„Landspítali er vísvitandi að setja sjúklinga og starfsfólk í hættu“

Eggert Eyj­ólfs­son, bráða­læknir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans og félags­maður í Félagi bráða­lækna, segir spít­al­ann vís­vit­andi vera að setja sjúk­linga og starfs­fólk spít­al­ans í hættu eins og ástandið er þar núna. Í yfir­lýs­ingu sem Félag bráða­lækna sendi frá sér vísar félagið ábyrgð­inni á alvar­legum atvikum er varða sjúk­linga yfir á stjórn spít­al­ans, því að þeirra sögn geta læknar ekki borið ábyrgð á atvikum í ástandi sem slíku.

„Landspítali er vísvitandi að setja sjúklinga og starfsfólk í hættu“
Geta ekki ábyrgst alvar­leg atvik Félag bráða­lækna lýstu því yfir við for­stjóra Land­spít­ala að læknar bráða­mót­töku gætu ekki tekið ábyrgð á þeim alvar­legu atvikum sem kynnu að verða sökum mann­eklu á deild­inni Mynd: Heiða Helgadóttir

Hver ein­asti starf­andi sér­fræði­læknir á bráða­mót­töku, að yfir­læknum frá­töldum, skrif­uðu undir bréf til for­stjóra Land­spít­al­ans, Páls Matth­í­as­sonar, þann 6. maí síð­ast­lið­inn, þar sem þeir sögðu Land­spít­ala vera „vís­vit­andi að setja sjúk­linga og starfs­fólk í hættu“.

Lækn­arnir mátu ástandið á bráða­mót­tök­unni þannig að vegna stöð­unnar munu „óþarfa alvar­leg atvik koma upp sem geta jafn­vel leitt til dauða“, að hætt sé við því að sjúk­lingar fái „ranga grein­ingu og þannig ranga með­ferð“, að vegna mann­eklu sér­fræði­lækna á deild­inni sé „aug­ljós­lega ekki hægt að tryggja öryggi sjúk­linga sem leita á bráða­mót­töku“ og að sjúk­lingar munu verða fyrir óþarfa töf sem í sumum til­fellum getur verið „lífs­hættu­leg“.

Einn þeirra sér­fræði­lækna sem skrif­uðu undir bréfið er Eggert Eyj­ólfs­son, starf­andi bráða­læknir á bráða­mót­töku, sem segir for­stjóra spít­al­ans hafa svarað erind­inu sam­dæg­urs í óform­legum tölvu­pósti þar sem hann til­greindi að erindið væri mót­tekið og skoðað fljótt. „Síðan heyrum við ekki neitt fyrr en bara í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Spítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heilbrigðisráðherra ætlar að skoða réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks
FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Léttir að heil­brigð­is­ráð­herra ætlar að skoða rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur varð meyr við að lesa frétt­ar­til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu þess efnis að heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að taka til skoð­unar rétt­ar­stöðu heil­brigð­is­starfs­fólks í tengslum við til­kynn­ingar og rann­sókn alvar­legra atvika í heil­brigð­is­þjón­ustu. Ásta er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna starfs síns.
Missti allt úr höndunum eftir sýknudóm
ViðtalSpítalinn er sjúklingurinn

Missti allt úr hönd­unum eftir sýknu­dóm

Ásta Kristín Andr­és­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er eini heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn á Íslandi sem hefur verið ákærð fyrir mann­dráp af gáleysi í starfi. Lög­reglu­rann­sókn, ákæran, sem og máls­með­ferðin, tóku mikið á Ástu sem lýsir með­ferð máls­ins sem stríði. Þrátt fyrir að hafa hlotið sýknu í mál­inu hefur stríðið setið í henni, leitt hana á dimma staði þangað til að hún „missti allt úr hönd­unum“.
Yfirfull bráðamóttaka gat ekki tekið á móti sjúklingi í hjartastoppi
FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Yfirfull bráða­mót­taka gat ekki tekið á móti sjúk­lingi í hjarta­stoppi

Helga Rósa Más­dóttir, deild­ar­stjóri bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, stað­festir í sam­tali við Stundina að sjúk­lingi í hjarta­stoppi var vísað frá bráða­mót­tök­unni yfir á Hjarta­gátt spít­al­ans vegna þess að bráða­móttakan var full. Skráð hefur verið atvik vegna máls­ins. „Við erum að hafna deyj­andi fólki,“ segir áhyggju­fullur starfs­maður.
Veikt fólk innilokað í gluggalausu rými
VettvangurSpítalinn er sjúklingurinn

Veikt fólk inni­lokað í glugga­lausu rými

Á þeim þremur mán­uðum sem liðnir eru frá því að starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar sendi frá sér hjálp­ar­kall þar sem það sagð­ist lifa ham­farir hefur lítið sem ekk­ert verið aðhafst til að bæta starfs­að­stæður þeirra. Ef eitt­hvað er þarf það að hlaupa enn hraðar og mann­rétt­indi sjúk­linga eru brotin að mati bráða­læknis sem fylgdi blaða­manni í gegnum deild­ina. Aðstæður á vett­vangi voru slá­andi.
Áhyggjur af því að komandi kosningar hafi áhrif á samstöðu almennings
FréttirSpítalinn er sjúklingurinn

Áhyggjur af því að kom­andi kosn­ingar hafi áhrif á sam­stöðu almenn­ings

Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir á Land­spít­al­anum, segir að hann og annað heil­brigð­is­starfs­fólk hafi áhyggjur af því að það „muni skorta á sam­stöðu fólks til að takast á við þetta með sama hætti og hefur verið gert hingað til“. Þá seg­ist hann einnig hafa áhyggjur af sam­stöðu almenn­ings í ljósi þess að kosn­ingar séu á næsta leiti og að stjórn­mála­menn lýsi and­stöðu sinni við ráð­legg­ingar sótt­varna­læknis.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár