Gengst við samskiptum við Pál

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra seg­ist hafa verið í sam­skiptum við Pál Stein­gríms­son, skip­stjóra Samherja og einn með­lima „skæru­liða­deildar“ fyr­ir­tæk­is­ins. Ráð­herr­ann svar­aði ekki spurn­ingum Stund­ar­innar um sam­skiptin þegar greint var frá þeim á þriðju­dag.

Gengst við samskiptum við Pál
Samherji Kristján Þór hefur tals­verð tengsl við útgerð­ar­fé­lagið Samherja og töl­uðu „skæru­liðar“ fyr­ir­tæk­is­ins um hann sem sinn mann. Mynd: Davíð Þór

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann Kristján Þór Júl­í­us­son stað­festir í sam­tali við RÚV að hann hafi átt í sam­skiptum við Pál Stein­gríms­son, skip­stjóra Samherja. Hann neitar því þó að hafa verið í sam­bandi við hina svoköll­uðu „skæru­liða­deild“ fyr­ir­tæk­is­ins, sem Páll þó til­heyrði.

Stundin greindi frá því á þriðju­dag að skæru­liða­deildin hafi talað um Kristján Þór sem sinn mann og að Páll hafi leitað hjá honum ráða. 

Stundin og Kjarninn hafa und­an­farna viku fjallað um og afhjúpað starf­semi þess­arar skæru­liða­deildar Samherja, sem sam­an­stóð af Páli, Þorbirni Þórð­ar­syni, almanna­tengsla­ráð­gjafa útgerð­ar­innar, og Örnu McClure, inn­an­hús­lög­manni fyr­ir­tæk­is­ins.

Þau voru lyk­il­fólk í þeirri áróð­ur­svél sem stjórn­end­ur út­gerð­ar­inn­ar Sam­herja ræstu eft­ir upp­ljóstran­ir um mútu­greiðsl­ur til namib­ískra stjórn­mála­manna.

„Ég hef aldrei verið í sam­skiptum við neina skæru­liða­deild og hef ekki hugsað mér að taka upp slíkt verk­lag“

„Ég hef verið í sam­skiptum við Pál Stein­gríms­son sem ég þekki bara frá því að hann var nem­andi í Stýri­manna­skól­anum á Dalvík eins og aðra íbúa í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Ég hef aldrei verið í sam­skiptum við neina skæru­liða­deild og hef ekki hugsað mér að taka upp slíkt verk­lag,“ segir Kristján Þór í sam­tali við RÚV.

Stundin leit­aði við­bragða Krist­jáns Þórs á þriðju­dag, áður en fjallað var um sam­skipti hans og Páls. Þeim spurn­ingum sem beint var til ráð­herr­ans hefur ekki enn verið svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

„Skæruliðar“ Samherja

ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Fréttir

Þor­steinn svarar engu um dylgjur í afsök­un­ar­beiðni

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, seg­ist ekki ætla að svara um efni afsök­un­ar­beiðni sem fyr­ir­tæki hans birti óund­ir­rit­aða á vef­síðu sinni um helg­ina. Stundin beindi til hans sömu spurn­ingu og lög­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafði krafið Lilju Dögg Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra svara um nokkrum vikum fyrr. Í afsök­un­ar­beiðn­inni er full­yrt að umfjöllun hafi verið „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu