Segir íþyngjandi kröfur til kvenna stuðla að lækkandi fæðingartíðni

Sunna Sím­on­ar­dóttir félags­fræð­ingur sér­hæfir sig í rann­sóknum á móð­ur­hlut­verk­inu og íþyngj­andi kynj­uðum vænt­ingum til kvenna. Hún segir fjöl­þætt félags­leg ferli hafa áhrif á fæð­ing­ar­tíðni, sem er í sögu­legu lág­marki hér á landi.

Segir íþyngjandi kröfur til kvenna stuðla að lækkandi fæðingartíðni
Sunna Sím­on­ar­dóttir, félags­fræð­ingur Sunna vill opna umræð­una um lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni og segir auknar kröfur til for­eldra­hlut­verks­ins vera mik­il­vægan áhrifa­þátt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fæð­ing­ar­tíðnin er ein af þessum stóru sam­fé­lags­legu áskor­unum sem þarf að horfast í augu við, segir dr. Sunna Sím­on­ar­dóttir félags­fræð­ingur, sem sér­hæfir sig í rann­sóknum á móð­ur­hlut­verk­inu. 

Athygli vakti fyrir nokkru þegar Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, ræddi lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni á Alþingi og hvatti fólk til að „ferð­ast innan svefn­her­berg­is­ins“. Ummælin vöktu tals­verða umræðu á sínum tíma og sitt sýnd­ist hverjum, sumum þótti óvið­eig­andi að þing­maður skipti sér af upp­á­ferðum með slíkum hætti.

Sunna segir að slík ummæli séu takt­laus en fagnar tæki­færi til að opna umræð­una um lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni. „Við erum að sjá fæð­ing­ar­tíðn­ina lækka frá því í fyrra. Nú er hún komin niður í 1,72 en þarf að vera 2,1 til að við­halda mann­fjöld­anum til lengri tíma. Vonandi getum við rýnt í hvað nákvæm­lega er að ger­ast í stað þess að leita að ein­faldri alls­herjar útskýr­ingu,“ segir Sunna.

Svefnherbergisferðalög í þágu ríkiskassans

Fæð­ing­ar­tíðni á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár