Pandóruskjölin: Efnafyrirtæki flutti pening í skattaskjól eftir mengunarslys

Gögn úr Pand­óru­skjöl­unum sýna að Bernard de Laguiche faldi eign sína í Solvay efnaris­anum á meðan sótt var að fyr­ir­tæk­inu fyrir að menga grunn­vatn á Ítalíu og í Banda­ríkj­unum.

Pandóruskjölin: Efnafyrirtæki flutti pening í skattaskjól eftir mengunarslys
Bernard de Laguiche Stjórn­andi hjá Solvay faldi hluta­bréf sín í aflands­fé­lagi á meðan rann­sókn á meng­un­ar­slysi stóð yfir.

Á köldum degi í des­em­ber árið 2005 fór Pietro Mancini, sér­fræð­ingur á rann­sókn­ar­stofu, niður í kjall­ara á gam­alli efna­verk­smiðju í bænum Spinetta Marengo á Norður-Ítalíu þar sem hann fann nokkuð und­ar­legt: taum af gulu ryki á veggj­unum og gólf­inu, sem virt­ist hafa orðið eftir þegar bráð­inn snjór hafði flætt þar inn.

Í geymslu í annarri bygg­ingu fann hann leðju, sem einnig var gul­leit og flæddi úr rifu á gólf­lista. Hann tók sýni. Eftir próf­anir kom í ljós að efnið var stút­fullt af sex­gildu krómi, þunga­málmi sem getur valdið krabba­meini.

„Þeir sögðu mér að hafa ekki áhyggjur, að þetta kæmi mér ekki við“

Þegar Mancini kvart­aði undan þess­ari ógn við heilsu starfs­mann­anna gerðu yfir­menn verk­smiðj­unnar og rann­sókn­ar­stof­unnar lítið úr áhættuni, að því fram kom í máli Mancini síðar. „Þeir sögðu mér að hafa ekki áhyggjur, að þetta kæmi mér ekki við,“ sagði hann.

Í 120 ár hefur verk­smiðjan fram­leitt alls konar eit­ur­efni, þar á meðal lit­ar­efni og skor­dýra­eitrið DDT. Skaðleg efni sem notuð voru í fram­leiðsl­unni voru grafin á svæð­inu og láku ofan í grunn­vatnið. Verk­smiðjan fór í kjöl­farið að fram­leiða flú­or­efni, sem einnig eru skað­leg, til að gera hita­þolið plast og minnka við­loðun efna við það, til dæmis vatn­helda húð fyrir potta og efna­vöru.

Árið 2011 lof­aði nýr eig­andi, belgíski efnaris­inn Solvay SA, að svæðið yrði hreinsað og lekar stöðv­aðir. Yfirmenn sem unnu fyrir arki­tekt kaupanna, Bernard de Laguiche, stjórn­anda hjá Solvay, áttu að sjá um ferlið og til­kynna ítölskum stjórn­völdum um hvernig mið­aði.

En þrifin og við­gerð­irnar töfð­ust. Í stað þess að til­kynna vanda­málin til yfir­valda skil­uðu starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins og verk­takar skýrslum sem gerðu lítið úr meng­un­inni og hætt­unni af henni sam­kvæmt fram­burði vitna og skjölum sem ítölsk yfir­völd fengu og voru í fram­hald­inu skoðuð af alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, International Consortium of Investigative Journalists (ICIJ).

Árið 2008, næstum þremur árum eftir að Mancini komst að því hver staðan væri í geymsl­unni, fundu skoð­un­ar­menn sexgilt króm í brunnum við verk­smiðj­una í 40-földu magni miðað við það sem lög­legt er. Yfirvöld á staðnum lýstu yfir neyð­ar­á­standi.

Ítalskir sak­sókn­arar ákærðu loks á þriðja tug manns, þar á meðal yfir­menn hjá Solvay og fyrrum yfir­mann verk­smiðj­unnar, og sögðu það vilj­andi gert að grunn­vatnið hafi verið eitrað og svæðið ekki hreinsað upp.

Á meðal þeirra ákærðu voru de Laguiche, sem er af einni af stofn­fjöl­skyldum Solvay. Hann hafði staðið fyrir kaup­unum á verk­smiðj­unni og fleirum í Evrópu og Banda­ríkj­unum sem not­uðu flú­or­efni með það fyrir augum að Solvay keppti við ris­ann DuPont sem fram­leiðir Teflon vör­urnar. Kaupin á verk­smiðj­unum höfðu ýtt undir vel­gengni fyr­ir­tæk­is­ins.

Stuttu áður en ákær­urnar voru lagðar fram og svo aftur skömmu á eftir fluttu de Laguiche og nán­ustu fjöl­skyldu­með­limir hann and­virði rúm­lega 50 millj­óna Banda­ríkja­dala í sjóði á Singapúr og Nýja-Sjálandi með aðstoð fjár­mála­þjón­ustu með aflands­reikn­inga og sviss­neskra ráð­gjafa, að því fram kemur í trún­að­ar­gögnum.

Gögnin eru kölluð Pand­óru­skjölin og þeim var lekið til ICIJ sem deildi þeim með hópi alþjóð­legra fjöl­miðla. Stundin er sam­starfs­að­ili ICIJ á Ísland. Gögnin sýna gríð­ar­legt flæði pen­inga til skatta­skjóla af hálfu ríks og valda­mik­ils fólks, sem kemur því þannig undan skatt­heimtu­mönnum og yfir­völdum og for­dæma­lausar upp­lýs­ingar um fag­menn­ina sem hjálpa þeim.

Úr gögn­unum má lesa að meðal þeirra sem flytja pen­inga sína í aflands­fé­lög og -sjóði eru stjórn­endur efna­fyr­ir­tækja sem sökuð hafa verið um meiri­hátt­ar­brot á umhverf­is­vernd­ar­lög­gjöf. Á meðal þeirra eru Jai og Vikram Shroff hjá UPL Ltd., ind­verskum fram­leið­anda skor­dýra­eit­urs sem hefur verið sektaður af þar­lendum dóm­stól fyrir að fara á svig við umhverf­is­reglu­gerðir, og Vladimir og Sergei Makhlai, sem stýrðu heims­ins stærsta ammón­íaks­fram­leið­anda áður en þeir voru báðir sak­felldir fyrir svik í Rúss­landi árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Viðskiptavild helmingurinn af 5,5  milljarða kaupum Kviku af hluthöfum bankans
Viðskipti

Við­skipta­vild helm­ing­ur­inn af 5,5 millj­arða kaupum Kviku af hlut­höfum bank­ans

Almenn­ings­hluta­fé­lagið Kvika, sem er meðal ann­ars í eigu líf­eyr­is­sjóða, keypti meiri­hluta í bresku fast­eigna­veð­lána­fyr­ir­tæki árið 2022. Fyr­ir­tækið var áður í eigu for­stjóra Kviku, Ármanns Þor­valds­sonar, sem starf­aði þar í nokkur ár. Þeir sem seldu Kviku fyr­ir­tækið voru meðal ann­ars stærsti einka­að­il­inn í hlut­hafa­hópi bank­ans, Stoðir. FME hefur áður sektað Kviku út af við­skiptum sem tengj­ast Ortus. Kvika segir ekk­ert athuga­vert við við­skiptin og að hlut­laustir utan­að­kom­andi sér­fræð­ingar hafi komið að þeim.
Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Úkraínski sígarettukóngurinn sem fór með konu í stríð
ÚttektPandóruskjölin

Úkra­ínski sígar­ettu­kóng­ur­inn sem fór með konu í stríð

Pand­óru­skjölin sýna hvernig úkra­ínskur með­fram­leið­andi íslensku verð­launa­mynd­ar­innar Kona fer í stríð sækir í aflands­sjóð til að fjár­magna kvik­mynda­verk­efni sín. Uppruni pen­inga hans er gríð­ar­stórt sígar­ettu­veldi í Úkraínu. Fram­leið­andi mynd­ar­innar full­yrðir þó að þeir pen­ingar hafi ekki verið not­aðir við gerð íslensku mynd­ar­innar.
Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár