Soffía Alex­eiévna Myndina mál­aði Ilja Repín 1879 eftir sam­tíma and­lits­mynd af Soffíu sem til er.

Konan sem ógnaði kerfinu

Soffía Alex­eiévna hlýtur að vera ein­hver maka­laus­asti og öfl­ug­asti per­sónu­leiki sög­unnar.

Hún kom úr ein­hverjum inni­lok­að­asta afkima sam­fé­lags­ins. Hún til­heyrði ein­hverjum kúg­að­asta hópi þess. Hún var mennt­un­ar­snauð og kom varla út undir bert loft nema með and­litið hulið bak við þykka blæju. Ef henni var hleypt milli húsa voru tjöld fyrir glugga á vagn­inum sem hún ferð­að­ist í svo hún sæi ekki umheim­inn og eng­inn sæi hana. Henni var bannað að taka þátt í sam­ræðum karl­manna, enda öllum ljóst að hún gat ekki haft neitt til mál­anna að leggja Hún átti að verja lífi sínu í að sauma við­hafn­ar­skikkjur fyrir karl­kyns ætt­ingja sína og hátt­setta klerka. Og hún átti að fara með mikið af bænum. Svo átti hún að deyja ein­hvern tíma, södd líf­daga, jafn inni­lokuð og hún hafði lifað.

En hún braust út.

Með ein­hverjum furðu­legum hætti tókst Soffíu Alex­eiévnu að rífa af sér allar hindr­anir ein­hvers nið­ur­njörv­að­asta feðra­veldis sem sagan kann frá að greina og ekki aðeins …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár