Stigakóngurinn á Ísafirði: „FBI hleraði símana mína“

Dwayne Fontana, banda­rískur körfu­bolta­maður sem spil­aði með KFÍ á Ísafirði, segir að veð­mála­svind­lið í Arizona hafi fylgt sér út fer­il­inn, meira að segja til Ísa­fjarðar. Hann seg­ist telja að Hedake Smith skuldi sér afsök­un­ar­beiðni fyrir að komið sér í erf­iða aðstöðu.

Stigakóngurinn á Ísafirði: „FBI hleraði símana mína“
Málið úr Arizona State elti hann Dwayne Fontana, sem sést hér ásamt syni sínum, í peysum merktum Arizona State-háskól­anum, segir að veð­mála­svind­lið hafi elt sig, meira að segja til Íslands þar sem vit­neskja var um það.

Dwayne Fontana, banda­ríski körfu­bolta­leik­mað­ur­inn sem var stiga­kóngur íslensku úrvalds­deild­ar­innar árið 2000-2001 þegar hann spil­aði með KFÍ á Ísafirði, segir að Banda­ríska alrík­is­lög­reglan (FBI) hafi hlerað sím­ann hans og komið heim til hans til að spyrja hann um veð­mála­svind­lið sem tveir liðs­fé­lagar hans í háskóla tóku þátt í og högn­uð­ust á. Hann segir, í við­tali við Stundina, að FBI hafi gert þetta til að fá upp­lýs­ingar um það hvort hann hafi vitað af veð­mála­hneyksl­inu sem átti sér stað í lið­inu sem hann var í, Arizona State, árið 1994.  Dwayne var stiga­hæsti leik­maður íslensku úrvals­deild­ar­innar árið 2000-2001 með 33 stig að með­al­tali í leik.

„FBI hler­aði sím­ana mína. Ég gat heyrt í þeim á lín­unni þegar þeir voru að hlusta á sím­tölin mín, það heyrð­ust svona stöðug klikk í bak­grunn­inum.  FBI kom svo heim til mín til að taka skýrslu af mér, þeir voru heima hjá mér í svona þrjá klukku­tíma.  Þeir vissu að ég hefði ekki tekið þátt í þessu en þeir vildu vita ef ég hefði vitað eitt­hvað um þetta og hvað ég vissi. En ég vissi ekki neitt um þetta,“ segir Dwayne. 

Ekki nægilega nánir vinir 

Eins og Stundin greindi frá fyrr í vik­unni þá er Dwayne Fontana við­mæl­andi í nýrri heim­ild­ar­mynd á streym­is­þjón­ust­unni Netflix um veð­mála­svindl í banda­ríska háskóla­körfu­bolt­anum árið 1994.  Myndin um veð­mála­svind­lið í körfu­boltaliði Arizona State er hluti af sex mynda seríu á Netflix sem heitir Bad Sport og fjallar um svindl og glæpi í íþrótta­heim­inum.  Myndin á Netflix fjallar um það hvernig stjarna Arizona State-liðs­ins, Steven „Hedake“ Smith, dróst inn í veð­mála­svindl ásamt einum með­spil­ara sinna. Svindlið gekk út á að reyna að stýra því hvernig leikir liðs­ins end­uðu.  Liðs­fé­lagar Dwayne, meðal ann­ars „Hedake“, voru dæmdir í fang­elsi fyrir svind­lið 

„Af hverju var ég að leggja svona hart að mér inni á vell­inum þegar hann var að stunda svona svindl?“
Dwayne Fontana

Dwayne segir að jafn­vel þó að hann og aðal­mað­ur­inn í svindlinu í liði Arizone-skól­ans, „Hedake“ Smith, hafi verið á sama ári í háskóla þá hafi þeir ekki verið nægi­lega nánir og góðir vinir til að hann hefði sagt Dwayne frá því hvað hann var að gera. „Við erum í skól­anum og lið­inu saman í fjögur ár. Við vorum vinir en vorum ekki nægi­lega miklir vinir til að hann myndi segja mér eitt­hvað svona.“

Hann seg­ist ennþá vera pirr­aður út í þennan fyrrum liðs­fé­laga sinn: „Af hverju var ég að leggja svona hart að mér inni á vell­inum þegar hann var að stunda svona svindl? Hann eyði­lagði árið hjá okkur. Þetta var van­virð­ing við mig.“

Vill afsök­un­ar­beiðniDwayne Fontana segir að hann telji að hann eigi inni afsök­un­ar­beiðni frá Hedake Smith, sem sér hér á mynd, fyrir að hafa komið sér í erf­iða aðstöðu.

Spurður um málið á Íslandi

Dwayne segir að myndin um veð­mála­hneykslið hafi vakið upp sterkar til­finn­ingar hjá sér. „Ég hafði kom­ist yfir þetta loks­ins, þetta gerð­ist fyrir næstum því 30 árum. Ég hafði ekk­ert kom­ist yfir þetta 10 árum eftir að þetta gerð­ist. En svo kall­aði þessi mynd upp til­finn­ingar mínar út af þessu. Mér fannst þetta vera ósann­gjart gagn­vart mér; ég vissi ekki um þetta, ég var ekki hluti af þessu en ég þurfti samt stöðugt að svara spurn­ingum um þetta,“ segir Dwayne. 

Hann segir að hann hafi meðal ann­ars verið spurður út í málið þegar hann kom til Íslands og Ísa­fjarðar; málið hafi verið það þekkt, meira að segja alþjóð­lega. Dwayne vísar í orðum sínum til þáver­andi for­manns körfu­bolta­deildar Ísa­fjarðar, Guðjóns Þor­steins­sonar;  „Meira að segja á Íslandi. Þegar ég kom til Ísa­fjarðar spurði Gaui [Guðjón Þor­steins­son] mig að þessu veð­mála­svindli af því þetta var á inter­net­inu,“ segir Dwayne sem var orð­inn vanur að fá slíkar spurn­ingar hvar sem hann spil­aði og jafn­vel þó að hann hafi ekki komið neitt að því þá hafi málið fylgt honum um ára­bil. 

Varð gráðugur og það varð honum að falli

Þegar Dwayne er spurður að því hvort hann telji að þetta veð­mála­svindls­mál sé ástæðan fyrir því að „Hedake“ Smith hafi ekki verið val­inn í NBA-deild­ina þá seg­ist hann telja það. „Já, ekki spurn­ing. Ef hann hefði ákveðið að fara í NBA-deild­ina eftir næst­síð­asta árið sitt í háskóla þá hefði hann verið val­inn: Hann var það góður. Hann fer svo út í þetta veð­mála­svindl á síð­asta árinu sínu og það hafði þau áhrif að hann var ekki val­inn í NBA-deild­ina því NBA-liðin vissu að það var mögu­leiki á að hann yrði dæmdur fyrir þetta. Hann kastaði draumum sínum á glæ. En þetta er ákvörðun sem hann tók og hann vissi að hann var að gera eitt­hvað ólög­legt og þeir nöpp­uðu hann af því hann varð gráð­ugur. Hann hélt áfram að gera þetta. Hann tók áhættu og hann tap­aði,“ segir Dwayne. 

„Hedake“ Smith var dæmdur í fang­elsi í eitt ár árið 1997. Dwayne seg­ist ekki hafa verið í sam­skiptum við hann í meira en 20 ár. 

Hvað áhrif hafði málið á feril Dwayne?

Dwayne segir, aðspurður um hvort og þá hvaða áhrif þetta mál hafi haft á feril hans sjálfs, að hann viti það ekki alveg en að málið hafi fylgt sér, sam­an­ber spurn­ingar um málið á Íslandi. Mögulega hafi ein­hver lið veigrað sér við að semja við hann. „Málið fylgdi mér í mörg ár af því ég var tengdur við það. Kannski voru ein­hver lið sem sömdu ekki við mig vegna tengsla minna við þetta hneyksli,“ segir Dwayne. 

Hann segir að hann telji að „Hedake“ Smith skuldi sér afsök­un­ar­beiðni vegna máls­ins. „Mér finnst að hann skuldi mér afsök­un­ar­beiðni eftir öll þessi ár. Þú veist: Maður á mann. Að hann segi: Ég biðst afsök­unar, ég var ungur, ég vissi ekki hvaða afleið­ingar þetta gæti haft og ég biðst afsök­unar. Þetta myndi láta mér líða miklu betur.“

Snjórinn og kuldinn það fyrsta sem kemur upp í hugann

Eftir að Dwayne Fontana fór frá Íslandi hélt hann til Spánar og Lúx­em­borgar og spil­aði þar í sam­tals nokkra mán­uði, segir hann. Fljót­lega eftir að hann flutti frá Ísafirði til meg­in­lands­ins hætti hann hins vegar í körfu­bolta, 28 ára gam­all. „Ég var orð­inn leiður á að vera á stöð­ugum ferða­lögum og ég bað þá bara að senda mig heim frá Lúx­em­borg. Ég komst líka að því þarna úti í Lúx­em­borg að konan mín í Banda­ríkj­unum væri ólétt af syni okkar og þá vissi ég að þetta væri komið gott,“ segir Dwayne. 

Aðspurður um hvað sé það fyrsta sem komi upp í hug­ann þegar hann hugsar til­baka til Íslands­dval­ar­innar þá nefnir hann snjó­inn. „Þetta var í fyrsta skipti á ævinni sem ég sá snjó, það snjó­aði allan tím­ann. Og svo var svo kalt, svo rosa­lega kalt.“ segir Dwayne, sem er upp­al­inn í borg­inni Oakland í Kali­forníu þar sem hann býr í dag ásamt konu sinni og þremur börnum. 

„Sam­fé­lagið á Ísafirði var líka svo lítið og vina­legt að fólk fór út í búð, skildi bíl­inn eftir í gangi, skildi börnin sín eftir í bílnum og fór inn að versla. Ef þú myndir gera þetta í Oakland þá myndi ein­hver stela bílnum þínum, eða börn­unum þínum. Allir þekktu alla; ég húkk­aði mér far á hverjum degi til að fara út í búð og fólk keyrði mig hvert sem ég vildi. Allir voru svo vina­legir. Þetta var svo ólíkt Kali­forníu en ég vand­ist þessu og ég komst í gegnum þetta og kláraði þetta. Það var ekki bara að Ísa­fjörður væri svo ólíkur Kali­forníu heldur var Ísa­fjörður svo frá­brugð­inn Reykja­vík. En þetta var góður tími, góður tími og ég naut hans.“

Fyr­ir­vari um tengsl: Blaða­maður Stund­ar­innar spil­aði körfu­bolta með Dwayne á Ísafirði árin 2000 til 2001. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár