Lýsir alvarlegum afleiðingum þess að hafa verið áreitt af lækni á Landspítalanum

Kona sem til­kynnti Björn Loga Þór­ar­ins­son, sér­fræði­lækni á Land­spít­al­anum, form­lega í febr­úar vegna áreitni sem staðið hefur yfir frá því hún var lækna­nemi, segir spít­al­annn hafa brugð­ist sér. Björn var ekki sendur í leyfi á meðan málið var til með­ferðar innan spít­al­ans og honum var ekki veitt áminn­ing né vikið úr starfi eftir að spít­al­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði kyn­ferð­is­lega áreitt hana. „Það kom fyrir að það leið yfir mig í vinn­unni og ég grét mikið á kvöldin yfir því að þurfa fara í vinn­una dag­inn eftir,“ segir hún.

Lýsir alvarlegum afleiðingum þess að hafa verið áreitt af lækni á Landspítalanum
Land­spít­ali Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Heiða Helgadóttir

Land­spít­al­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu eftir rann­sókn inn­an­húss að læknir hefði kyn­ferð­is­lega áreitt konu sem hér greinir frá reynslu sinni. Áður hafði sami læknir, Björn Logi Þór­ar­ins­son sér­fræði­læknir, fengið til­tal og verið vísað til ráð­gjafa vegna óvið­eig­andi fram­komu í garð kven­kyns starfs­manns á spít­al­anum. Þrátt fyrir það hafði málið enga eft­ir­mála fyrir hann á þeim tíma, þótt hann hafi nú verið settur í leyfi vegna ásak­ana nokk­urra kvenna um kyn­ferð­is­lega áreitni í þeirra garð. 

Í sam­tali við Stundina lýsir konan grófri kyn­ferð­is­legri áreitni frá því að hún hóf störf á Land­spít­al­anum sem lækna­nemi: „Ég veit nákvæm­lega hvaða her­bergi í Fossvogi ég myndi nota til að ríða þér,“ er á meðal ummæla sem hún hefur eftir lækn­inum og voru til umfjöll­unar við rann­sókn máls­ins innan spít­al­ans. Konan lýsir jafn­framt upp­lifun hennar var af áreitn­inni sem hún varð fyrir, en hún segir að spít­al­inn hafa brugð­ist sér og staðið með ger­and­anum.

Konan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (10)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Alla Gylfa skrifaði
    Þetta er óþolandi að geta ekki lesið greinar á vefmiðli sem maður borgar áskrift af, nenni þessu ekki,er að pæla að segja þessu upp!
    0
  • Magnús Traustason skrifaði
    Þó ég sé innskráður get ég ekki lesið þessa grein.
    0
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    sko. það þarf að x-út síðuna sem kemur alltaf upp og biður mann að gerast áskrifandi þá kemst maður áfram inn í greinarnar. Þetta er villandi og truflandi en ekkert mál þannig séð.
    0
  • Ég taldi mig áskrifanda, eða öllu heldur styrktaraðila þar sem ég borgaði reglulega en gat aldri lesið neitt. Svo ákvað ég að laga allt ferlið, afraksturinn ein grein og svo ekki meir. Ég er lífeyrisþegi sé ekki fram á að hafa efni á svona æfingum!
    0
  • Ragnar Blöndal skrifaði
    Ég er í sömu stöðu. Get ekki lesið af vefnum þó ég sé áskrifandi.
    0
  • Steinar Tómasson skrifaði
    Segi það sama og sumir hér. Get ekki lesið skrifin þó ég sé áskrifandi.
    0
  • Þórunn Blöndal skrifaði
    Get ekki lesið greinina þó að ég sé áskrifandi
    0
  • Kristín Og Andrés skrifaði
    Já er það ekki? Allavega vonaði ég það.
    0
  • Dröfn Eyjólfsdóttir skrifaði
    Ég tel mig vera áskrifanda en get aldrei lesið neitt
    0
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Þessi maður virðist algjörlega óhæfur til að vinna á vinnustað þar sem fleiri en hann sjálfur eru að störfum. Svo eru viðbrögð stjórnenda Landsspítalans stórlega ámælisverð því þeir tóku ekki á athæfi mannsins.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár