Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins

Ný ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Bergmanns Einars­sonar stjórnmála­fræðings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Óskars­dóttur stjórnmála­fræðings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síðasta kjör­tímabili ganga aftur í sátt­málanum en annarra sér ekki stað.

Allt fyrir alla í stjórnarsáttmálanum
Allt fyrir alla í stjórn­ar­sátt­mál­anum Nýr stjórn­ar­sátt­máli ber keim þess að gera eigi allt fyrir alla, að mati stjórn­mála­fræð­ings. Helstu ágrein­ings­mál síð­asta kjör­tíma­bils eru sköluð niður. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nýr stjórnar­sáttmáli ríkis­stjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks er um flest almennt orðað plagg sem opið er fyrir túlkunum. Mikið er fjallað um að stefnur verði mótaðar, samráð verði haft, hvötum verði beitt, haldið verði áfram vinnu að ákveðnum verkefnum, mál verði tekin til skoðunar og markmið verði sett. Helst er það í þeim þáttum sem lúta að loftslags­málum sem greina má tilgreindar, hand­fastar aðgerðir.

Fyrri ríkis­stjórn sömu flokka taldi sig hafa lokið tæplega þremur fjórðu þeirra aðgerða sem kynntar voru í stjórnar­sáttmálanum 2017. Það kom fram á blaðamanna­fundi ríkis­stjórnarinnar í ágúst síðastliðnum. Þá var því enn fremur haldið fram að flestar þær aðgerðir sem út af stæðu væru komnar vel á veg. Sérstak­lega var tiltekið að mat á því hvernig tekist hefði að uppfylla aðgerðir væri byggt á huglægum þáttum.

Dæmi um málefni sem stjórnin hélt fram að aðgerðum væri lokið í voru að styrkja aðgerðir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Við fyrsyu sín datt mér yllaþokkaoðrFlokkd Foringi í hug er ég sá mindinn en svo Almætið svo mikil fengleg er Katrín Jakk
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár