Mynd: Davíð Þór

Fólk veikist af nálgun okkar gagnvart offitu

Sjúk­dómsvæð­ing á útliti fólks getur valdið heilsu­fars­legum skaða sem hefur meiri áhrif en lík­ams­þyngd. Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir segir að BMI-stuð­ull­inn valdi tjóni.

Tíðni offitu barna á Íslandi hefur auk­ist mikið síð­ustu ára­tugi, þá sér­stak­lega síð­ustu tvo ára­tugi. Í dag eru um 10% allra grunn­skóla­barna, sem búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, skil­greind með offitu, sam­kvæmt BMI-staðli (Body Mass Index). Þetta hefur haft þau áhrif að fleiri börn hafa verið að sækja sér aðstoð á Land­spít­ala. Þar starfar sér­stakt teymi lækna og ann­arra sér­fræð­inga sem sér­hæfa sig í offitu barna. Árið 2014 var talið að um 18,2% grunn­skóla­barna sem búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins væru yfir kjör­þyngd. Í dag hefur sú tala hækkað í 22,7%. Vilja læknar hér á landi grípa til þess að skil­greina offitu sem sjúk­dóm til að tækla það sem þeir kalla eitt stærsta heilsu­far­s­vanda­mál fram­tíð­ar­innar hér á landi. 

Mikil sam­fé­lags­leg umræða hefur skap­ast í kringum offitu og hafa margir gagn­rýnt þá fréttaum­fjöllun sem hefur verið í kringum hana og sagt hana ein­hliða. Ein þeirra sem hefur gert það er Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár