Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

Lok, lok og læs

Vonsku­veð­ur á Siglu­firði varð til þess að skíða­skál­inn er nán­ast ónýt­ur eft­ir snjóflóð og rýma þurfti níu íbúð­ar­hús við tvær göt­ur. Und­an­far­ið hef­ur ver­ið meira og minna ófært en ljós­mynd­ari Stund­ar­inn­ar komst loks á áfanga­stað til að fanga and­rúms­loft­ið í þessu 2.000 manna bæj­ar­fé­lagi þar sem íbú­ar eru jafn­vel inni­lok­að­ir dög­um sam­an. Þeir kvarta ekki, veðr­ið var verra í fyrra.

„Er brostið aftur á,“ segir fullorðinn maður um leið og hann opnar dyrnar á Aðalbakaríinu á Siglufirði, hallar sér fram í norðanbálið og hverfur út í sortann. „Þetta er orðið fínt, er orðinn ansi þreyttur á þessu óveðri, þetta er níundi dagurinn í röð,“ segir Hallgrímur Helgason rithöfundur, þar sem hann horfir á eftir manninum hverfa út í kófið með fangið fullt af ástarpungum.  

Siglufjörður og Ólafsfjörður eru tveir nyrstu bæir Tröllaskaga og mynda Fjallabyggð, 2.000 manna samfélag þar sem veturnir eru vályndir. Stórhríðir, skafrenningur og snjóflóðahætta gera það að verkum að vegirnir báðum megin frá lokast og íbúar byggðanna verða innlyksa dögum saman vegna ófærðar. Síðastliðinn vetur var vegunum lokað í um fimmtíu daga, að sögn Elíasar Péturssonar, bæjarstjóra Fjallabyggðar. „Það er bara ein lausn, tvenn jarðgöng, annars vegar frá Siglufirði yfir í Fljót, og hin frá Ólafsfirði suður til Dalvíkur.  Atvinnulífið hér á svæðinu, sérstaklega sjávarútvegurinn, þarf góðar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Óveður í Fjallabyggð

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár