Fjölskylduhreiðrið fest á filmu

Í nýrri stuttmynd Hlyns Pálma­sonar leika börnin hans sér í nýbyggðum kofa á milli þess sem náttúran dynur á timbrinu. Eftir frum­sýninguna á Berlinale hátíðinni settust Hlynur og Ída Mekkín, dóttir hans, niður með Stundinni til að spjalla um fjöl­skyldu­verkefnið og flakk þeirra á kvikmynda­hátíðir heimsins.

Hlynur og Ída á frumsýningunni
Hlynur og Ída á frum­sýn­ing­unni Nest er ein af þremur myndum sem feðginin hafa gert saman, en Ída er einnig með hlut­verk í Hvítum, hvítum degi frá 2019 og í óút­kominni mynd Hlyns, Volaða land. Mynd: ERIK WEISS

Lítill kofi er kirfilega festur ofan á staur með Horna­fjörð í bakgrunni, skammt frá heimili Hlyns Pálma­sonar leik­stjóra. Í kofanum og kringum hann leika sér börnin hans þrjú, Ída, Grímur og Þorgils, á milli þess sem dýrin í nágrenninu virða fyrir sér mann­virkið og snjóbylir geisa.

Þetta er viðfangs­efni stuttmyndarinnar Nest, sem frumsýnd var á Berlinale hátíðinni á dögunum. Viðstödd til að kynna myndina voru Hlynur og Ída, dóttir hans, sem þrátt fyrir að vera aðeins 13 ára gömul er komin með mikla reynslu af kvikmynda­leik og heim­sóknum á alþjóðlegar kvikmynda­hátíðir. Hún fór með stórt hlutverk í Hvítum, hvítum degi, sem sýnd var í Cannes vorið 2019 og verður líka í næstu mynd föður síns í fullri lengd sem hann er nú að leggja lokahönd á.

Nest, eins og flestar aðrar myndir Hlyns, er sann­kallað fjöl­skyldu­verkefni. Hún var tekin upp yfir nokkrar árstíðir við heimili þeirra rétt fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár