­inu. Eins og rakið er í greinum Stund­ar­innar um Actavis og ópíóða­far­ald­ur­inn í Banda­ríkj­unum, sem byggja á Arcos-gagna­grunni banda­ríska Matvæla- og lyfja­eft­ir­lits­ins (FDA) þá seldi íslenska lyfja­fyr­ir­tækið næst­mest allra af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

Lífeyrissjóður harmar ábyrgð sína á ópíóðafaraldri
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Líf­eyr­is­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem fjár­festu í Actavis þegar fyr­ir­tækið var stór­tækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum segj­ast ekki hafa vitað um skað­semi og vill­andi mark­aðs­setn­ingu mor­fín­lyfj­anna. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir högn­uð­ust um 27 millj­arða þegar þeir seldu fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar hluta­bréf í Actavis árið 2007, eftir að fyr­ir­tækið var farið að selja mor­fín­lyf í stórum stíl.
Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóðafaraldursins
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 millj­arða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­urs­ins

Íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóða­töflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúm­lega þrjá millj­arða taflna. Í byrjun febr­úar var greint frá því að fyr­ir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í rík­inu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylk­inu. Eigandi Actavis-félag­anna í dag, Teva, við­ur­kennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæt­urnar.
Fékk 490 töflur frá heimilislækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heim­il­is­lækni á tveimur mán­uðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynnt­ist OxyContin þegar mað­ur­inn hennar var krabba­meins­sjúk­lingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig lang­vinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa mor­fín­lyfjum fyrir sam­kvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir kon­unnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því frá­hvörfin séu „við­bjóður“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár