Rússland eða lífið

Á meðan fréttir ber­ast af nýju köldu stríði og rúss­neski flot­inn ögrar nærri Íslands­ströndum fór Valur Gunn­ars­son til Moskvu og var tekið vel.

Rússland eða lífið

„Menn þurftu að velja á milli Rúss­lands og lífs­ins,“ segir bók­mennta­fræð­ingur nokkur þar sem hann sýnir mér hvar sagan um Meist­ar­inn og margar­ít­una hófst í mið­borg Moskvu. Höf­und­ur­inn Búlgakov lok­að­ist inni og fékk verk sín ekki útgefin en Stalín hafði verið hrif­inn af einu leik­rita hans og var honum því forðað frá aftöku en lést úr nýrna­bilun árið 1940. Aðrir, svo sem Nóbels­verð­launa­haf­inn Búnin, kusu lífið og héldu á brott en döfn­uðu aldrei í burtu frá Rúss­landi. Þegar Meist­ar­inn og margar­ítan kom loks út 40 árum síðar reynd­ist hún með helstu bók­mennta­verkum 20. aldar.  

Það er gullið haust í Moskvu, allir hafa heyrt um rúss­neska vet­ur­inn en sumrin eru hlý og haustið prýtt litum sem fjúka ekki burt á einni nóttu eins og heima. Hér láta allar árs­tíðir finna fyrir sér. Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem til Moskvu síðan hita­sum­arið mikla 2010 og maður getur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár