Landvernd segir Vinstri græn hafa skort þrek og þor til að stofna Hálendisþjóðgarð

Þingmenn Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks beittu sér gegn Hálendis­þjóðgarði, þrátt fyrir að málið væri í stjórnar­sáttmála. Landvernd segir meðferð ríkis­stjórnarinnar hafa skaðað stuðning við málið hjá almenningi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son Land­vernd lýsir yfir von­brigðum með að frum­varp umhverf­is­ráð­herra hafi ekki fengið braut­ar­gengi.

Landvernd lýsir yfir miklum vonbrigðum með framgöngu ríkis­stjórnar Sjálfstæðis­flokks, Framsóknar­flokks og Vinstri grænna í máli Hálendis­þjóðgarðs, en frumvarp um stofnun hans dagaði uppi í nefnd fyrir þinglok. Þetta kemur fram í ályktun aðal­fundar Land­verndar sem fram fór laugar­daginn 12. júní.

Frumvarp fyrr­verandi framkvæmda­stjóra Land­verndar, Guðmundar Inga Guðbrands­sonar umhverfis- og auðlinda­ráðherra, var sent aftur til ráðherra úr umhverfis- og samgöngu­nefnd Alþingis. Þingið er nú farið í frí fyrir kosningar í haust.

Málið fékk lítinn stuðning þingmanna úr röðum Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks og lýstu sumir þeirra sig andvíga því að það yrði afgreitt. Þing­flokkur Framsóknar­flokks setti sjö fyrirvara við málið eftir að það hafði verið afgreitt úr ríkis­stjórn. Þjóð­garðurinn naut hins vegar stuðnings þingmanna úr röðum Samfylkingar og Pírata.

„Nú undir lok kjör­tímabilsins er orðið ljóst að það var aldrei raun­veruleg ætlun allra stjórnar­flokkanna að stofna Hálendis­þjóðgarð og sá stjórnar­flokkur sem í raun studdi málið reyndist hvorki hafa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár