Kvikan er að brjóta sér leið upp: Þúsund ára atburður á Reykjanesi

Talið er að eld­gos geti haf­ist á næstu klukkust­unum suður af Keili. „Þetta er mjög krítísk staða,“ segir Frey­steinn Sig­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur. Ragnar Stef­áns­son jarð­skjálfta­fræð­ingur segir að sér virð­ist kvikan hafa farið stutt upp í sprung­una.

Kvikan er að brjóta sér leið upp: Þúsund ára atburður á Reykjanesi
Eldgos mögu­lega að hefj­ast Óróinn eru suður af fjall­inu Keili.

Eldgos er mögu­lega að hefj­ast á Reykja­nesi í fyrsta sinn í tæp 800 ár. Í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands segir að svo­kall­aður óró­apúls hafi haf­ist klukkan 14:20 suður af Keili á Reykja­nesi, við Litla Hrút. Slík merki mælist í aðdrag­anda eld­gosa en ekki hefur verið stað­fest að gos sé hafið. 

„Það er kvika að brjóta sér leið. Það er breyt­ing í þró­un­inni. Þetta er mjög krítísk staða. Órói sem þýðir að kvika er að brjóta skorpuna,“ segir Frey­steinn Sig­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur á fundi almanna­varna. Að hans sögn getur tekið klukku­stundir eða daga fyrir kviku að ná yfir­borð­inu.

Margt fólk reynir að beygja afleggjar­ann inn að Keili, að sögn Víðis Reyn­is­sonar, yfir­lög­reglu­þjóns hjá almanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra, sem veldur hættu á því að fólk fest­ist í blautu und­ir­lag­inu. Víðir segir að ef gosið verði að veru­leika verði reynt að stýra umferð og útbúa útsýn­is­svæði.

Hvar yrði gosið?

Frey­steinn Sig­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur segir að lík­leg­asti upp­komu­staður eld­goss sé þar sem gos­órói hefur verið að grein­ast.

„Kvikan velur sér þá leið sem er auð­veld­ast að fara. Þessi kviku­gangur hefur verið að þró­ast. Hann lengd­ist fyrst í átt­ina að Keili. Núna er þetta aðeins á öðrum stað, vði suð­ur­end­ann á þessum gangi. Þetta er aðeins óút­reikn­an­legt. Getur fært sig til neð­an­jarðar, en þetta er búið að vera mjög þröngt svæði. Lang­lík­leg­asta svæðið, ef það er að koma eld­gos, er þar sem þessi órói er og hefur verið unnið með og við­bragðs­á­ætl­anir taka mið af.“

Klukkan 15:30 stóð til að þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar færi í loftið og í yfir­flug yfir Keili og Reykja­nesið. Samkvæmt því sem Ásgeir H. Erlend­son, upp­lýs­inga­full­trúi Land­helg­is­gæsl­unnar, sagði í sam­tali við Stundina verða tveir starfs­menn almanna­varna með í för og skýrst gæti á næstu fimmtán mín­útum hvort merki séu um eldsum­brot á yfir­borði. 

Eldgos koma í hrinum

Eldgos hafa ekki orðið á Reykja­nesskag­anum í um 780 ár. Þau hafa hins vegar sögu­lega séð gengið yfir í lotum á 800 til 1.000 ára fresti. Röð eld­gosa varð í Reykja­neskerf­inu á árunum 1211 til 1240. Síðasta gos varð í Svarts­engi, norðan Grinda­víkur, árið 1226. Í Krýsuvík, kringum Kleif­ar­vatn og austan við Keili, urðu stór­gos árin 1.151 til 1.188. Þá rann hraun bæði í sjó norðan við og sunnan. Loks gaus í Brenni­steins­fjöllum, enn austar og nær höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á 10. og 11. öld.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði að íslenska þjóðin væri aðlög­un­ar­hæf. „Ef þetta verður nýja normið, þá er það bara þannig.“

Hugs­an­leg sviðs­mynd hraun­rennslis milli Keilis og Litla HrútsÁ vef Veð­ur­stof­unnar má sjá hugs­an­legt hraun­rennsli ef eld­gos verður milli Keilis og Litla Hrúts, þar sem óró­apúls­inn hefur mælst.
Hraun­flæðispá Eld­fjalla­fræði og nátt­úru­vá­r­hópi Háskóla Íslands gaf út nýja spá fyrir hraun­flæði seinni part­inn í dag.

Á vef Vík­ur­frétta er bein útsend­ing úr vef­mynda­vél sem stað­sett er á skrif­stofu fjöl­mið­il­ins og bein­ist í átt að Keili og Fagra­dals­fjalli. Sjá má útsend­ingun hér að neðan.

Segir ekki víst að framhald verði á

Ragnar Stef­áns­son

Ragnar Stef­áns­son jarð­skjálfta­fræð­ingur segir ekki víst að áfram­hald verði á óró­anum eða að kvika nái upp á yfir­borðið. „Þetta er útlausn á spennu­orku sem hefur verið að hlað­ast upp í ein­hvern tíma vest­ast á Reykja­nesskag­anum. Þessi útlausn kemur fram þarna núna síð­ast í sprungu sem liggur frá suð­vestri til norð­aust­urs, þarna fyrir sunnan Keili. Það eru gossprungur í þessa stefnu, gos­hryggir, sem eru með þessa stefnu, suð­vestur-norð­austur stefnu og þetta er í þá stefnu og það er greini­legt að þarna hefur orðið gliðnun um svona sprungu og kvika hefur farið aðeins upp í þessa gliðnun. Það er svo sem ekk­ert víst að það haldi neitt áfram. Þetta hefur farið að því er mér virð­ist vera frekar stutt upp í sprung­una. Samt sem áður virð­ist þessi færsla sem þarna er vera nálægt met­ers gliðnun, hún nátt­úru­lega hefur áhrif í kringum sig.

Núna er spurn­ingin hvort hvernig þessi áhrif virka, breyta því ástandi sem hefur verið. Það getur orðið aukn­ing í virkni þarna vest­ast á nes­inu eða vestur af Reykja­nes­inu getur maður ímyndað sér og það á eftir að koma í ljós hvað áhrifin á þessu verða mikil á þessum atburði en það léttir auð­vitað á spennu akkúrat þarna í kring þar sem opn­unin er en þetta leggst sem lag ofan á plötu­skilin þarna. Menn hafa verið með áhyggjur af jarð­skjálfta sem gæti orðið þarna á sem við köllum harða kjarn­ann á svæði milli Kleif­ar­vatns og Blá­fjalla. Þar verða nokkuð stórir skjálftar, þeir geta náð stærð­inni 6 til 6,5 þar á milli og það hefur verið á síð­ustu árum mikið álag á þessum kjarna.“

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár