Sakborningur í Samherjamálinu í Namibíu vill að ríkið greiði lögmannskostnað hans

Sacky Shangala, fyrr­ver­andi rík­is­sak­sókn­ari og dóms­mála­ráð­herra Namibíu, vill að ríkið útvegi honum lög­mann eða greiði lög­manns­kostnað hans. Upp­lýs­ingar hafa komið fram sem bendla for­seta Namibíu við Sam­herj­a­málið og gæti krafa Shangala byggt á því að hann hafi verið að fylgja skip­unum.

Sakborningur í Samherjamálinu í Namibíu vill að ríkið greiði lögmannskostnað hans
Vill að ríkið greiði kostn­að­inn Sacky Shangala, einn af sak­born­ing­unum í Sam­herj­a­mál­inu, vill að namibíska ríkið greiði kostn­að­inn við málsvörn hans í mál­inu.

Sacky Shangala, einn af sak­born­ing­unum í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, vill að namibíska ríkið greiði  lög­manns­kostn­að­inn sem hann hefur orðið að greiða til að taka til varna í mál­inu. Shangala hefur setið í gæslu­varð­haldi frá því í nóv­em­ber árið 2019 grun­aður um að hafa skipu­lagt og tekið við mútu­greiðslum frá íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta í land­inu.

Ástæðuna fyrir þes­ari kröfu segir Sacky Shangala vera þá að það hafi verið vegna starfa hans í opin­beru emb­ætti sem hann varð inn­vinkl­aður í Sam­herj­a­málið og þar af leið­andi eigi ríkið í Namibíu að sjá honum fyrir lög­manni eða að greiða lög­manns­kostnað hans. Fjallað er um þessa kröfu Sacky Shangala í namibískum fjöl­miðlum. 

Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins, sem kallað er Fishrot á ensku, er í fullum gangi þar í landi og er ráð­andi stjórn­mála­flokkur lands­ins, SWAPO, í auknum mæli bendl­aður við það. Komið hafa fram upp­lýs­ingar sem benda til þess að pen­ing­arnir sem Samheri greiddi til þess hóps áhrifa - og stórn­mála­manna, meðal ann­ars Sacky Shangala, sem kall­ast hár­karl­arnir, hafi að hluta til runnið til SWAPO-flokks­ins til að fjár­magna flokks­starfið.  

Samherji hefur, í svari til Stund­ar­innar, neitað því að hafa fjár­magnað flokks­starf SWAPO-flokks­ins. „Félög tengd Samherja hafa ekki styrkt Swapo-flokk­inn,“ sagði Björgólfur Jóhanns­son í svari til Stund­ar­innar í síð­ustu viku. Tekið skal fram að pen­ing­arnir sem SWAPO er sagður hafa fengið frá Samherja bár­ust í gegnum milli­lið og ekki beint frá íslensku útgerð­inni. Þannig er ekki ómögu­legt að Samherji hafi ekki vitað að pen­ing­arnir sem komu frá félag­inu hafi á end­anum runnið til SWAPO-flokks­ins. 

Björgólfur hefur ekki svarað fram­halds­er­indi Stund­ar­innar um málið. 

Neitar að hafa styrkt flokk­innBjörgólfur neitar því að Samherji hafi styrkt SWAPO-flokk­inn.

Ennþá stærra spillingarmál?

Eins og Stundin hefur greint frá þá hafa tveir lög­menn sem tóku þátt í miðla pen­ing­unum sem bár­ust til Sackky Shangala og við­skipta­fé­laga hans stigið fram og greint frá því að for­seti Namibíu, Hage Geingob, hafi verið aðal­mað­ur­inn í að skipu­leggja að taka við greiðsl­unum frá Samherja og flokkur hans, SWAPO, hafi notið góðs af þeim.

Málið er því heldur betur að hlaða utan á sig eftir því sem rann­sókn þess heldur áfram í Namibíu og virð­ist hún ætla að opin­bera enn stærri og meiri spill­ingu en svo að málið snú­ist ein­göngu um að sjömenn­ing­arnir sem setið hafa í gæslu­varð­haldi hafi þegið mútur frá Samherja í skiptum fyrir fisk­veiði­kvóta. 

Ef þessar upp­lýs­ingar sem komið hafa fram reyn­ast réttar þá má segja að vanda­málið sem rann­sókn­ar­að­ilar í Namibíu standa frammi fyrir sé tölu­vert stærra en ef málið hefði bara snú­ist um að spill­ingin hefði verið ein­skorðuð við þá ein­stak­linga sem áttu í beinum sam­skiptum við Samherja og tóku við fjár­munum frá útgerð­inni. Meðal ann­ars Sacky Shangala, Bernhard Esau og þeir James og Tamson Hatuikulipi. Ef SWAPO-flokk­ur­inn hefur sem slíkur, og með vit­und og vilja Hage Geingob for­seta, komið að því að ákveða og skipu­leggja mút­urnar til að fjár­magna flokk­inn og hjálpa honum að halda völdum í land­inu þá verður snún­ara og flókn­ara fyrir ákæru­valdið að taka á mál­inu en ef spill­ingin hefði bara verið bundin við nokkra ein­stak­linga.

SWAPO-flokk­ur­inn hefur fengið meiri­hluta í öllum þing­kosn­ingum í land­inu allt frá sjálf­stæði þess fyrir þremur ára­tugum og hafa skilin á milli rík­is­l­valds­ins sjálfs og SWAPO-flokks­ins orðið nokkuð óskýr með tím­anum ef marka má hina nýju vitn­is­burði í mál­inu. Þannig virð­ast liðs­menn SWAPO-flokks­ins hafa litið á gæði rík­is­ins, eins og fisk­veiði­kvóta, sem gæði sem SWAPO-flokk­ur­inn og ráða­menn hans hafa getað notið  góðs af. 

„SWAPO-flokk­ur­inn hefur, með aðkomu sinni að því að stela frá okkur við fisk­veiði­auð­lind þjóð­ar­innar, eyði­lagt orð­spor lands­ins og þetta leiðir til þeirrar spurn­ingar hvort SWAPO-flokk­ur­inn geti yfir­leitt stýrt þessu landi.“
Yfir­lýs­ing frá PDM

Skorað á SWAPO-flokkinn að leggja spilin á borðið

Þessar fréttir um aðkomu SWAPO-flokks­ins að pen­inga­greiðsl­unum frá Samherja hafa leitt til mik­illar umræðu í Namibíu. Enda er það líka tals­vert stærri frétt ef flokk­ur­inn sjálfur og for­set­inn eru viðriðnir málið. Staða SWAPO í Namibíu er svipuð og staða helsta valda­flokks­ins í Suður-Afríku, ANC, sem Nelson Mandel til­heyrði. Báðir flokk­arnir eru frels­is­hreyf­ingar sinna landa sem áttu stóran þátt í að losa ríkin undan rasísku aðskiln­að­ar­stjórn­inni í Suður-Afríku fyrir 30 árum síðan og kom­ast til valda. Þannig má segja að um sé að ræða valda­flokka sem sækja mátt sinn til aðkomu sinnar að sjálf­stæð­is­bar­átt­unni í lönd­unum tveimur. 

Einn af stjórn­mála­flokk­unum í Namibíu, Popular Democratic Movement, sendi meðal ann­ars frá sér yfir­lýs­ingu fyrir helgi þar sem skorað var á SWAPO-flokk­inn að segja satt og rétt frá um aðkomu sína að Sam­herj­a­mál­inu þar sem Namibía væri nú land sem væri þekkt fyrir spill­ingu og þetta hefði áhrif á erlenda fjár­fest­ingu í land­inu. „Nú er Namibía land sem er tengt við spill­ingu. SWAPO-flokk­ur­inn hefur, með aðkomu sinni að því að stela frá okkur við fisk­veiði­auð­lind þjóð­ar­innar, eyði­lagt orð­spor lands­ins og þetta leiðir til þeirrar spurn­ingar hvort SWAPO-flokk­ur­inn geti yfir­leitt stýrt þessu landi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

Af þessu sést að byrjað er að spyrja þeirrar spurn­ingar í Namibíu hvort SWAPO-flokk­ur­inn sé yfir­leitt stjórn­tækur í ljósi Sam­herj­a­máls­ins. 

Shangala gefur í skyn að hann hafi unnið fyrir forsetann

Vitn­is­burður veldur ólguVitn­is­burður Marén de Klerk um aðkomu Hage Geingob for­seta að Sam­herj­a­mál­inu hefur vakið ólgu.

Þessi umræða um mögu­leg tengsla for­set­ans Haga Geingob og SWAPO-flokks­ins við pen­inga­greiðsl­urnar frá Samherja fyrir hest­makríl­skvót­ann skiptir máli varð­andi þá beiðni Sacky Shangala að namibíska ríkið greiði lög­manns­kostnað hans. Shangala var rík­is­sak­sókn­ari í Namibíu hluta þess tíma sem mútu­greiðsl­urnar frá Samherja áttu sér stað og þar a undan starfs­maður emb­ættis rík­is­sak­sókn­ara og síðar dóms­mála­ráð­herra. Krafa hans um greiðslu lög­manns­kostn­aðar frá namibíska rík­inu byggir á því að hann hafi verið að starfa sem opin­ber emb­ætt­is­maður þegar hann kom að því að skipu­leggja umræddar greiðslur. Með þessu gæti Shagnala meðal ann­ars verið að gefa í skyn að hann hafi fengið skip­anir um að koma að mál­inu frá hærra settum manni eða mönnum innan rík­is­ins. 

„Shangala og Hatuikulipi útskýrðu fyrir mér að þeim hafi verið fyr­ir­skipað, af Hage Geingob for­seta,“
Marén de Klerk

Þarna gæti Shangala mögu­lega verið að tala um Hage Geingob for­seta en í yfir­lýs­ingu sinni til namibísku spill­ing­ar­lög­regl­unnar í fyrra sagði lög­mað­ur­inn Marén de Klerk, sem kom að því að miðla greiðsl­unum frá Samherja fyrir „hákarl­ana“, að Shangala og James Hatuikulipi hefðu tjáð honum að Geingob væri með í ráðum. „Shangala og Hatuikulipi útskýrðu fyrir mér að þeim hafi verið fyr­ir­skipað, af Hage Geingob for­seta, sem þeir köll­uðu „stjór­ann“, að setja upp félaga­net til að sjá um útdeil­ingu fjár­fram­laga sem greidd höfðu verið til Swapo og rík­is­stjórn­ar­innar af stuðn­ings­mönnum þeirra,“ sagði hann í yfir­lýs­ingu sinni. 

Í svörum frá rík­is­sak­sókn­arnum í Namibíu sem vitnað er til í namibískum fjöl­miðlum kemur fram að ekki sé búið að taka afstöðu til beiðni Sacky Shangala.  Í namibíska blað­inu The Namibian Sun kemur fram að emb­ætt­is­menn í Namibíu eigi rétt á að ríkið greiða lög­manns­kostnað þeirra ef um er að ræða mála­ferli út af opin­berum emb­ætt­is­færslum þeirra sem með beinum hætti snerta störf þeirra en að þeir eigi hins vegar ekki rétt á slíku ef þeir eru að mis­nota aðstöðu sína eða skara eld að eigin köku.

Hvað úr verður á eftir að koma í ljós í til­felli Sacky Shangala og kann þá að skipta máli hvort hann hafi fengið skip­anir að ofan, frá Geingob for­seta, að skipu­leggja greiðsl­urnar frá Samherja þannig að þær myndu gagn­ast SWAPO-flokknum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár