Mynd: afp

Ímyndarherferð Talíbana

Talí­banar hafa aftur náð völdum í Afganistan, 20 árum eftir að inn­rás­ar­lið Banda­ríkj­anna steypti stjórn þeirra. Konur og minni­hluta­hópar ótt­ast ofsóknir og harka­legt stjórn­ar­far sam­kvæmt fyrri reynslu en leið­togar talí­bana lofa auknu umburð­ar­lyndi.

Flestir sér­fræð­ingar spáðu því að talí­banar myndu fljótt sækja í sig veðrið eftir að Banda­ríkja­menn drógu síð­asta her­lið sitt heim frá Afganistan. Stjórnin í Kabúl var gjör­spillt, hafði lítil völd utan stærstu borga lands­ins og naut ekki stuðn­ings almenn­ings. Hversu hratt spila­borgin hrundi kom hins vegar mörgum í opna skjöldu, ekki síst ráða­mönn­unum sjálfum í Kabúl.

„Þegar maður spyr sig hvers vegna afganski her­inn streitt­ist ekki á móti sókn talí­bana verður fyrst af öllu að athuga hvernig hann varð til,“ segir Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Háskóla Íslands. Hann kennir meðal ann­ars arab­ísku og sögu Mið-Aust­ur­landa.

Þórir Jónsson Hraundal

„Banda­ríski her­inn gerði þau reg­in­mi­s­tök að reyna að búa til afrit af sér sjálfum í lands­lagi og menn­ingu þar sem það átti alls ekki við. Það gat aldrei gengið upp þrátt fyrir vilja til að ausa enda­lausum millj­örðum doll­ara í þjálfun og tækja­kost …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár