SMS Róberts til fyrrverandi samstarfsmanna sinna: „Þú ert dauður ég lofa“

Róbert Wessman, for­stjóri Alvogen, sendi rúm­lega 30 hat­urs­full og ógn­andi SMS-skila­boð til fyrr­ver­andi sam­starfs­manna sinna há Actavis. Ástæðan var að annar þeirra hafði borið vitni í skaða­bóta­máli Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar gegn honum árið 2016. Alvogen lét skoða málið en segir engin gögn hafa bent til þess að „eitt­hvað væri athuga­vert við stjórn­un­ar­hætti Róberts.“ Stundin birtir gögnin.

SMS Róberts til fyrrverandi samstarfsmanna sinna: „Þú ert dauður ég lofa“

„Ég mun taka þig niður ég mun vinna að því að drepa þig og claudio þú ert svo mik­ill lúser og þú veist það,“ skrif­aði Róbert Wessmann, fjár­festir og for­stjóri Alvogen, í sms-skila­boðum til fyrr­ver­andi sam­starfs­manns síns hjá Actavis í lok jan­úar 2016. Þetta kemur fram í gögnum sem Stundin hefur undir höndum. Róbert sendi mann­inum, Mark Keatley, og fyrr­ver­andi for­stjóra Actavis, Claudio Albrecht, þá fjölda sms-skila­boða þar sem hann hót­aði þeim líf­láti, sak­aði þá um svik og jós yfir þá fúk­yrðum af því Keatley hafði borið vitni fyrir hönd Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í einu af deilu­málum fjár­fest­anna. Róbert og Björgólfur Thor hafa eldað grátt silfur um ára­bil. 

Í yfir­lýs­ingu frá stjórn Alvogen kemur hins vegar fram að óháð nefnd og alþjóð­leg lög­fræði­stofa hefðu farið yfir ásak­anir á hendur Róberti. „Þá bentu engin gögn til þess að eitt­hvað væri athuga­vert við stjórn­un­ar­hætti Róberts.“ Í kjöl­farið hefur náinn sam­starfs­maður hans til 18 ára stigið fram og sagt Róbert hafa kýlt sig í and­litið fyr­ir­vara­laust.

Málið sem fyrr­ver­andi sam­starfs­maður Róberts vitn­aði í var skaða­bóta­mál Björg­ólfs Thors gegn Róberti og við­skipta­fé­laga hans, Árna Harð­ar­syni, þar sem Björgólfur krafði þá um bætur upp á 2 millj­ónir evra vegna ætl­aðra milli­færsla þeirra á pen­ingum sem þeir áttu sam­eig­in­lega í félag­inu Mainsee 516.

Lára Ómars­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi fjár­fest­ing­ar­fé­lags Róberts, segir að fjár­festir­inn geri sér grein fyrir því að það hafi verið mis­tök að senda sms-in: „Þetta voru mis­tök sem Róbert sá strax eftir og baðst afsök­unar.  Róbert gerir sér full­kom­lega grein fyrir því að það var rangt af honum að senda skila­boðin og hann sá strax eftir því að hafa sent skila­boðin.  Hann lærði af þessum mis­tökum og þetta hefur ekki gerst fyrr né síðar.“

33 sms-skilaboð með svívirðingum

Róbert sendi þeim Mark, sem var fjár­mála­stóri Actavis þegar Róbert var for­stjóri félags­ins fram til árs­ins 2007, og Claudio sam­tals 33 sms-skila­boð á innan við sól­ar­hring og hót­aði þeim og fjöl­skyldum þeirra öllu illu. Róbert hafði reynt að hringja tvisvar sinnum til Mark Keatley eftir að hann hafði borið vitni í máli Björg­ólfs Thors gegn honum en Mark hafði ekki svarað.

Í kjöl­farið hóf hann umræddar sms-send­ingar. „Segðu halló til claudio ég mun ganga frá ykkur lygara skíta­hæll­inn þinn,“ sagði hann í sms-skila­boðum til Mark Keatleys  28. jan­úar.  Loka­skila­boð Róberts til Claudio Albrechts voru að hann væri dauður: „Bott­om­lænið er að þú ert dauður ég lofa.“

Þeir Mark og Claudio ráku saman ráð­gjafa­fyr­ir­tæki í lyfja­iðn­aði á þessum tíma, Albrech Prock and Partners, og virð­ist Róbert hafa litið svo á þeir væru sam­eig­in­lega í ein­hvers konar her­ferð gegn sér. 

Á end­anum, rúmum tveimur vikum eftir sms-send­ing­arnar, komst Hér­aðs­dómur Reykja­víkur að þeirri nið­ur­stöðu að Róbert og Árni þyrftu ekki að greiða Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni skaða­bætur í mál­inu. Róbert hafði því betur gegn Björgólfi Thor í þess­ari rimmu þeirra og var sýkn­aður og vitn­is­burður Mark Keatleys var ekki afger­andi Björgólfi Thor í vil.

„Næst þegar við erum stað­settir í sömu borg skaltu fela þig skít­hæll­inn þinn.“
Róbert Wessman við Claudio Albrecht
Sagðist ætla að drepa AlbrechtRóbert sagð­ist ætla að drepa Claudio Albrecht, fyrr­ver­andi for­stjóra Actavis.

Óttuðust um velferð sína

Eftir að hafa tekið við sms-skila­boð­unum frá Róberti leit­uðu þeir Mark og Claudio til lög­manns­stofu í London sem heitir Grosvenor Law. Lög­manns­stofan sendi bréf um hót­anir Róberts til bæði fjár­fest­is­ins sjálfs og eins til Alvogen. Í bréf­inu til Róberts sagði meðal ann­ars: „Við vísum til fjölda sér­lega meið­andi, hat­urs­fullra og hót­andi sms-skila­boða. Umbjóð­endur okkar eru eðli­lega í sjokki yfir að hafa fengið þessi sms-skila­boð, þar sem settar eru fram fjöl­margar rangar ásak­anir gegn þeim sem og hót­anir gegn öryggi þeirra. Eðli og tónn þess­ara sms-skila­boða gefur umbjóð­endum okkar til­efni til að ætla að hegðun þín sé ekki rök­rétt og að þú kunnir að grípa til aðgerða gegn þeim sem enn frekar kunna að ógna vel­ferð þeirra, líkt og þú hefur hótað.“

Eitt af því sem Róbert hafði sagt í skila­boðum til Marks var: „Næst þegar við erum stað­settir í sömu borg skaltu fela þig skít­hæll­inn þinn.“

Enska lög­mann­stofan lýsti því svo af hverju hátt­erni Róberts varð­aði við lög Englands og Íslands . Lög­manns­stofan sagði að Róbert kynni að sæta ákæru í Englandi vegna þess og jafn­vel hljóta fang­els­is­dóm í allt að 2 ár þar sem um væri að ræða alvar­lega áreitni. Einnig kom fram að sms-skila­boðin væru klárt til­efni til lög­reglu­rann­sóknar og eftir atvikum ákæru á Íslandi. 

Þá kom enn frekar fram að þeir Mark og Claudio gætu kraf­ist skaða­bóta af Róberti vegna máls­ins. 

Lára Ómars­dóttir segir að Róber Wessman hafi ekki greitt þeim Claudio og Robert pen­inga fyrir að þegja um málið.  „Nei hann hafði hins vegar sam­band við þá og baðst afsök­unar á fram­ferði sínu.“

Enska lög­manns­stofan beindi einnig erindi sínum til stjórnar Alvogen fyrir hönd þeirra Marks og Claudios þar sem mat hennar var að Alvogen væri sam­á­byrgt fyrir hegðun Róberts. Í bréf­inu til stórnar Alvogen sagði: „Við vekjum athygli ykkar á því þar sem umbjóð­endur okkar hafa áhyggjur af því að hátt­settur stjórn­andi, í reynd and­lit fyr­ir­tækis ykkar út á við gagn­vart mark­aðnum, skuli hafa sam­band við umbjóð­endur okkar, sem einnig eru sér­fræð­ingar á lyfja­mark­aði, með þeim hætti og þeim tóni sem hann gerði.“

Lög­manns­stofan sagði við stjórn Alvogen að umbjóð­endur þeirra litu svo á að ef hót­anir Róberts myndu halda áfram þá myndu þeir grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana gagn­vart Alvogen. „Við vonum að þess ger­ist ekki þörf og að þið munið geta haft eft­ir­lit með og stjórnað hátt­erni for­stjóra ykkar með við­eig­andi hætti,“ segir í bréf­inu.

„Ég vil nota þetta tæki­færi til að heils hugar biðja Hr. Keatley og Hr. Albrecht afsök­unar á því að valdið þeim hug­ar­angri í síð­ustu viku.“
Róbert Wessman

Róbert baðst afsökunar

Í gögn­unum sem Stundin hefur undir höndum eru einnig bréf frá Róberti Wessman og stjórn Alvogen. Í bréf­inu frá stjórn Alvogen, sem Árni Harð­ar­son lög­maður skrifar fyrir hönd félags­ins, kemur fram að stjórnin líti málið „alvar­legum“ augum. „Við full­vissum ykkur um að við hjá Alvogen Group lítum málið mjög alvar­legum augum.“

Samt sem áður taldi stjórnin að það væri Róberts sjálfs að svara fyrir það jafn­vel þó að hann væri for­stjóri félags­ins. 

 Róbert baðst afsök­unar á hegðun sinni með bréfi til ensku lög­manns­stof­unnar þann 3. febr­úar 2016. „Ég vil nota þetta tæki­færi til að heils hugar biðja Hr. Keatley og Hr. Albrecht  afsök­unar á því að valdið þeim hug­ar­angri í síð­ustu viku.“ Róbert hét því svo að hafa ekki sam­band við þá aftur með neinum hætti. 

Sent upp­lýs­ingar um RóbertHalldór Krist­manns­son hefur sent upp­lýs­ingar um starfs­hætti Róbert Wessman til stjórnar Alvogen. Hann starf­aði sem hægri hönd Róberts í nærri tvo ára­tugi.

Vill að Róbert hætti sem forstóri Alvogen

Halldór Krist­manns­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Alvogen og tals­maður Róberts til margra ára, sendi frá sér yfir­lýs­ingu í morgun þar sem hann kemur inn á efni sms-skila­boð­anna til Albrechts og Keatley án þess þó að ræða þau í smá­at­riðum. Morg­un­blaðið greindi fyrst fjöl­miðla frá yfir­lýs­ing­unni í blaði sínu í dag. 

Halldór telur að Róbert eigi að láta af störfum sem for­stjóri Alvogen vegna þessa máls og ann­arra sem hann hefur orðið vitni að í störfum sínum fyrir hann. „Ég tel að morð­hót­anir, lík­ams­árásir og sví­virði­legar ásak­anir, er varða meinta óvild­ar­menn og æru­meið­ingar í þeirra garð, sé í raun óverj­andi hegðun for­stjóra alþjóð­legra fyr­ir­tækja. Þetta hlýtur að vekja upp spurn­ingar um hæfi hans sem stjórn­anda.  Hins­vegar vona ég að þessi fyr­ir­tæki blóm­stri í fram­tíð­inni, þannig að ég sem hlut­hafi, geti verið stoltur af fram­gangi þeirra,“ segir Halldór í yfir­lýs­ing­unni. 

Halldór telur að nið­ur­staða Alvogen á starfs­háttum Róberts Wessman, sem greint var frá í síð­ustu viku, sé „hvít­þvottur“. 

Róbert segir tilgang Halldórs fjárhagslegan

Róbert Wessman sendi frá sér yfir­lýs­ingu fyrr í dag þar sem hann sagði að stjórn Alvogen hefði látið skoða ásak­anir Halldórs á hendur honum og ekki talið rétt að aðhaf­ast neitt. Hann telur hvata Halldórs vera fjár­hags­lega: „Það er aug­ljóst af bréfa­send­ingum lög­manna Halldórs, Quinn Emanuel, að ásak­anir hans eru gerðar í fjár­hags­legum til­gangi enda koma þar fram kröfur um greiðslur til handa honum. Eins og fram hefur komið var fengin óháð alþjóð­leg lög­manns­stofa til að fara ofan í saumana á kvört­unum Halldórs. Talað var við tugi starfs­manna og farið yfir fjölda gagna og nið­ur­staðan var skýr. Til að tryggja enn betur trú­verð­ug­leika þeirrar skoð­unar sem fram fór var önnur óháð lög­manns­stofa fengin til að fara yfir ferli skoð­un­ar­innar og stað­festa þá.Fyrir mig eru þessar ásak­anir mjög mikil von­brigði enda vegið að mínum starfs­heiðri og per­sónu. Mér þykir mjög miður að sam­starfi okkar Halldórs til 18 ára hafi lokið með þessum hætti,“ segir Róbert. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Róbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tapaði 332 milljónum krónum á dag á fyrsta ársfjórðungi
GreiningRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tap­aði 332 millj­ónum krónum á dag á fyrsta árs­fjórð­ungi

Fjöl­margir fjár­festar, meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, hafa veðjað stórt á að Alvotech muni með tíð og tíma verða mylj­andi pen­inga­vél. Hökt hefur verið á því ferli og á síð­ustu 27 mán­uðum hefur félagið tapað um 180 millj­örðum króna. Stjórn­endur Alvotech eru hins vegar brattir og spá því að tekjur félags­ins muni allt að fimm­fald­ast milli ára.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúlletta Róberts og vitn­is­burðir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mikið álag“

Starfs­menn Alvotech lýsa vinnu­á­lag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leitað til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yfir­vinnu og fleiri málum. Vinnu­að­stæð­urnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá mark­aðs­leyfi fyrir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dreg­ist saman og sam­heita­lyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Banda­ríkj­unum og reiknað var með.
Lífeyrissjóður greiddi atkvæði gegn kaupréttum stjórnar Alvotech
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Líf­eyr­is­sjóður greiddi atkvæði gegn kaup­réttum stjórnar Alvotech

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech hefur veitt fjórum óháðum stjórn­ar­mönnum kaup­rétti í félag­inu. Stjórn félags­ins fékk heim­ild til að veita öllum stjórn­ar­mönnum slíka kaup­rétti en þeir stjórn­ar­menn sem eru tengdir Alvotech, meðal ann­ars Róbert Wessmann og Árni Harð­ar­son hafa afsalað sér þessum kaup­réttum. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi greiddi atkvæði gegn kaup­rétt­ar­kerf­inu.
Háskólinn hjálpaði Róberti að eignast verksmiðjuna fyrir ekkert
SkýringRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Háskól­inn hjálp­aði Róberti að eign­ast verk­smiðj­una fyrir ekk­ert

Við­skiptin með lóð­ina í Vatns­mýri þar sem lyfja­verk­smiðja Alvotech reis vöktu til­tölu­lega litla athygli fyrir ára­tug síðan. Í við­skipt­unum voru Reykja­vík­ur­borg og Háskóli Íslands hins vegar að afhenda Róberti Wessman afnot af gæðum í opin­berri eigu á silf­ur­fati, sem hann hefur síðan notað til að hagn­ast ævin­týra­lega á í gegnum lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár